Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Síða 108
108 FÓKUS 22. nóvember 2019
Þau eru systkin - Gengur list og pólitík í genum?
n Þetta eru systkinin sem þú vissir ef til vill ekki af n Söngelsk systkin og saman á Alþingi
Í
sland er lítið land og því kem-
ur lítið á óvart að ýmsir þekktir
landsmenn tengist blóðbönd-
um. Það sem kemur aftur á
móti örlítið á óvart er skoðunin
á því hverju viðkomandi einstak-
lingar deila frekar en sameigin-
legum fjölskylduboðum. Þetta
eru þeir Íslendingar sem þú vissir
kannski ekki að væru systkin.
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
Nanna Kristín Magnúsdóttir,
leik- og kvikmyndagerðarkona,
er systkinamörg en einn af
bræðrum hennar er Jónas Breki
Magnússon, skartgripahönnuð-
urinn á bak við merkið BREKI.
Jónas uppgötvaði ást sína á
skartgripagerð þegar hann spil-
aði íshokkí sem atvinnumaður
í Finnlandi og lærði iðnina síð-
ar í Kaupmannahöfn. Nanna
Kristín er Íslendingum vel kunn
og hefur heillað þjóðina í leik-
listinni síðustu áratugi, til að
mynda í kvikmyndunum París
norðursins og sjónvarpsþáttun-
um Pabbahelgum.
Leikarinn Hjörtur Jóhann
Jónsson og leikkonan Helga
Braga Jónsdóttir eiga sama
föður. Helga Braga hefur
verið Íslendingum vel kunn
í áraraðir, frá og með upp-
risu Fóstbræðra, en Hjörtur
hefur mikla reynslu af leik-
hússenunni og hefur kom-
ið víða fram í sjónvarpi og
kvikmyndum.
Helga Jónsdóttir, fyrrverandi stjórnarformaður hjá eftirlitsstofnun
EFTA og bæjarstjóri í Fjarðabyggð, og hæstaréttarlögmaðurinn
Gestur Jónsson eru systkin. Gestur hefur getið sér gott orð við að
verja þekkta menn úr viðskiptalífinu eins og Sigurð Einarsson og
Jón Ásgeir Jóhannesson.
Emmsjé Gauti, einn fremsti rappari landsins, er
fjarri því að vera sá eini í ættinni sem spreytir sig á
sviði listarinnar. Systir hans, tónlistarkonan Karin
Sveinsdóttir, sem gengur einnig undir listamanns-
nafninu Young Karin, er ekki síður hæfileikarík.
Þau vita hvað þau syngja.
Eflaust má segja að leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir og systir henn-
ar, Lísa Kristjánsdóttir, eigi líflegar umræður um pólitík í jóla-
boðum og á fjölskyldusamkomum. Ilmur var varaborgarfulltrúi í
Reykjavík fyrir Bjarta framtíð hér um árið en Lísa var um skeið að-
stoðarkona Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, en það var á
þeim tíma þegar Katrín var formaður Vinstrihreyfingarinnar. Hver
segir svo að megi ekki ræða um pólitík við matarborðið?
Hjalti Rúnar Jónsson leikari og Eyvindur Karls-
son tónlistarmaður eru hálfbræður. Þeir eru synir
Maríu Sigurðardóttur, sem var einu sinni leik-
hússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar. Það vantar svo
sannarlega ekki listsköpunina á þeim bæ.
Leikkonan og
skartgripa-
hönnuðurinn
Slegist um titlana
Pólitík í boðinu
Hæfileikarík
hálfsystkin
Systkin sem syngja
Tilfinningar og tónlist