Ársrit um starfsendurhæfingu - 2013, Qupperneq 79

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2013, Qupperneq 79
79www.virk.is AÐSEND GREIN sína sögu. Þegar fleiri en 10 einstaklingum er sagt upp á sama tíma í fyrirtæki telst það vera hópuppsögn. Frá hruni hefur hópuppsögnum fjölgað umtalsvert hér á landi, en fram til ársins 2008 voru hópuppsagnir fátíðar eða um 2-4 á ári. Frá ársbyrjun 2008 til desember 2012 hafa 8650 einstaklingar misst vinnuna í 218 tilkynningum um hópuppsagnir (Vinnumálastofnun, e.d.). Í kjölfar niðurskurðar og þrenginga þar sem fækkað er umtalsvert í starfsmannahópi, eins og gerist í hópuppsögnum, má búast við að skipulagsbreytingar eigi sér stað í fyrirtækjum. Því fylgja gjarnan nýjar stefnur og nýir verkferlar sem geta aukið álag meðal þeirra sem starfa áfram (Allen o.fl., 2001). Ekki er alltaf hægt að leggja niður verkefni þess starfsfólks sem var látið fara. Því getur komið í hlut þeirra sem starfa áfram að taka þau yfir. Einnig má búast við að einhverjir flytjist til í starfi, taki á sig launaskerðingu eða annað sem stjórnendur telja nauðsynlegt til að bæta stöðu fyrirtækisins (Østhus, 2007). Miklar breytingar á vinnustöðum geta einnig haft áhrif á samstöðu og samvinnu starfsfólks. Eftir uppsagnir má búast við að félagsleg tengsl rofni, sem getur leitt til þess að einhverjir hafi minni verklegan eða félagslegan stuðning (House, 1980). Miklar breytingar á vinnustöðum geta þannig skapað aukið álag, bæði verklegt sem andlegt, fyrir þá sem starfa áfram á vinnustaðnum (Ferrie o.fl., 2008). Í Finnlandi voru gerðar rannsóknir á áhrifum umtalsverðrar fækkunar á starfsfólki í opinberri þjónustu sveitarfélaga þar í landi á tímum efnahagsþrenginga í lok síðustu aldar. Þær rannsóknir sýna að þar sem varð umtalsverð fækkun á fjölda starfsmanna var það starfsfólk sem starfaði áfram oftar frá vinnu vegna veikinda, því var ávísað meira af geðlyfjum en samanburðarhópi og það var líklegra til að finna fyrir versnandi einkennum frá hreyfi- og stoðkerfi (Kivimäki o.fl., 2000; Kivimäki o.fl., 2001; Kivimäki o.fl., 2007; Vahtera o.fl., 1997; Vahtera o.fl., 2004). Þegar lagt var mat á áhættuþætti voru tengslin sterkust við þætti sem tengdust breytingum á vinnufyrirkomulagi en tengsl við erfiða lífsviðburði eins og bágan efnahag og hjónaskilnað voru veikari (Kivimäki o.fl., 1997). Rannsóknir hafa einnig gefið til kynna að áhætta á hjarta- og æðasjúkdómum kunni að aukast meðal starfsfólks í kjölfar niðurskurðar í fyrirtækjum (Vahtera o.fl., 2004; Westerlund o.fl., 2004). Einnig hafa rannsóknir sýnt að andleg vanlíðan aukist í kjölfar umfangsmikilla fækkana í starfsmannahópi (Bamberger o.fl., 2012). Í kjölfar efnahagshrunsins hafa verið gerðar athuganir hér á landi meðal starfsfólks sveitarfélaga og starfsfólks banka þar sem áhrif uppsagna eða fækkunar á starfsfólki eru könnuð. Hjá sveitarfélögum má sjá að 12,9% starfsfólks telja líkamlega líðan sína hafa versnað og 22,4% telja andlega líðan sína hafa versnað við efnahagshrunið (Hjördís Sigursteinsdóttir, 2010). Athugun á einelti hjá starfsfólki sveitarfélaga sýndi jafnframt að það er algengara í þeim einingum þar sem niðurskurði hefur verið beitt. Það bendir til þess að niðurskurður hafi umtalsverð áhrif í starfsmannahópnum og ýti undir fjandsamleg samskipti, en einelti er mjög alvarlegt vandamál á vinnustöðum (Hjördís Sigursteinsdóttir, 2012). Meðal starfsfólks í bönkum má sjá að 6 mánuðum eftir hrun starfaði um helmingur starfsfólks í deild þar sem samstarfsfólki hafði verið sagt upp. Þegar álag í vinnu er skoðað hjá þeim hópi kemur í ljós að starfsmenn innan hans eru líklegri en aðrir starfsmenn til að segja að álag sé mikið. Á sama hátt kemur í ljós að þungar áhyggjur og einkenni kvíða og depurðar eru algengari meðal starfsfólks í deildum þar sem samstarfsfólki var sagt upp heldur en meðal annars starfsfólks í bönkum (Ásta Snorradóttir og Kristinn Tómasson, 2009). Sams konar niðurstöður koma einnig fram hjá þeim sem hafa upplifað breytingu í starfi, eins og breytingu á vinnutíma, lækkun launa, breytingu á verkefnum eða flutning innan fyrirtækisins. Árið 2009 höfðu 42% starfsfólks í bönkum upplifað breytingu á starfi og árið 2011 voru það 35% starfsfólks. Hjá sveitarfélögum höfðu 43% starfsfólks upplifað breytingu á starfi árið 2010 og 45% árið 2011. Á báðum tímabilunum kemur fram að þeir sem höfðu upplifað breytingu í starfi upplifðu einnig meira álag en annað starfsfólk, minni félagslegan stuðning og einnig minni stuðning stjórnenda (Hjördís Sigursteinsdóttir og Ásta Snorradóttir, 2012). Íslenskar rannsóknir gefa því til kynna sambærileg áhrif skipulagsbreyt- inga og niðurskurðar á líðan og heilsu starfsfólks eins og koma fram í erlendum rannsóknum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.