Ársrit um starfsendurhæfingu - 2017, Blaðsíða 53
VIÐTAL
Hið jákvæða í þessu var að ég var mikið heima
og var helst ekki að vinna á sumrin. Það kom
auðvitað börnunum og heimilinu vel.
Ég fékk atvinnuleysisbætur sumarið eftir
fyrsta veturinn minn í Háskóla Íslands. Ég
var ekki vinnufær vegna kvíða en ég gætti
þess vel að gera sem minnst úr erfiðleikum
mínum. Ekki er langt síðan ég „kom út úr
skápnum“ með þetta. Mér fannst bæði
vandræðalegt að ræða kvíða minn og
afleiðingar hans sem komu auk líkamslegs
lasleika einnig fram í örvæntingu og
grátköstum.
Mér fannst ég líka mæta ákveðnum fordóm-
um vegna veikinda minna. Ég fór á milli
lækna en þeir vissu ekki í fyrstu hvað væri
að mér. Svo gerðist það að ég fékk slæmt
ofsakvíðakast og fór á bráðadeild, hélt ég
væri að kafna. Eldri læknir sem skoðaði
mig sagði: „Ætli þú sért ekki bara með
kvíðaröskun?“ Í næsta kasti leitaði ég því
á geðsvið Landspítalans og fékk aðstoð,
svo sem hugræna atferlismeðferð og lyf.
Aukaverkanir lyfjanna voru svo slæmar að
ég hætti á þeim. Þau deyfðu mig það mikið
að mér fannst ég eins og lifandi dauð. Ég
hætti að taka þau þegar ég varð ófrísk að
þriðju dóttur minni.
Föst í vítahring
Ég skánaði við hugrænu aðferlismeðferðina
og fleira sem ég prófaði – en mér batnaði
ekki. Ég fór til sálfræðings en fannst hann lítið
gera fyrir mig - kom jafnvel ekki þegar ég átti
tíma. Mér fannst það þungbær höfnun og ári
síðar lagði ég fram kvörtun til umboðsmanns
sjúklinga vegna þessa. Fljótlega eftir það
hringdi geðlæknir til mín. Mér var svo vísað
til geðhjúkrunarfræðings sem gerði mér
gott. Ég fór líka í iðjuþjálfun. Ástand mitt
skánaði, ég gat gert ýmislegt sem ég gat
ekki áður. Geðhjúkrunarfræðingurinn beitti
dáleiðslu til að fá mig til að slaka á, setti mig
í nálastungur og nýtti þekkingu sína í EMDR,
sem er meðferð við áfallastreituröskun eins
og illa haldnir hermenn fá stundum. Loks fór
ég í iðjuþjálfun.“
Ég hafði fengið mér vinnu á leikskóla og það
gekk. Margt treysti ég mér þó ekki í – var
alltaf á hálfgerðum flótta undan þessum
vandræðum. Réði mig aðeins í vinnu þar
sem ég hafði svigrúm. Í raun stjórnaði
kvíðaröskunin lífi mínu og smám saman
vissi ég hvar öll helstu almenningssalerni
voru í Reykjavík. Ég upplifði skömm vegna
veikinda minna en hafði líklega sjálf mesta
fordóma gagnvart þeim.
Ég vildi ekki segja að ég væri veik heldur
fannst mikilvægt að segja umhverfinu að
ég væri að sinna ýmsum verkefnum. Á
hinn bóginn hef ég gert margt sem ég ella
hefði ekki fengist við ef kvíðinn hefði ekki
hamlað mér. Ég hætti að reykja og drekka
kók, fór í heilsurækt og jóga – hreyfing er
mér brýn nauðsyn. Og ekki má gleyma
hugleiðslunámskeiði sem ég fór á og gerði
mér gott.
Smám saman fékk ég meira sjálfstraust.
Þar kom að ég ákvað að hætta að vinna á
leikskólanum og fara aftur í nám. Í Háskóla
Íslands fór ég í mastersnám í markaðsfræði
og alþjóðaviðskiptum og lauk því árið 2012.
Ég var óneitanlega mjög kvíðin meðan á því
námi stóð.“
Hvað varð til þess að þú
leitaðir til VIRK?
„Eftir námslokin þurfti ég aðstoð við að
takast á við kvíðaröskunina. Ég leitaði á geð-
svið Landspítalans og fékk þar góða aðstoð.
Þar hitti ég mann sem vann sem sjálfboðaliði
við að hjálpa fólki að finna vinnu við sitt hæfi.
Hann fór yfir málin með mér. Við hittumst
af og til í hálft ár, fyrir hans tilstilli fékk ég
vinnu. Þessi maður fór síðar að vinna hjá
VIRK. Á geðsviðinu var mér bent á að ræða
við ráðgjafa VIRK hjá stéttarfélagi mínu svo
ég gæti sótt um endurhæfingarlífeyri meðan
ég væri að vinna í mínum málum. Ég fékk
nöfn á ráðgjöfum sem ég gæti leitað til og
skoðaði myndir af þeim sem til greina komu.
Valdi svo mannesku sem mér fannst góðleg
á myndinni.
Ráðgjafinn minn hjá VIRK sagði mér þegar
ég útskrifaðist að í fyrstu hefði hann talið
að ég þyrfti ekki aðstoð lengi – ég er yfirleitt
róleg og kem vel fyrir. Svo fór þó að ég var í
þessu samstarfi við VIRK í tvö ár. Mér fannst
þetta ótrúlega erfitt í upphafi og grét oft. Ég
var spurð hvers vegna ég væri þarna og
hvað ég vildi að gert væri fyrir mig. Þetta var
mér afar viðkvæmt því ég átti bágt með að
tjá vanda minn – en ég gerði það. „Langar
þig að vinna?“ sagði ráðgjafinn. Ég sagði
eins og var að helst langaði mig upp í rúm
og breiða sængina yfir höfuð.
Á vinnusamningi frá VIRK
Ráðgjafinn fékk fyrir mig sálfræðitíma hjá
Kvíðameðferðarstöðinni hjá sálfræðingi sem
mér líkaði mjög vel við. Fyrst fór ég til hans
einu sinni í viku en smám saman tók að
lengjast tímabilið milli funda okkar. VIRK
lagði út fyrir þessu öllu. Aðstoðin sem ég
fékk hjá VIRK fólst mest í sálfræðitímunum.
Satt að segja hefði ég ekki verið tilbúin í
þetta samstarf fyrr. Svona sjálfsvinna reynir
mikið á.
Ég fékk endurhæfingarlífeyri í eitt og hálft ár.
Þar kom svo að ég fór að fara í atvinnuviðtöl
í samráði við ráðgjafa VIRK. Ég hef vafalaust
verið mjög stíf í þeim viðtölum en ég mætti
þó með mína ferilskrá. Ég fékk vinnu hjá
sjávarútvegsfyrirtæki við skrifstofustörf. Þar
byrjaði ég á vinnusamningi sem VIRK gerði
fyrir mig. Eftir að honum lauk fékk ég vinnu
þarna áfram. Þetta gekk fínt í þrjú ár en þá
fannst mér kominn tími til að breyta. Ég vildi
fá vinnu á mínum forsendum og fékk hana.
Ég vinn núna hjá fyrirtæki sem framleiðir
hollt fæði. Það er skemmtilegt koma í
vinnu þar sem maður er algerlega á eigin
verðleikum, núna finnst mér ekkert mál að
sækja um vinnu.“
Tókst þér að halda heimilis- og
fjölskyldulífi í lagi?
„Já, mér hefur tekist það. Ég missti að vísu
um tíma dálítið samband við vini mína en hef
verið að vinna það upp. Ég gætti þess sem
fyrr sagði að hafa alltaf eitthvað viðfangsefni
sem ég gæti sagt að ég væri að vinna að.
Þannig gat ég komist hjá að viðurkenna að
ég væri heima vegna kvíða. Núna er ég í
jóga og Crossfit, ég set hreyfingu í forgang.
Ég er líka í hugleiðslu, læknir sem ég rakst
einu sinni á benti mér á að slíkt gæti hjálpað
gegn kvíða og ég hef verið í hugleiðslu síðan.
Svo sinni ég auðvitað heimilinu og vinn mína
vinnu samviskusamlega.
Tvö ár eru síðan ég hætti í samstarfinu við
VIRK. Ég veit að ég gæti leitað til ráðgjafans
míns ef ég þyrfti og einnig gæti ég farið í
sálfræðitíma, ég er með tölvupóstfang hjá
sálfræðingnum. En núna líður mér það vel
að ég þarf þess ekki. Ég hef komið lífi mínu í
góðan farveg og gæti þess að halda mér við
efnið. Ýmislegt er ég þó ekki farin að treysta
mér til ennþá – svo sem að standa upp og
halda ræðu. En ég tek æ fleiri áskorunum og
reyni að lifa sem mest í núinu. Það hjálpar
mest að taka slaginn. Ég er þakklát fyrir það
sem lífið hefur fært mér og fyrir það sem fyrir
mig hefur verið gert.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Ég hef komið lífi
mínu í góðan farveg
og gæti þess að
halda mér við efnið.“
53virk.is