Ársrit um starfsendurhæfingu - 2017, Blaðsíða 62
VIRK átti á árinu 2016 áfram gott
samstarf við fagfólk um allt land. Líkt
og fyrr þá var lögð áhersla á að nýta
fagfólk á hverju svæði fyrir sig og þróa
úrræði sem henta þeim fjölbreytta hóp
sem nýta þjónustu VIRK. Tæplega 700
þjónustuaðilar eru í samstarfi við VIRK um
starfsendurhæfingarúrræði.
Um 80 sálfræðingar starfa með VIRK og
veita einstaklingum með geðrænan vanda
einstaklingsviðtöl og hópmeðferðir sem
byggja á gagnreyndum aðferðum. Þá er að
hefjast vinna við að þrepaskipta þjónustu
en það er liður í að tryggja að einstaklingar í
þjónustu VIRK fái sálfræðiþjónustu við hæfi.
Með VIRK starfa 200 sjúkraþjálfarar sem
veita fjölbreytta einstaklingsþjónustu
og hópúrræði fyrir einstaklinga með
stoðkerfisraskanir. Auk þess styðja þeir
einstaklinga sem eru að vinna að því að
gera hreyfingu að hluta af lífsstíl sínum.
Um 100 símenntunaraðilar um allt land
veita námsúrræði sem auka möguleika
einstaklinga á vinnumarkaði og sami fjöldi
þjónustuaðila býður upp á heilsueflandi
úrræði. Undir þann flokk fellur m.a.
líkamsrækt með stuðningi íþróttafræðings,
vatnsleikfimi og ýmis hópúrræði á vegum
fagaðila.
Fjöldi þjónustuaðila veita atvinnutengd
úrræði og má þar helst nefna vinnuprófanir,
úttekt og ráðgjöf og stuðning á vinnustað
við endurkomu til vinnu sem og úrræði
sem miða að því að búa einstaklinga undir
atvinnuleit. Þessi úrræði eru stöðugt í
þróun hjá VIRK og gert er ráð fyrir að aukin
áhersla verði lögð á þau á næstu misserum.
VIRK er með samning við átta
starfsendurhæfingarstöðvar um allt
land en það er liður í því að tryggja að til
staðar sé fagleg þekking og reynsla á
sviði starfsendurhæfingar um allt land. Á
starfsendurhæfingarstöðvum er unnið
markvisst með þær hindranir sem eru til
staðar og samhliða því unnið með styrkleika
einstaklings og þeir tengdir við möguleg
störf á vinnumarkaði.
Kaup VIRK á þjónustu fagaðila hafa aukist
mikið á undanförnum árum en árið 2016
námu þau rúmlega 1.000 milljónum króna
og hækka frá árinu áður eins og sjá má á
ÞJÓNUSTUAÐILAR
Í STARFSENDURHÆFINGU UM ALLT LAND
einstaklinga sem eru í þjónustu starfs-
endurhæfingarstöðva á vegum VIRK og
þau rýnd saman ofan í kjölinn. Fagfólk á
vegum starfsendurhæfingarstöðva og VIRK
fer þá með skipulögðum hætti yfir mál
hvers einstaklings fyrir sig og þau markmið
sem lagt var upp með, metur hvað hefur
áunnist og leggur línur varðandi framhaldið.
Markmið með þessari auknu samvinnu
var meðal annars að auka og bæta upp-
lýsingaflæði á milli endurhæfingaraðila, auka
skilvirkni og fagleg vinnubrögð með það fyrir
augum að bæta þjónustu við einstaklinginn.
Þetta aukna samstarf hefur gefið góða raun
og gert er ráð fyrir að þetta samstarf aukist
og þróist enn frekar á þessu ári.
Mynd 1
Þróun útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu frá fagaðilum
um allt land árin 2010-2016
1.000
900
800
700
600
500
400
300
200
100
0
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016
Útgjöld í
milljónum kr.
Ár
173
267
501
916 900
1.053
70
Mynd 2
Hlutfallsleg skipting útgjalda á árinu 2016
vegna aðkeyptrar þjónustu frá samstarfsaðilum
Sérhæfð starfsendur-
hæfingarúrræði
Nám og námskeið
Heilsuefling / líkamsrækt
Annað
Sálfræðiþjónusta
Sjúkraþjálfun
66%
6%
16%
5%
5%
2%
mynd 1. Þetta skýrist að stærstum hluta
með aukningu hjá samningsbundnum
starfsendurhæfingarstöðvum. Bæði
hefur fleiri einstaklingum með fjölþættan
vanda verið vísað í heildstæð þverfagleg
úrræði en einnig hefur kostnaður vegna
aðkeyptrar þjónustu hækkað í takt við
almennar launahækkanir. Mynd 2 sýnir
svo skiptingu útgjalda milli mismunandi
tegunda af úrræðum á árinu 2016.
Undanfarið ár hefur aukið samstarf milli
allra starfsendurhæfingarstöðva landsins
og VIRK verið í þróun. Samstarfið byggist
á reglulegum þverfaglegum fundum
þar sem farið er markvisst yfir mál
62 virk.is