Ársrit um starfsendurhæfingu - 2017, Side 62

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2017, Side 62
VIRK átti á árinu 2016 áfram gott samstarf við fagfólk um allt land. Líkt og fyrr þá var lögð áhersla á að nýta fagfólk á hverju svæði fyrir sig og þróa úrræði sem henta þeim fjölbreytta hóp sem nýta þjónustu VIRK. Tæplega 700 þjónustuaðilar eru í samstarfi við VIRK um starfsendurhæfingarúrræði. Um 80 sálfræðingar starfa með VIRK og veita einstaklingum með geðrænan vanda einstaklingsviðtöl og hópmeðferðir sem byggja á gagnreyndum aðferðum. Þá er að hefjast vinna við að þrepaskipta þjónustu en það er liður í að tryggja að einstaklingar í þjónustu VIRK fái sálfræðiþjónustu við hæfi. Með VIRK starfa 200 sjúkraþjálfarar sem veita fjölbreytta einstaklingsþjónustu og hópúrræði fyrir einstaklinga með stoðkerfisraskanir. Auk þess styðja þeir einstaklinga sem eru að vinna að því að gera hreyfingu að hluta af lífsstíl sínum. Um 100 símenntunaraðilar um allt land veita námsúrræði sem auka möguleika einstaklinga á vinnumarkaði og sami fjöldi þjónustuaðila býður upp á heilsueflandi úrræði. Undir þann flokk fellur m.a. líkamsrækt með stuðningi íþróttafræðings, vatnsleikfimi og ýmis hópúrræði á vegum fagaðila. Fjöldi þjónustuaðila veita atvinnutengd úrræði og má þar helst nefna vinnuprófanir, úttekt og ráðgjöf og stuðning á vinnustað við endurkomu til vinnu sem og úrræði sem miða að því að búa einstaklinga undir atvinnuleit. Þessi úrræði eru stöðugt í þróun hjá VIRK og gert er ráð fyrir að aukin áhersla verði lögð á þau á næstu misserum. VIRK er með samning við átta starfsendurhæfingarstöðvar um allt land en það er liður í því að tryggja að til staðar sé fagleg þekking og reynsla á sviði starfsendurhæfingar um allt land. Á starfsendurhæfingarstöðvum er unnið markvisst með þær hindranir sem eru til staðar og samhliða því unnið með styrkleika einstaklings og þeir tengdir við möguleg störf á vinnumarkaði. Kaup VIRK á þjónustu fagaðila hafa aukist mikið á undanförnum árum en árið 2016 námu þau rúmlega 1.000 milljónum króna og hækka frá árinu áður eins og sjá má á ÞJÓNUSTUAÐILAR Í STARFSENDURHÆFINGU UM ALLT LAND einstaklinga sem eru í þjónustu starfs- endurhæfingarstöðva á vegum VIRK og þau rýnd saman ofan í kjölinn. Fagfólk á vegum starfsendurhæfingarstöðva og VIRK fer þá með skipulögðum hætti yfir mál hvers einstaklings fyrir sig og þau markmið sem lagt var upp með, metur hvað hefur áunnist og leggur línur varðandi framhaldið. Markmið með þessari auknu samvinnu var meðal annars að auka og bæta upp- lýsingaflæði á milli endurhæfingaraðila, auka skilvirkni og fagleg vinnubrögð með það fyrir augum að bæta þjónustu við einstaklinginn. Þetta aukna samstarf hefur gefið góða raun og gert er ráð fyrir að þetta samstarf aukist og þróist enn frekar á þessu ári. Mynd 1 Þróun útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu frá fagaðilum um allt land árin 2010-2016 1.000 900 800 700 600 500 400 300 200 100 0 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 Útgjöld í milljónum kr. Ár 173 267 501 916 900 1.053 70 Mynd 2 Hlutfallsleg skipting útgjalda á árinu 2016 vegna aðkeyptrar þjónustu frá samstarfsaðilum Sérhæfð starfsendur- hæfingarúrræði Nám og námskeið Heilsuefling / líkamsrækt Annað Sálfræðiþjónusta Sjúkraþjálfun 66% 6% 16% 5% 5% 2% mynd 1. Þetta skýrist að stærstum hluta með aukningu hjá samningsbundnum starfsendurhæfingarstöðvum. Bæði hefur fleiri einstaklingum með fjölþættan vanda verið vísað í heildstæð þverfagleg úrræði en einnig hefur kostnaður vegna aðkeyptrar þjónustu hækkað í takt við almennar launahækkanir. Mynd 2 sýnir svo skiptingu útgjalda milli mismunandi tegunda af úrræðum á árinu 2016. Undanfarið ár hefur aukið samstarf milli allra starfsendurhæfingarstöðva landsins og VIRK verið í þróun. Samstarfið byggist á reglulegum þverfaglegum fundum þar sem farið er markvisst yfir mál 62 virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.