Ársrit um starfsendurhæfingu - 2017, Blaðsíða 70
R
áðstefnan bar yfirskriftina Vinnum saman – Aukin atvinnu-
tenging í starfsendurhæfingu á Norðurlöndunum og var
skipulögð af VIRK í samstarfi við National Centre for Work
and Rehabilitation, Linköpings Universitet, Svíþjóð; AIR-
National Centre for Occupational Rehabilitation, Rauland, Noregi;
Marselisborg Centret, Public Health and Quality Improvement,
Central Region, Danmörku og Finnish Institute of Occupational
Health, Finnlandi.
Boðið var upp á metnaðarfulla dagskrá, aðalfyrirlesara leiðandi í rann-
sóknum og þróun starfsendurhæfingar og fjölda annarra áhugaverðra
fyrirlestra. 260 manns sóttu ráðstefnuna, á annað hundrað erlendir
fyrirlesarar og gestir sóttu Reykjavík heim og á fimmta tug fjölbreyttra
fyrirlestra voru fluttir.
VELHEPPNUÐ OG FJÖLSÓTT
RÁÐSTEFNA
VIRK HÉLT UTAN UM OG SKIPULAGÐI
FJÓRÐU SAMNORRÆNU RÁÐSTEFNUNA
UM STARFSENDURHÆFINGU SEM HALDIN
VAR Í REYKJAVÍK Í FYRRAHAUST.
Frá samnorrænu ráðstefnunni um starfsendurhæfingu sem haldin var á Hilton Nordica Reykjavík í september 2016.
&WORKREHABILITATION
4th NORDIC CONFERENCE IN
REYKJAVÍK, ICELAND, SEPTEMBER 5 –7 2016
70 virk.is