Gríma - 01.09.1933, Side 9

Gríma - 01.09.1933, Side 9
TVÆR FARANDSÖGUR 7 ».Jæja«, sagði kammerráðið, — »ég skal þá segja ykkur drauminn. Mér þótti ég vera kominn upp til himnaríkis. Þar var fallegt gamalmenni, með hvítt hár og skegg, og mikla lyklakippu, sem tók við mér, og ég þóttist vita, að þetta væri Sankti Pétur. »Ja, það var nú gaman að sjá yður hérna, kammerráð Magnúsen«, sagði hann — hann þéraði mig auðvit- að, blessaður postulinn, — »mér var sagt af hús- bóndanum, að lofa sálinni yðar að skreppa hingað upp eftir meðan þér svæfuð, svo þér gætuð fengið dálitla hjartastyrkingu í yðar raunum, því það er nú víst ekki svo mikið sældarbrauð að vera yfir- vald þarna á íslandi«. »Nei, — það er nú eitthvað annað — og það var nú svo sem auðvitað að Drottinn myndi þekkja önn- ur eins ósköp«, sagði eg. »Já, hann þekkir nú það sem minna er«, sagði Sankti-Pétur, »og nú skuluð þér koma með mér, og eg skal sýna yður dálítið í kring«. Nú, nú — eg þarf ekki að orðlengja það; — við fórum nú um margar skrautlegar hallir, og þar voru dýrðlegar vistarverur, og ekki hef eg séð þær fegurri eða neitt líkt því, hvar sem eg hef komið erlendis, og ekki einu sinni hjá blessuðum kóngin- um sjálfum — það sé sagt án þess að blamera Hans Hátign. Og eg sá þar marga ágæta menn og enda framliðna vini mína suma, en Sankti Pétur sagoi mér, að eg gæti ekki enn fengið að tala við þá, eg væri of jarðneskur. En einu tók eg eftir. Eg sá ekki einn einasta prest, hvar sem við komum, og var eg þó að skyggnast eftir þeim. Og loksins gat eg ekki stillt mig um að spyrja Sankti Pétur, hvern- ig á þessu stæði. Hann svaraði; »Nú, yður furöar

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.