Gríma - 01.09.1933, Blaðsíða 53
HULDUKONtJR í GRÁSTEINI 51
mikinn, er hann hafði í hendi, af aleíli í klettinn,
þar sem honum sýndist stúlkan hverfa inn og gekk
síðan leiðar sinnar heim að Kimbastöðum, sem er
næsti bær fyrir sunnan Brennigerði. — Nóttina
eftir dreymdi konu bónda, að til hennar kæmi öldr-
uð kona, mjög reiðuleg á svip, og mælti á þessa
leið: »Illa gerði bóndi þinn í gær, er hann stakk
auga úr dóttur minni saklausri. Get eg eigi látið
þess óhefnt. Læt eg svo um mælt, að hann verði
ólánsmaður upp frá þessu. Máttu og vitja um kú
þína í fyrramálið, því að vera má að þú sjáir þar
einhver merki«. Morguninn eftir, þegar húsfreyja
kom í fjósið, lá ein kýrin dauð á básnum. — En
upp frá þessu þótti flest snúast bónda til óhamingju.
Sagan er rituð eftir almennri sögn, en af gildum
ástæðum er nöfnum sleppt.
21.
Huldubær hjá HallvarSssíeinum.
(Eftir handriti Jóh. Arnar Jónssonar í Árnesi. — Sögn
Marsibilar Benediktsdóttur).
Þegar Benedikt Jónsson (f. 1887), er síðast bjó
í Breiðargerði í Tungusveit, var um tvítugs aldur,
átti hann heima á Eyvindarstöðum 1 Blöndudal. Þá
var það eitt sinn um vetrarkvöld í logndrífu, að
hann var á leiðinni heim til sín frá Eyvindarstaða-
gerði, sem nú heitir Austurhlíð. Var hann langt
kominn á heimleið; lognfjúkið var alldimmt, en
hann þóttist viss að rata, svo kunnugur sem hann