Gríma - 01.09.1933, Blaðsíða 34
32 »KAUPIÐ ÞITT ÉR Á KÓLLAFJARÐARNESI*
9.
„Kaupii fiitt er á Kollaíiaríarnesi".
(Eftir handriti Baldvins Eggertssonar).
Á Kleifum á Selströnd var til heimilis stúlka,
sem Þórdís hét Guðmundsdóttir; var hún þar vinnu-
kona í mörg ár. Svo sagði hún frá síðar, að hún
hefði oft verið að hugsa um það, hvað hún væri
fátæk og umkomulaus og hefði lítið kaup. — Eina
nótt dreymdi Þórdísi, að til hennar kæmi maður,
sem hún þekkti ekki. Hann mælti til hennar: »Láttu
ekki liggja illa á þér; kaupið þitt er á Kollafjarðar-
nesi«. Varð draumurinn eigi lengri.
Um þetta leyti bjó á Kollafjarðarnesi stórbóndí,
sem Einar hét. Missti hann þá konu sína, Ragn-
heiði. Tveim árum eftir það er Þórdísi dreymdi
drauminn, sem fyrr er getið, vistaðist hún að Kolla-
fjarðarnesi og gerðist þar bústýra. Kvæntist Einar
henni nokkru síðar. Eignuðust þau fimm börn: Ás-
geir alþingismann á Þingeyrum, Torfa á Kleifum,
Magnús og Stefán, og dóttur, Ragnheiði að nafni,
sem varð síðari kona Zakaríasar á Heydalsá.
10.
Dyrnar á fjárhtisvepgnum.
(Eftir handriti Hannesar Jónssonar í Hleiðargaröi.
Sögn Sigríðar ólafsdóttur í Hleiðargarði).
Rannveig Þorsteinsdóttir, móðir Hallgríms Kráks-
sonar Siglufjarðarpósts (f 1929), ólst upp hjá for-