Gríma - 01.09.1933, Blaðsíða 62

Gríma - 01.09.1933, Blaðsíða 62
60 SAGAN AF NÆFRAKOLLU 25. Sagan af Næfrakolla. (Eftir handriti Baldvins Jónatanssonar. — Sögn Ásdísar ólafsdóttur). í fymdinni bjug-gu karl og kerling í koti, langt frá öðrum mannabyggðum; þau voru engir útilegu- menn, heldur höfðu þau af frjálsum vilja tekið sér bólfestu þar. Kerling hafði á yngri árum þótt forkunnar-fríð sýnum og verið hin mesta hann- yrðakona; höfðu því margir efnilegir menn leitað ráðahags við hana, en hún neitað öllum. Unni h.ún manni nokkrum snauðum, sem kominn var af heið- arlegu alþýðufólki og hafnaði góðum gjaforðum og miklum arfi til þess að fá að njóta hans. Settust þau að á koti þessu, til þess að forðast glaum heims- ins og aðkast mannanna. Voru hjónin öldruð orðin, er saga þessi byrjar. Þau áttu þrjár gjafvaxta dæt- ur, allar fríðar sýnum og gervilegar; sú elzta hét Ása, önnur Signý, en sú yngsta Helga; bar hún af systrum sínum að vitsmunum, dyggðum og fegurð. Gamla konan kenndi Helgu allar kvenlegar listir, sem bezt hún gat, enda unni hún Helgu mest sinna barna. Vegna þessa öfunduðu eldri systurnar liana svo mjög, að lá hatri næst, en Helga bar það með þolinmæði og stillingu. Þegar fram liðu stundir, urðu margir góðir menn til að biðja hennar, en hún neitaði þeim öllum og barði við æsku sinni; sat hún við sinn keip, þótt ýmsir leituðu liðs hjá foreldrum hennar til kvonbænanna. Ásu og Signýju þótti nú sem Helga stæði þeim í ljósi fyrir gjaforðum og reyndu með ýmsu móti að láta henni það í koll
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Gríma

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.