Gríma - 01.09.1933, Page 16

Gríma - 01.09.1933, Page 16
14 JÓN Á MÖÐRUDAL og útilegumennirnir 2. Jðn á Möðrudal og útilegumennirnir. (Eftir handriti Hannesar Ó. M. Berglands (?) Sögn Jóns blinda Jónsonar). Um og eftir aldamótin 1800 bjó á Möðrudal á Fjöllum bóndi sá, er Jón hét, vaskleikamaður og búhöldur góður. Hann var afkomandi þeirra bræðra, Metúsalems sterka og Sigurðar, sem sagt var að hefðu haft mikil mök við útilegumenn og verið vinir þeirra. — Sonur Jóns var Sigurður, sem lengi bjó á Möðrudal, faðir fyrri konu Stefáns, sem enn býr þar (1907). Það var venja Jóns, að hirða sem mest fé sitt sjálfur, bæði sumar og vetur; þóttu honum smal- arnir gefast illa og vera hirðulausir um starf sitt. — Það var á miðvikudegi í sláttarbyrjun, að Jón gekk austur frá bænum snemma morguns og fór til fjárins; dvaldist honum nokkuð við það, en svo sá griðkona nokkur heiman frá bænum að Jón kom með ærnar og fór óvenju geyst. Heimahestar voru þar í nánd; hljóp Jón til þeirra, handsamaði einn þeirra, brúnskjóttan reiðhest, mesta stólpagrip, og reið hart á eftir ánum heim að kvíunum. Síðan reið hann heim á hlaðið, sótti reiðtygi sín í skemmu og lagði á Skjóna; að því búnu hljóp hann inn í búr, greip nokkuð af brauði og smjöri og stakk í vasa sinn. Kona hans spurði, hvað honum væri á hönd- um, en hann svaraði henni engu, heldur þaut út, stökk á bak Skjóna, hleypti úr hlaði og stefndi í suðaustur. Konunni þóttu þetta kynlegar aðfarir, gekk til baðstofu og sagði fólkinu frá þessu, en öll-

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.