Gríma - 01.09.1933, Page 61

Gríma - 01.09.1933, Page 61
DÝRIÐ I HÓLMLÁTURSTJÖRNINNI 59 aði úr skörinni, og heyrði er svarglaði í ísrauln- ingnum af hreyfingunni í vökinni. Hleypur hann nú og ætlar að komast að tjörninni til þess að at- huga þetta svo sem næst verður komizt, en yfir dá- litla lægð þurfti að fara, áður en komið væri á næstu brún fyrir ofan tjörnina, og þegar þar kom, þá var engan haus að sjá í vökinni og ekkert baul að heyra. En vökin var í miðri tjörninni og ísmuln- ingur allt umhverfis til sannindamerkis. Annars var næturgamall ís á allri tjörninni og hvergi sterk- ari en svo, að einhöggt var niður úr með kollupriki, er Jörundur hafði í hendinni; var því eigi mann- gengt út að vökinni og engri stórri skepnu fært út þangað af landi. Kannaði bóndi þetta nákvæmlega og beið lengi, ef skepna þessi kynni að reka upp aftur höfuðið. En hann varð að fara án þess að verða nokkurs meira vís eða geta ráðið gátuna. Það var gamalt mál, að tjörn þessl væri »botn- laus« og samgangur milli hennar og sjávar; hún er þó góðan kipp frá sjó og liggur miklu hærra en sjávarflötur. Ekki gat eg spurt uppi neinar sögur, er þau munnmæli væri byggð á, en Iíklegt er að þess konar munnmæli stafi þó af einhverjum at- vikum, er mönnum hefur eigi hugsazt önnur skýr- ing á. Þeir Jörundur og Daníel voru engir hjátrú- armenn, og eg er handviss um, að þeir hafa eigi sagt neitt í sögum þessum ósatt viljandi.

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.