Bændablaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 1
24. tölublað 2019 ▯ Fimmtudagur 19. desember ▯ Blað nr. 553 ▯ 25. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Bændur, björgunarmenn og starfsmenn orkufyrirtækja unnu þrekvirki í ofsaverðinu sem gekk yfir landið í síðustu viku: Í myrkri og kulda þegar kerfið brást – Ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála vill að meira tillit sé tekið í kerfinu til heildarhagsmuna samfélaga en sérhagsmuna Viðbrögð stjórnmálamanna við þeim áföllum sem ofsaveður olli sem gekk yfir landið í síðustu viku staðfesta að fjölmargir þættir í öryggiskerfi landsmanna brugð- ust íbúum á stórum landsvæðum. Rafkerfið datt út sem og öryggis- kerfið í fjarskiptum þannig að fólk gat ekki kallað eftir aðstoð. Framganga bænda eins og Magnúsar Ásgeirs Elíassonar á Stóru-Ásgeirsá í Víðidal við að grafa hross úr fönn við ómannlegar aðstæður hefur vakið mikla athygli. Sem og framganga björgunarsveitar- manna og línumanna orkufyrirtækj- anna við að bjarga því sem bjargað varð. Sigurður Ingi Jóhannsson sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra segir að því miður sé það svo að sveitarfélög, samtök og einstak- lingar geti með því að setja ekki inn á skipulag eða með því að kæra tafið og jafnvel komið í veg fyrir lagn- ingu stofnlagna sem nauðsynlegar eru vegna almannaheilla. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðar- og nýsköpun- arráðherra hefur talað á svipuðum nótum. Í september lagði hún fram minnisblað í ríkisstjórn um flutn- ingskerfi raforku, en fjallað var um það mál í Morgunblaðinu í gær. Í umræddu minnisblaði er farið yfir lykilverkefni í flutningskerfi raforku og stöðu þeirra: „Verulegar tafir hafa orðið á mik- ilvægum framkvæmdum í flutnings- kerfi raforku og er staða þeirra ekki í samræmi við vilja Alþingis.“ Kærumál og deilur hafa tafið uppbyggingu stofnlína „Dæmi er um að slík mál hafi unnist fyrir Hæstarétti eða að þau séu kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og þannig komið í veg fyrir lagningu stofnlína sem hafa mikið öryggishlutverk,“ segir Sigurður Ingi. „Slíkt er að sjálfsögðu bagalegt og til að koma í veg fyrir að svona lagað geti komið fyrir þegar um er að ræða meginstofnleiðir í orkukerf- inu, samgöngukerfi eða í fjarskiptum og annað sem skiptir þjóðina sem heild máli væri hægt að skilgreina stofnleiðir með skýrari hætti í lands- skipulagi.“ Sigurður segir að landsskipulag sé samþykkt af Alþingi og að það sé spurning hvort það þyrfti að hafa meira vægi en það hefur í dag. „Vægi landsskipulagsins hefur verið mikið á Norðurlöndunum í lengri tíma. Umræða um lands- skipulag hefur ekki verið hávær hér á landi enda er samspil skipulags- valds ríkis og sveitarfélaga flókið og viðkvæmt. Að sjálfsögðu er þetta tvíeggjað sverð sem verður að fara varlega með. Ég tel að með því að skilgreina meginstofn- og aðalflutningsleiðir inn í landsskipulagi séu hagsmun- ir almennings í landinu og heilu byggðarlaganna best tryggðir. Með sterkri umgjörð landsskipulags væri meiri krafa um að sveitarfélög og einstaklingar litu á heildarhagsmuni byggðarlaga og öryggi þeirra.“ Sigurður Ingi segir að dæmi um slíkt sé lagning byggðalínunnar norðan heiða þar sem hún er ekki inni á skipulagi allra sveitarfélaga á svæðinu. Þegar Sigurður Ingi er spurður hvort möguleiki sé á að leggja raf- línur í jörð til að auka öryggi þeirra, segir hann að tæknin sé sífellt að breytast og möguleikar á slíku að aukast. „Lagning í jörð er klárlega mögu- leiki sem vert er að skoða en enn sem komið er er slíkt tæknilegum takmörkunum háð. Það er ekkert vandamál að leggja strengi með 66 kílóvöttum í jörð, enda um 65% slíkra strengja Rarik þegar komnir í jörðu. Slíkt er erfiðara fyrir Landsnet sem flytur hærri spennu. Fyrr í vikunni var sett inn á Samráðsgátt skýrsla sem umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra fengu óháðan aðila til að gera. Niðurstaða hans er sú að 10% af 132 kílóvolta og 5% af 220 kílóvolta rafmagnsstrengjum geti verið jarðstrengir.“ Kerfið of flókið Sigurður segið að ferlið í kringum lagningu orkulína sé flókið og um- hugsunarvert hversu oft kærur koma fram á síðustu stigum og jafnvel síð- ustu dögum í leyfisveitingaferlinu. „Auðvitað eiga viðhorf allra að liggja fyrr fyrir þannig að hægt sé að taka tillit til allra sjónarmiða og ná sátt um þau. Þannig myndu mál klárast hraðar. Því er ekki fyrir að heilsa í dag.“ /VH/HKr. – Sjá nánar á bls. 2, 4, 24 og 78 Sigurður Ingi Jóhannsson. Frá áramótum verður Búnaðarstofa ekki lengur til 2 28 Fólk með forystufé elskar að tala við forystufé og um forystufé Diskósúpudrottningin tekur við 38 Mynd / Þorsteinn Davíðsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.