Bændablaðið - 19.09.2019, Síða 1
24. tölublað 2019 ▯ Fimmtudagur 19. desember ▯ Blað nr. 553 ▯ 25. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Bændur, björgunarmenn og starfsmenn orkufyrirtækja unnu þrekvirki í ofsaverðinu sem gekk yfir landið í síðustu viku:
Í myrkri og kulda þegar kerfið brást
– Ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála vill að meira tillit sé tekið í kerfinu til heildarhagsmuna samfélaga en sérhagsmuna
Viðbrögð stjórnmálamanna við
þeim áföllum sem ofsaveður olli
sem gekk yfir landið í síðustu viku
staðfesta að fjölmargir þættir í
öryggiskerfi landsmanna brugð-
ust íbúum á stórum landsvæðum.
Rafkerfið datt út sem og öryggis-
kerfið í fjarskiptum þannig að fólk
gat ekki kallað eftir aðstoð.
Framganga bænda eins og
Magnúsar Ásgeirs Elíassonar á
Stóru-Ásgeirsá í Víðidal við að
grafa hross úr fönn við ómannlegar
aðstæður hefur vakið mikla athygli.
Sem og framganga björgunarsveitar-
manna og línumanna orkufyrirtækj-
anna við að bjarga því sem bjargað
varð.
Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra
segir að því miður sé það svo að
sveitarfélög, samtök og einstak-
lingar geti með því að setja ekki inn
á skipulag eða með því að kæra tafið
og jafnvel komið í veg fyrir lagn-
ingu stofnlagna sem nauðsynlegar
eru vegna almannaheilla.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir iðnaðar- og nýsköpun-
arráðherra hefur talað á svipuðum
nótum. Í september lagði hún fram
minnisblað í ríkisstjórn um flutn-
ingskerfi raforku, en fjallað var um
það mál í Morgunblaðinu í gær. Í
umræddu minnisblaði er farið yfir
lykilverkefni í flutningskerfi raforku
og stöðu þeirra:
„Verulegar tafir hafa orðið á mik-
ilvægum framkvæmdum í flutnings-
kerfi raforku og er staða þeirra ekki í
samræmi við vilja Alþingis.“
Kærumál og deilur hafa tafið
uppbyggingu stofnlína
„Dæmi er um að slík mál hafi unnist
fyrir Hæstarétti eða að þau séu kærð
til úrskurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála og þannig komið í
veg fyrir lagningu stofnlína sem
hafa mikið öryggishlutverk,“ segir
Sigurður Ingi.
„Slíkt er að sjálfsögðu bagalegt
og til að koma í veg fyrir að svona
lagað geti komið fyrir þegar um er
að ræða meginstofnleiðir í orkukerf-
inu, samgöngukerfi eða í fjarskiptum
og annað sem skiptir þjóðina sem
heild máli væri hægt að skilgreina
stofnleiðir með skýrari hætti í lands-
skipulagi.“
Sigurður segir að landsskipulag
sé samþykkt af Alþingi og að það
sé spurning hvort það þyrfti að hafa
meira vægi en það hefur í dag.
„Vægi landsskipulagsins hefur
verið mikið á Norðurlöndunum
í lengri tíma. Umræða um lands-
skipulag hefur ekki verið hávær hér
á landi enda er samspil skipulags-
valds ríkis og sveitarfélaga flókið
og viðkvæmt.
Að sjálfsögðu er þetta tvíeggjað
sverð sem verður að fara varlega
með. Ég tel að með því að skilgreina
meginstofn- og aðalflutningsleiðir
inn í landsskipulagi séu hagsmun-
ir almennings í landinu og heilu
byggðarlaganna best tryggðir. Með
sterkri umgjörð landsskipulags væri
meiri krafa um að sveitarfélög og
einstaklingar litu á heildarhagsmuni
byggðarlaga og öryggi þeirra.“
Sigurður Ingi segir að dæmi um
slíkt sé lagning byggðalínunnar
norðan heiða þar sem hún er ekki
inni á skipulagi allra sveitarfélaga
á svæðinu.
Þegar Sigurður Ingi er spurður
hvort möguleiki sé á að leggja raf-
línur í jörð til að auka öryggi þeirra,
segir hann að tæknin sé sífellt að
breytast og möguleikar á slíku að
aukast.
„Lagning í jörð er klárlega mögu-
leiki sem vert er að skoða en enn
sem komið er er slíkt tæknilegum
takmörkunum háð. Það er ekkert
vandamál að leggja strengi með
66 kílóvöttum í jörð, enda um 65%
slíkra strengja Rarik þegar komnir
í jörðu.
Slíkt er erfiðara fyrir Landsnet
sem flytur hærri spennu. Fyrr í
vikunni var sett inn á Samráðsgátt
skýrsla sem umhverfisráðherra og
iðnaðarráðherra fengu óháðan aðila
til að gera. Niðurstaða hans er sú að
10% af 132 kílóvolta og 5% af 220
kílóvolta rafmagnsstrengjum geti
verið jarðstrengir.“
Kerfið of flókið
Sigurður segið að ferlið í kringum
lagningu orkulína sé flókið og um-
hugsunarvert hversu oft kærur koma
fram á síðustu stigum og jafnvel síð-
ustu dögum í leyfisveitingaferlinu.
„Auðvitað eiga viðhorf allra að
liggja fyrr fyrir þannig að hægt sé
að taka tillit til allra sjónarmiða og
ná sátt um þau. Þannig myndu mál
klárast hraðar. Því er ekki fyrir að
heilsa í dag.“ /VH/HKr.
– Sjá nánar á bls. 2, 4, 24 og 78
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Frá áramótum verður
Búnaðarstofa ekki lengur til
2 28
Fólk með forystufé elskar að tala
við forystufé og um forystufé
Diskósúpudrottningin
tekur við
38
Mynd / Þorsteinn Davíðsson