Bændablaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 68

Bændablaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 68
68 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 2019 Barnaþrautir Öðruvísi jól Jólin eru sá árstími þegar alls konar kynjaverur fara á stjá, jólasveinarnir koma til byggða, álfar flytja búferlum og tröll halda veislur. Það er því ekki hættulaust að vera einn á ferli á þessum tíma ef mark er tekið á þjóðtrú sem tengist jólunum. Sumir tengja jólin fæðingu Krists aðrir halda upp á þau til að fagna því að sólin fer að hækka á lofti og börnin bíða spennt eftir því að fá í skóinn. Fyrir flesta eru jól og áramót skemmtilegur tími þegar fjölskyldan kemur saman og gerir sér glaðan dag. Vinir og vandamenn gefa hver öðrum gjafir og gleyma gömlum deilumálum, að minnsta kosti um stundarsakir. Sumir tengja jólin fæðingu Krists, aðrir halda upp á þau til að fagna því að sólin fer að hækka á lofti og börnin bíða spennt eftir því að fá í skóinn. Drykkja var þar mjög óstjórnleg Í Bárðar sögu Snæfellsáss segir frá allsvakalegu jólaboði sem Hít tröllkona stóð fyrir í Hundahelli í Hítardal. Til veislunnar bauð hún meðal annarra Bárði Snæfellsás sem var af risakyni í föðurætt, Gesti syni hans og mörgum tröllum. Þar var Surtur af Hellisfitjum og Jóra úr Jórukleif, Kolbjörn í Breiðdalsbotnum, Glámur og Ámur úr Miðfjarðarnesbjörgum og Guðlaugur úr Guðlaugshöfða. Allt góð og gild þurs og drykkjutröll. „Voru þá borð upp tekin og matur á borinn, heldur stórkost- legur. Drykkja var þar mjög óstjórnleg, svo að allir urðu þar ginntir. En er máltíð var úti, spurðu þursar og Hít, hvað Bárður vildi til gamans hafa. Bárður bað þá fara til skinnleiks. Stóðu þeir þá upp Bárður og Surtur, Kol- A björn, Guðlaugur og Gljúfra-Geir, og höfðu hornskinnaleik; var þá ekki svo lítið um þá, - þó var auðséð að Bárður var sterkastur, þó hann væri gamall. Bjarnfeld einn stóran höfðu þeir fyrir skinn, og vöfðu hann saman og köstuðu honum á milli sín fjórir, en einn var úti og skildi sá ná. Ekki var gott að vera fyrir hrundningum þeirra. Flestir stóðu uppi á bekkjum nema Gestur, hann sat kyrr á rúmi sínu. En þá er Kolbjörn var úti, ætlar hann að ná skinni fyrir Bárði og hljóp heldur snarlega. En er Gestur sá það, skaut hann fætinum fyrir Kolbjörn, svo þursinn hraut þegar út á bergið svo hart, að brotnaði í honum nefið, - féll þá blóð um hann allan. Varð þá upphlaup og hrundningar heldur sterklegar; vildi Kolbjörn hefna sín á Gesti.“ Gandreiðin Jólin eru magnaður tími og svo virðist sem öll náttúrulögmál snúist á hvolf. Á aðfangadagskvöldi jóla er drengur, sem hafði ráðist til starfa á prestsjörð, úti í hesthúsi að kemba og hirða eldishesta prestsins. Hann veit ekki fyrr til en kona prests- ins vindur þar inn og gefur hún sig á tal við dreng um ýmis mál- efni. Þegar minnst varði dregur hún beisli undan svuntu sinni og leggur við drenginn og fylgir því mikið töfraafl. Drengurinn leyfir prestkonunni að fara á bak sér og tekur hann hann svo á loft eins og fuglinn fljúgandi. Fer hann yfir fjöll og dali, kletta og klungur og hvað, sem fyrir er með prestkonuna á bakinu. Meðan á þessu stendur þykir drengnum eins og hann vaði reyk. Dansferðir í mannahíbýlum Álfar eru mikið á ferð um jólin. Bæði er skemmtanatími þeirra mestur um það leyti ársins því þá halda þeir mikið af samsætum og veislum með hljóðfæraslætti og dansi, ýmist í mannahíbýlum eða i álfabyggðum. Auk þess eru hjá þeim fardagar um nýárið. Stundum hafa mennskir ratað í álfaveislur á jólanótt eins og segir í sögunni Álfar hjá Víðivöllum. Í klöppum hjá Víðivöllum sá maður nokkur á jólanóttina stórt hús allt ljósum prýtt. Hann gekk þar inn og fékk góðar viðtökur og ágæt- an beina. Morguninn eftir er hann vaknaði lá hann á berum klettunum og sá hvorki veður né reyk eftir af stóra húsinu. Sögur um jólagleði álfa hefjast iðulega á að heimilisfólkið er á leið til kirkju og að einhver einn, maður eða kona, verður eftir til að gæta bæjarins. Þegar líður fram á kvöld koma álfarnir inn í bæinn og halda skemmtun og sá sem heima situr missir vitið eða deyr. Þeir sem halda glórunni og lifa álfageimið af í fyrsta sinn missa þó yfirleitt vitið eða lífið eftir að djammið hefur endurtekið sig í tvö eða þrjú ár. Jóladansinn í Hruna Eins og sannast hefur eru það fleiri en álfar og tröll sem hafa gaman af því að skemmta sér um jólin. Í Hruna í Árnessýslu var prestur sem mjög var gefinn fyrir skemmtanir og gleðskap. Ein jólin messaði hann ekki þegar sóknarfólkið kom til kirkju heldur hélt dansleik með drykkju, spilum og öðrum ósæmilegum skemmtunum langt fram á nótt. Presturinn átti aldraða móður sem hét Una og var mjög á móti háttalagi sonar síns og bað hann oft um að huga frekar að guði en skemmtanahaldi en hann hirti ekkert um það og hélt upp- teknum hætti. Eina jólanótt var presturinn lengur að en venja var og bað móðir hans hann í þrígang að hætta en hann sagði ávallt: „Einn hring enn, móðir mín.“ Þegar Una gamla gengur frá syni sínum í þriðja sinn heyrir hún kveðið utan við kirkjuna: Hátt lætur í Hruna Hirðir þangað bruna; svo skal dansinn duna að drengir megi það muna. Enn er hún Una og enn er hún Una. Þegar kerlingin kom út sá hún mann sem hún taldi vera djöfulinn sjálfan. Una söðlaði því hest og reið allt hvað af tók til næsta prestsseturs. Þegar hún kom aftur að Hruna ásamt prestinum og fleiri mönnum var kirkjan og kirkjugarðurinn sokkinn með fólk- inu í og heyrðist ýlfur og gaul niðri í jörðinni. Jólasveinninn krossfestur Þó að sögurnar hér að framan séu gamlar er ekki þar með sagt að nýjar þjóðsögur verði ekki til. Fyrir nokkrum árum fór á kreik saga sem segir frá vilja Austurlandabúa til að gera túristum frá Vesturlöndum til hæfis um jólin. Íbúar þessara landa eru fæstir kristnir og þekking þeirra á jólunum oft takmörkuð. Aðstandendur stórrar verslunar- miðstöðvar í Austurlöndum tóku sig til og létu smíða fyrir sig margra metra háan kross fyrir jólin. Í stað Krists þótti þeim viðeigandi að negla bros- andi jólasvein á krossinn og hengja hann upp til að geðjast viðskiptavinum sínum. Að sögn kunnugra ganga Japanar allra þjóða lengst í að markaðssetja jólin. Þar í landi er ekki óhugsandi í desember að sjá ungar og eggjandi konur í nunnubúningi syngja auglýs- ingar við vestræn jólalög og að fólk sendi jólakort sem sýna Maríu mey lyfta sér til flugs á kústi, umkringda jólaálfum sem hafa flösku af saki sér við munn. /VH Þar var Surtur af Hellisfitjum og Jóra úr Jórukleif, Kolbjörn í Breiðdalsbotnum, Glámur og Ámur úr Miðfjarðarnesbjörgum og Guðlaugur úr Guðlaugshöfða. Í desember má sjá ungar og eggjandi konur syngja auglýsingar við vestræn jólalög. Posted: January 21, 2008 Copyright © 2008 ThinkFun Inc. All Rights Reserved. Permission is granted for personal use only. This puzzle may not be duplicated for personal profit. Um jól og áramót er mjög til siðs að grípa í spil, lesa bækur eða leysa þrautir af ýmsum toga. Eins og áður býður Bændablaðið því upp á þrautir til að glíma við fyrir jólin eftir snillinginn Braga Halldórsson. Fyrsta barnaþrautin sem full- orðnum er að sjálfsögðu líka heim- ilt að glíma við er tiltölulega einfalt púsluspil. Önnur þrautin er kann- nski ekki alveg jafn auðveld og hún sýnist. Þriðja þrautin reynir dálítið á skynjun heilans. Lausnirnar er að finna á bls. 74, en bannað er að kíkja áður en reynt er við þrautirnar. Jólakrossgáta Bændablaðsins er svo vegleg að vanda. Lausnin á henni verður birt í fyrsta blaði ársins 2020 sem væntanlegt er í janúar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.