Bændablaðið - 19.09.2019, Síða 68
68 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 2019
Barnaþrautir
Öðruvísi jól
Jólin eru sá árstími þegar alls
konar kynjaverur fara á stjá,
jólasveinarnir koma til byggða,
álfar flytja búferlum og tröll halda
veislur. Það er því ekki hættulaust
að vera einn á ferli á þessum tíma
ef mark er tekið á þjóðtrú sem
tengist jólunum.
Sumir tengja jólin fæðingu
Krists aðrir halda upp á þau til að
fagna því að sólin fer að hækka
á lofti og börnin bíða spennt eftir
því að fá í skóinn. Fyrir flesta eru
jól og áramót skemmtilegur tími
þegar fjölskyldan kemur saman
og gerir sér glaðan dag. Vinir og
vandamenn gefa hver öðrum gjafir
og gleyma gömlum deilumálum,
að minnsta kosti um stundarsakir.
Sumir tengja jólin fæðingu
Krists, aðrir halda upp á þau til að
fagna því að sólin fer að hækka á
lofti og börnin bíða spennt eftir því
að fá í skóinn.
Drykkja var þar mjög óstjórnleg
Í Bárðar sögu Snæfellsáss segir
frá allsvakalegu jólaboði sem Hít
tröllkona stóð fyrir í Hundahelli í
Hítardal. Til veislunnar bauð hún
meðal annarra Bárði Snæfellsás
sem var af risakyni í föðurætt, Gesti
syni hans og mörgum tröllum.
Þar var Surtur af Hellisfitjum
og Jóra úr Jórukleif, Kolbjörn
í Breiðdalsbotnum, Glámur og
Ámur úr Miðfjarðarnesbjörgum og
Guðlaugur úr Guðlaugshöfða. Allt
góð og gild þurs og drykkjutröll.
„Voru þá borð upp tekin og
matur á borinn, heldur stórkost-
legur. Drykkja var þar mjög
óstjórnleg, svo að allir urðu þar
ginntir. En er máltíð var úti, spurðu
þursar og Hít, hvað Bárður vildi til
gamans hafa. Bárður bað þá fara
til skinnleiks. Stóðu þeir þá upp
Bárður og Surtur, Kol- A björn,
Guðlaugur og Gljúfra-Geir, og
höfðu hornskinnaleik; var þá ekki
svo lítið um þá, - þó var auðséð
að Bárður var sterkastur, þó hann
væri gamall. Bjarnfeld einn stóran
höfðu þeir fyrir skinn, og vöfðu
hann saman og köstuðu honum á
milli sín fjórir, en einn var úti og
skildi sá ná. Ekki var gott að vera
fyrir hrundningum þeirra. Flestir
stóðu uppi á bekkjum nema Gestur,
hann sat kyrr á rúmi sínu. En þá er
Kolbjörn var úti, ætlar hann að ná
skinni fyrir Bárði og hljóp heldur
snarlega. En er Gestur sá það, skaut
hann fætinum fyrir Kolbjörn, svo
þursinn hraut þegar út á bergið svo
hart, að brotnaði í honum nefið, -
féll þá blóð um hann allan. Varð þá
upphlaup og hrundningar heldur
sterklegar; vildi Kolbjörn hefna
sín á Gesti.“
Gandreiðin
Jólin eru magnaður tími og svo
virðist sem öll náttúrulögmál snúist
á hvolf.
Á aðfangadagskvöldi jóla er
drengur, sem hafði ráðist til starfa
á prestsjörð, úti í hesthúsi að kemba
og hirða eldishesta prestsins. Hann
veit ekki fyrr til en kona prests-
ins vindur þar inn og gefur hún
sig á tal við dreng um ýmis mál-
efni. Þegar minnst varði dregur
hún beisli undan svuntu sinni og
leggur við drenginn og fylgir því
mikið töfraafl. Drengurinn leyfir
prestkonunni að fara á bak sér og
tekur hann hann svo á loft eins og
fuglinn fljúgandi. Fer hann yfir
fjöll og dali, kletta og klungur og
hvað, sem fyrir er með prestkonuna
á bakinu. Meðan á þessu stendur
þykir drengnum eins og hann vaði
reyk.
Dansferðir í mannahíbýlum
Álfar eru mikið á ferð um jólin.
Bæði er skemmtanatími þeirra
mestur um það leyti ársins því þá
halda þeir mikið af samsætum og
veislum með hljóðfæraslætti og
dansi, ýmist í mannahíbýlum eða
i álfabyggðum. Auk þess eru hjá
þeim fardagar um nýárið.
Stundum hafa mennskir ratað í
álfaveislur á jólanótt eins og segir
í sögunni Álfar hjá Víðivöllum. Í
klöppum hjá Víðivöllum sá maður
nokkur á jólanóttina stórt hús allt
ljósum prýtt. Hann gekk þar inn
og fékk góðar viðtökur og ágæt-
an beina. Morguninn eftir er hann
vaknaði lá hann á berum klettunum
og sá hvorki veður né reyk eftir af
stóra húsinu.
Sögur um jólagleði álfa hefjast
iðulega á að heimilisfólkið er á leið
til kirkju og að einhver einn, maður
eða kona, verður eftir til að gæta
bæjarins. Þegar líður fram á kvöld
koma álfarnir inn í bæinn og halda
skemmtun og sá sem heima situr
missir vitið eða deyr. Þeir sem halda
glórunni og lifa álfageimið af í fyrsta
sinn missa þó yfirleitt vitið eða lífið
eftir að djammið hefur endurtekið
sig í tvö eða þrjú ár.
Jóladansinn í Hruna
Eins og sannast hefur eru það fleiri en
álfar og tröll sem hafa gaman af því
að skemmta sér um jólin. Í Hruna í
Árnessýslu var prestur sem mjög var
gefinn fyrir skemmtanir og gleðskap.
Ein jólin messaði hann ekki þegar
sóknarfólkið kom til kirkju heldur
hélt dansleik með drykkju, spilum
og öðrum ósæmilegum skemmtunum
langt fram á nótt.
Presturinn átti aldraða móður sem
hét Una og var mjög á móti háttalagi
sonar síns og bað hann oft um að huga
frekar að guði en skemmtanahaldi en
hann hirti ekkert um það og hélt upp-
teknum hætti.
Eina jólanótt var presturinn lengur
að en venja var og bað móðir hans
hann í þrígang að hætta en hann sagði
ávallt: „Einn hring enn, móðir mín.“
Þegar Una gamla gengur frá syni
sínum í þriðja sinn heyrir hún kveðið
utan við kirkjuna:
Hátt lætur í Hruna
Hirðir þangað bruna;
svo skal dansinn duna
að drengir megi það muna.
Enn er hún Una
og enn er hún Una.
Þegar kerlingin kom út sá hún mann
sem hún taldi vera djöfulinn sjálfan.
Una söðlaði því hest og reið allt hvað
af tók til næsta prestsseturs. Þegar hún
kom aftur að Hruna ásamt prestinum
og fleiri mönnum var kirkjan og
kirkjugarðurinn sokkinn með fólk-
inu í og heyrðist ýlfur og gaul niðri
í jörðinni.
Jólasveinninn krossfestur
Þó að sögurnar hér að framan séu
gamlar er ekki þar með sagt að nýjar
þjóðsögur verði ekki til.
Fyrir nokkrum árum fór á kreik
saga sem segir frá vilja Austurlandabúa
til að gera túristum frá Vesturlöndum
til hæfis um jólin. Íbúar þessara landa
eru fæstir kristnir og þekking þeirra á
jólunum oft takmörkuð.
Aðstandendur stórrar verslunar-
miðstöðvar í Austurlöndum tóku sig
til og létu smíða fyrir sig margra metra
háan kross fyrir jólin. Í stað Krists
þótti þeim viðeigandi að negla bros-
andi jólasvein á krossinn og hengja
hann upp til að geðjast viðskiptavinum
sínum.
Að sögn kunnugra ganga Japanar
allra þjóða lengst í að markaðssetja
jólin. Þar í landi er ekki óhugsandi
í desember að sjá ungar og eggjandi
konur í nunnubúningi syngja auglýs-
ingar við vestræn jólalög og að fólk
sendi jólakort sem sýna Maríu mey
lyfta sér til flugs á kústi, umkringda
jólaálfum sem hafa flösku af saki sér
við munn. /VH
Þar var Surtur af Hellisfitjum og Jóra úr Jórukleif, Kolbjörn í Breiðdalsbotnum,
Glámur og Ámur úr Miðfjarðarnesbjörgum og Guðlaugur úr Guðlaugshöfða.
Í desember má sjá ungar og eggjandi konur syngja auglýsingar við vestræn
jólalög.
Posted: January 21, 2008
Copyright © 2008 ThinkFun Inc. All Rights Reserved.
Permission is granted for personal use only.
This puzzle may not be duplicated for personal profit.
Um jól og áramót er mjög til
siðs að grípa í spil, lesa bækur
eða leysa þrautir af ýmsum toga.
Eins og áður býður Bændablaðið
því upp á þrautir til að glíma við
fyrir jólin eftir snillinginn Braga
Halldórsson.
Fyrsta barnaþrautin sem full-
orðnum er að sjálfsögðu líka heim-
ilt að glíma við er tiltölulega einfalt
púsluspil. Önnur þrautin er kann-
nski ekki alveg jafn auðveld og hún
sýnist. Þriðja þrautin reynir dálítið
á skynjun heilans. Lausnirnar er
að finna á bls. 74, en bannað er að
kíkja áður en reynt er við þrautirnar.
Jólakrossgáta Bændablaðsins
er svo vegleg að vanda. Lausnin
á henni verður birt í fyrsta blaði
ársins 2020 sem væntanlegt er í
janúar.