Bændablaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 73

Bændablaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 73
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 2019 73 Drops Sky er dúnmjúkt og létt garn sem stingur ekki. Peysan Agnes er prjónuð ofan frá og niður með gatamynstri á berustykki. Opin útgáfa af peysunni sem og útgáfur í fullorðinsstærð má finna á garnstudio.com. Tilboðsdögum á Alpaca lýkur 31. desember. Stærðir: 3/4 (5/6) 7/8 (9/10) 11/12 ára Garn: Drops Sky (fæst í Handverkskúnst) - Ljósgallabuxnablár nr 13: 150 (150) 200 (200) 200 g Prjónar: Sokka- og hringprjónn 40 og 60 cm, nr 4 – eða sú prjónastærð sem þarf til að 21 lykkja á breidd með sléttu prjóni = 10 cm. Garðaprjón (prjónað í hring): *1 umferð slétt, 1 umferð brugðin*. Mynstur: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Útaukning-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 4,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúið slétt svo að ekki myndist gat. Útaukning-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið uppá prjóninn = aukið út um 2 lykkjur. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúið slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju lykkjurnar slétt. Úrtaka (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir að prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir = fækkað um 2 lykkjur. Berstykki: Fitjið upp 62 (66) 70 (76) 82 lykkjur, tengið í hring og prjónið 4 umferðir garðaprjón – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16 (18) 20 (22) 23 lykkjur jafnt yfir umferð SJÁ ÚTAUKNING-1 = 78 (84) 90 (98) 105 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki í þessa umferð, héðan er nú mælt. Í næstu umferð er prjónað eftir mynsturteikningu A.1, (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð) alls 13 (14) 15 (14) 15 sinnum í umferð. Þegar mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð eru 208 (224) 240 (252) 270 lykkjur á prjóninum. Í næstu umferð er aukið út um 4 (4) 2 (2) 4 lykkjur jafnt yfir umferðina = 212 (228) 242 (254) 274 lykkjur. Prjónið slétt þar til stykkið mælist ca 15 (15) 16 (17) 18 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 62 (66) 70 (74) 75 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 44 (48) 51 (53) 62 lykkjur á band (= ermi), fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, prjónið 62 (66) 70 (74) 75 lykkjur (= framstykki), setjið síðustu 44 (48) 51 (53) 62 lykkjur á band (= ermi), fitjið upp 6 lykkjur undir ermi. Fram- og bakstykki: Nú eru 136 (144) 152 (160) 162 lykkjur í umferð. Héðan er nú mælt. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli lykkjanna 6 sem fitjaðar voru upp. Prjónið slétt í hring. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) sjá útaukning-2. Endurtakið útaukningu með 3 (4½) 5½ (6½) 7½ cm millibili alls 3 sinnum = 148 (156) 164 (172) 174 lykkjur í umferð. Prjónið slétt þar til stykkið mælist ca 15 (17) 20 (23) 26 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 2 cm til loka). Prjónið garðaprjón 2 cm. Fellið laust af. Ermi: Setjið til af bandi á yfir á stuttan hringprjón/ sokkaprjóna nr 4, prjónið upp 1 nýja lykkju í lykkjurnar 6 sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki (= 50 (54) 57 (59) 68 lykkjur). Setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 6 lykkjur. Prjónið slétt í hring þar til ermin mælist 3 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Sjá úrtaka. Prjónið áfram slétt og endurtakið úrtöku með 4 (4) 4 (4) 3½ cm millibili alls 5 (6) 7 (8) 10 sinnum = 40 (42) 43 (43) 48 lykkjur á prjóninum. Prjónið slétt þar til ermin mælist 23 (28) 31 (35) 38 cm. Prjónið garðaprjón 2 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina alveg eins. Gangið frá endum, þvoið flíkina og leggið til þerris. Prjónakveðja, mæðgurnar í Handverkskúnst. www.garn.is HANNYRÐAHORNIÐ Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Létt Þung Miðlungs 2 1 4 6 3 3 8 1 3 5 2 7 7 5 9 2 8 6 4 9 6 3 5 6 2 3 4 7 1 1 8 5 9 7 2 7 5 6 9 1 8 Þyngst 5 2 7 7 3 5 1 4 1 7 2 8 3 5 4 9 1 8 9 3 2 9 6 7 4 9 3 1 9 4 6 5 7 6 2 8 9 5 3 4 3 1 2 2 3 8 6 1 3 4 7 9 3 8 3 2 5 1 6 7 8 3 9 8 7 8 1 7 2 5 8 6 8 2 5 9 3 4 4 1 6 5 6 3 9 Ætla að vera með ömmu um jólin og baka með henni FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Gylfi er 7 ára fjörugur, glaður og hugmyndaríkur strákur sem vill að öllum líði vel. Sjaldan er lognmolla í kringum hann þar sem hann býr yfir hafsjó af sögum sem vilja brjótast út. Nafn: Gylfi Björnsson. Aldur: Sjö ára. Stjörnumerki: Sporðdreki. Búseta: Grenivík. Skóli: Grenivíkurskóli. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Allt saman, mest skemmtilegt í stærðfræði. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundur. Uppáhaldsmatur: Hamborgari. Uppáhaldshljómsveit: Ég veit það ekki en uppáhaldslagið mitt er Ástin á sér stað. Uppáhaldskvikmynd: Alvin og íkornarnir. Fyrsta minning þín? Þegar ég hitti afa Tóta. Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Æfi fótbolta með Magna og langar að æfa á píanó. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Ég ætla að verða vísindamaður. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Ekki neitt. Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt um jólin? Vera með ömmu, baka með ömmu og vera með allri fjölskyldunni. Næst » Gylfi skorar á Anítu Ingvarsdóttur að svara næst. Peysan Agnes
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.