Bændablaðið - 19.09.2019, Síða 73
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 2019 73
Drops Sky er dúnmjúkt og létt
garn sem stingur ekki. Peysan
Agnes er prjónuð ofan frá og niður
með gatamynstri á berustykki.
Opin útgáfa af peysunni sem og
útgáfur í fullorðinsstærð má finna
á garnstudio.com. Tilboðsdögum á
Alpaca lýkur 31. desember.
Stærðir: 3/4 (5/6) 7/8 (9/10) 11/12 ára
Garn: Drops Sky (fæst í Handverkskúnst)
- Ljósgallabuxnablár nr 13: 150 (150) 200 (200) 200 g
Prjónar: Sokka- og hringprjónn 40 og 60 cm, nr
4 – eða sú prjónastærð sem þarf til að 21 lykkja á
breidd með sléttu prjóni = 10 cm.
Garðaprjón (prjónað í hring): *1 umferð slétt, 1
umferð brugðin*.
Mynstur: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu
mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð
frá réttu.
Útaukning-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út
hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð
(t.d. 72 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem
á að gera (t.d. 17) = 4,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá
prjóninn á eftir 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er
uppslátturinn prjónaður snúið slétt svo að ekki
myndist gat.
Útaukning-2 (á við um hliðar á fram- og
bakstykki): Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki,
sláið uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt
(prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja
lykkja), sláið uppá prjóninn = aukið út um 2 lykkjur. Í
næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúið slétt
svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju lykkjurnar
slétt.
Úrtaka (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju
hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til
3 lykkjur eru eftir að prjónamerki, prjónið 2 lykkjur
slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr
á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins
og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið
óprjónuðu lykkjunni yfir = fækkað um 2 lykkjur.
Berstykki: Fitjið upp 62 (66) 70 (76) 82 lykkjur,
tengið í hring og prjónið 4 umferðir garðaprjón
– sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt
þar sem aukið er út um 16 (18) 20 (22) 23 lykkjur
jafnt yfir umferð SJÁ ÚTAUKNING-1 = 78 (84) 90 (98)
105 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið.
Setjið eitt prjónamerki í þessa umferð, héðan
er nú mælt. Í næstu umferð er prjónað eftir
mynsturteikningu A.1, (veljið mynsturteikningu fyrir
rétta stærð) alls 13 (14) 15 (14) 15 sinnum í umferð.
Þegar mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð eru
208 (224) 240 (252) 270 lykkjur á prjóninum. Í næstu
umferð er aukið út um 4 (4) 2 (2) 4 lykkjur jafnt yfir
umferðina = 212 (228) 242 (254) 274 lykkjur.
Prjónið slétt þar til stykkið mælist ca 15 (15) 16 (17)
18 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð
þannig: Prjónið 62 (66) 70 (74) 75 lykkjur (=
bakstykki), setjið næstu 44 (48) 51 (53) 62 lykkjur
á band (= ermi), fitjið upp 6 lykkjur undir ermi,
prjónið 62 (66) 70 (74) 75 lykkjur (= framstykki),
setjið síðustu 44 (48) 51 (53) 62 lykkjur á band (=
ermi), fitjið upp 6 lykkjur undir ermi.
Fram- og bakstykki: Nú eru 136 (144) 152 (160)
162 lykkjur í umferð. Héðan er nú mælt. Setjið 1
prjónamerki mitt á milli lykkjanna 6 sem fitjaðar
voru upp. Prjónið slétt í hring. Þegar stykkið mælist
3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort
prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) sjá útaukning-2.
Endurtakið útaukningu með 3 (4½) 5½ (6½) 7½
cm millibili alls 3 sinnum = 148 (156) 164 (172) 174
lykkjur í umferð. Prjónið slétt þar til stykkið mælist
ca 15 (17) 20 (23) 26 cm (eða að óskaðri lengd, nú
eru eftir ca 2 cm til loka). Prjónið garðaprjón 2 cm.
Fellið laust af.
Ermi: Setjið til af bandi á yfir á stuttan hringprjón/
sokkaprjóna nr 4, prjónið upp 1 nýja lykkju í lykkjurnar
6 sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki (= 50
(54) 57 (59) 68 lykkjur). Setjið 1 prjónamerki mitt
í þessar 6 lykkjur. Prjónið slétt í hring þar til ermin
mælist 3 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin
við prjónamerki. Sjá úrtaka. Prjónið áfram slétt og
endurtakið úrtöku með 4 (4) 4 (4) 3½ cm millibili
alls 5 (6) 7 (8) 10 sinnum = 40 (42) 43 (43) 48 lykkjur
á prjóninum. Prjónið slétt þar til ermin mælist 23
(28) 31 (35) 38 cm. Prjónið garðaprjón 2 cm. Fellið
af. Prjónið hina ermina alveg eins.
Gangið frá endum, þvoið flíkina og leggið til þerris.
Prjónakveðja, mæðgurnar í Handverkskúnst.
www.garn.is
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
2 1 4 6 3
3 8
1 3 5 2 7
7 5 9 2 8 6
4 9 6 3 5
6 2 3 4 7 1
1 8 5 9 7
2 7
5 6 9 1 8
Þyngst
5 2 7
7 3 5 1 4
1 7 2 8
3 5 4 9
1 8 9 3
2 9 6 7
4 9 3 1
9 4 6 5 7
6 2 8
9 5
3
4 3 1 2
2 3 8 6
1 3 4
7 9 3 8
3 2 5 1
6
7 8
3 9 8
7 8 1
7
2 5 8
6 8 2 5
9 3 4
4
1 6 5
6 3 9
Ætla að vera með ömmu um
jólin og baka með henni
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Gylfi er 7 ára fjörugur, glaður og
hugmyndaríkur strákur sem vill
að öllum líði vel.
Sjaldan er lognmolla í kringum
hann þar sem hann býr yfir hafsjó
af sögum sem vilja brjótast út.
Nafn: Gylfi Björnsson.
Aldur: Sjö ára.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Búseta: Grenivík.
Skóli: Grenivíkurskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast
í skólanum? Allt saman, mest
skemmtilegt í stærðfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur.
Uppáhaldsmatur: Hamborgari.
Uppáhaldshljómsveit: Ég veit það
ekki en uppáhaldslagið mitt er Ástin
á sér stað.
Uppáhaldskvikmynd: Alvin og
íkornarnir.
Fyrsta minning þín? Þegar ég hitti
afa Tóta.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Æfi fótbolta með Magna
og langar að æfa á píanó.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Ég ætla að verða
vísindamaður.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Ekki neitt.
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt
um jólin? Vera með ömmu, baka með
ömmu og vera með allri fjölskyldunni.
Næst » Gylfi skorar á Anítu
Ingvarsdóttur að svara næst.
Peysan Agnes