Bændablaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 2019 41
Næst var gengið meðfram fjölda
innlendra fjölærra plantna og þykk-
blöðunga af þurrari svæðum lands-
ins. Sumar af þessum plöntum voru
í blóma og komu blóm þeirra og
ættkvíslarnöfn kunnuglega fyrir
sjónir þrátt fyrir að tegundirnar
væru flestar framandi.
Í trjásafninu þekkti ég aftur á
móti engar af þeim 450 tegundum
sem þar eru en mikið var gaman að
ganga fyrst um trjásafnið og síðan
að skoða trjákrónurnar, lögun þeirra
og litbrigði ofan frá og sjá hvernig
trén uxu á mismunandi hátt til að ná
að fanga sem mest af sólarljósinu.
Brúin, sem kallast Boomslang
eða trjáslanga á máli innfæddra,
Afríkans, er 130 metra löng og 11,5
metrar þar sem hún er hæst.
Skammt frá brúnni var svo
próteru-safn garðsins. Ættkvíslin
virðist ekki hafa neitt nafn á
íslensku en kónga Prótera, Protera
cynarodides, er þjóðarblóm Suður-
Afríku. Próterur eru sígrænir og
uppréttir runnar sem geta náð sjö
metra hæð og eru ólíkar tegund-
ir algengar í landinu. Á Afríkans,
tungumáli margra innfæddra, kall-
ast plantan stundum fynbos og er
það hún sem gefur því sérstæða
gróðursvæði Suður-Afríku nafn
sitt. Blóm ólíkra próteru-tegunda
eru yfirleitt gul eða rauð eða þar á
milli en öll eiga þau það sameig-
inlegt að vera eins og plastblóm
viðkomu.
Eftir próterurnar var eriku-safnið
skoðað en ríflega 600 tegundir af
þeim finnast villtar í Suður-Afríku.
Fæstar þeirra komu kunnuglega
fyrir sjónir og gaman að sjá hversu
ólíkar plöntur innan sömu ættkvísl-
ar geta verið fjölbreyttar og ólíkar
að hæð, lit og blaðlögun.
Hápunktur garðsins, bæði hvað
varðar hversu langt inn í garðinn
var gengið og hvað áhuga varðar
að mínu mati, var safn Cycads, eða
köngulpálma, sem eru plöntur sem
hafa haldist óbreyttar frá tíma risa-
eðlnanna. Stofn og blöð eru ekki
ólík venjulegum sólarstrandarpálm-
um en blómin alls ólík og líkjast
stórum könglum barrtrjáa enda
plantan einkynja berfrævingur.
Í garðinum er að finna eintak
af köngulpálma sem á latínu kall-
ast Encephalartos woodii og ein af
fáum plöntum sem eftir eru í heim-
inum af þeirri tegund. Reyndar er
það svo að allar plöntur af þessari
tegund í heiminum eru klónar af
eintakinu í Kirstenbosch og allt
karlplöntur og með sama erfðaefni.
Talið er að plantan hafi dáið út í
náttúrunni skömmu eftir þarsíðustu
aldamót vegna mikillar ásóknar í
börkinn á henni sem þótti góður
til lækninga. Plöntunnar, sem hefur
verið í garðinum frá 1916, er vel
gætt og höfð innan girðingar til
að hindra að þjófar steli hlutum af
henni og selji söfnurum. Auk þess
sem plantan er girt af eru í kring-
um hana hreyfiskynjarar sem setja
af stað viðvörun sé farið of nálægt
henni.
Inni á milli köngulpálmanna er
búið að koma fyrir eftirlíkingum
af risaeðlum til að leggja áherslu á
hversu gamlar lífverur plönturnar
eru.
Á leiðinni niður eftir garðinum
voru skoðuð svæði með ýmsum
tegundum ilmjurta og nytjaplantna.
„Þetta er staðurinn“
Ógerlegt er að vita með vissu
hvernig svæðið sem Kirstenbosch-
grasa garðurinn er á leit út áður en
Hollendingar settust að þar sem
Höfðaborg er í dag snemma á
sautjándu öld. Gera má ráð fyrir að
innfæddir hafi nýtt svæðið til veiða
og annarra nytja og þar hafa fundist
tvö þúsund ára gömul verkfæri sem
benda til fastrar búsetu.
Hollendingar hófu fljótlega mikið
skógarhögg við rætur og í hlíðum
Table-fjalls. Timbrið var notað til
húsagerðar, í vagna, til skipasmíði
og sem eldiviður. Eftir að búið var
að fella nánast öll trén var landið
nýtt til landbúnaðar og þar meðal
annars ræktuð fura og eukalyptus-tré
til viðarframleiðslu.
Árið 1913 var ákveðið að stofna
grasagarð á svæðinu í kringum þau
fáu innlendu tré sem eftir voru.
Hafist var handa við að upp ræta
inn fluttar plöntutegundir sem
höfðu ýtt innlendum gróðri til
hliðar. Það var ekki fyrr en milli
1960 og 1970 að hreinsunin bar
árangur og innlendur gróður náði
aftur fótfestu og innlendur skógur
fór að vaxa aftur í hlíðum Table-
fjalls og umhverfis garðinn.
Hugmyndin að stofnun garðsins
átti grasafræðingurinn Henry Harold
Pearson. Pearson var menntaður frá
Cambridge og flutti til Höfðaborgar
til að taka við stöðu forstöðu manns
grasafræðideilda Háskólans í Suður-
Afríku sem í dag kallast Háskólinn í
Höfðaborg. Sagt er að Pearson hafi
verið að leita að svæði fyrir grasagarð
í tengslum við háskólann árið 1911
og strax litist vel á Kirstenbosch og
umhverfi þess og hrópar við komuna
þangað „Þetta er staðurinn“. Hann
fékk lága fjárveitingu til að stofna
garðinn tveimur árum síðar. Pearson
tók að sér að vera umsjónarmaður
garðsins, launalaust, og bjó lengi
innan marka hans við fremur þröngan
kost.
Fyrstu árin töldu margir að Pearson
hefði tekið sér of mikið fyrir hendur
og verkefnið óframkvæmanlegt.
Svæðið var undirlagt af erlendum
gróðri, skógrækt til viðarframleiðslu
og villisvínum. Fyrstu árin voru einu
tekjur garðsins af sölu trjáviðar og
akarna. Pearson lést úr lungnabólgu
árið 1916 og er hann jarðsettur í
garðinum.
Fána Kirstenbosch
Auk gróðursins í garðinum er
Kirstenbolsch-svæðið ríkt af dýra-
lífi. Þar eru auk fjölda skordýra-
tegunda, froskar og fuglar, fiðrildi,
snákar, refir og einskaka mangar,
eða mongús og skjaldbökur.
Dýrin sem mest ber fyrir augu
eru fuglar enda margar tegundir sem
lifa í garðinum og í nágrenni hans.
Þrátt fyrir að nokkrar tegundir af
slöngum finnist í garðinum fer lítið
fyrir þeim og einna helst að leita
þeirra í runnum og kjarri.
Ríflega 600 tegundir af erikum finnast villtar í Suður-Afríku og fæstar af
erikunum í Kirstenbosch-garðinum komu kunnuglega fyrir sjónir.
Í garðinum er að finna eintak af köngulpálma sem á latínu kallast Encephalar-
tos woodii og ein af fáum plöntum í heiminum af þeirri tegund.
Blóm próteru-tegunda eru eins og
plastblóm viðkomu.
Agapanthus eða höfuðlilja í blóma.
Strelitzia reginae 'Mandela's Gold'.
Köngulpálmar og annar gróður í
Kirstenbosch-þjóðargrasagarðinum
og Höfðaborg í baksýn.
Stráþök eins og þetta í Kirsten-
bosch-grasagarðinum eru algeng í
Suður-Afríku og iðulega búin til úr
grösum sem kallast restios og eru
algengar á suðurhveli og geta náð
þriggja metra hæð.
Köngulpálmar og annar gróður í Kirstenbosch þjóðargrasagarðinum og Höfðaborg í baksýn.
Afrískt mahogany, Khaya anthot-
heca, var mikið nytjað til viðarfram-
leiðslu fyrr á tímum en sjaldgæft í
náttúrunni og því friðað.
Stæðilegur köngulpálmi. Plöntur
sem hafa haldist óbreyttar frá tíma
risaeðlnanna.