Bændablaðið - 19.09.2019, Qupperneq 41

Bændablaðið - 19.09.2019, Qupperneq 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 2019 41 Næst var gengið meðfram fjölda innlendra fjölærra plantna og þykk- blöðunga af þurrari svæðum lands- ins. Sumar af þessum plöntum voru í blóma og komu blóm þeirra og ættkvíslarnöfn kunnuglega fyrir sjónir þrátt fyrir að tegundirnar væru flestar framandi. Í trjásafninu þekkti ég aftur á móti engar af þeim 450 tegundum sem þar eru en mikið var gaman að ganga fyrst um trjásafnið og síðan að skoða trjákrónurnar, lögun þeirra og litbrigði ofan frá og sjá hvernig trén uxu á mismunandi hátt til að ná að fanga sem mest af sólarljósinu. Brúin, sem kallast Boomslang eða trjáslanga á máli innfæddra, Afríkans, er 130 metra löng og 11,5 metrar þar sem hún er hæst. Skammt frá brúnni var svo próteru-safn garðsins. Ættkvíslin virðist ekki hafa neitt nafn á íslensku en kónga Prótera, Protera cynarodides, er þjóðarblóm Suður- Afríku. Próterur eru sígrænir og uppréttir runnar sem geta náð sjö metra hæð og eru ólíkar tegund- ir algengar í landinu. Á Afríkans, tungumáli margra innfæddra, kall- ast plantan stundum fynbos og er það hún sem gefur því sérstæða gróðursvæði Suður-Afríku nafn sitt. Blóm ólíkra próteru-tegunda eru yfirleitt gul eða rauð eða þar á milli en öll eiga þau það sameig- inlegt að vera eins og plastblóm viðkomu. Eftir próterurnar var eriku-safnið skoðað en ríflega 600 tegundir af þeim finnast villtar í Suður-Afríku. Fæstar þeirra komu kunnuglega fyrir sjónir og gaman að sjá hversu ólíkar plöntur innan sömu ættkvísl- ar geta verið fjölbreyttar og ólíkar að hæð, lit og blaðlögun. Hápunktur garðsins, bæði hvað varðar hversu langt inn í garðinn var gengið og hvað áhuga varðar að mínu mati, var safn Cycads, eða köngulpálma, sem eru plöntur sem hafa haldist óbreyttar frá tíma risa- eðlnanna. Stofn og blöð eru ekki ólík venjulegum sólarstrandarpálm- um en blómin alls ólík og líkjast stórum könglum barrtrjáa enda plantan einkynja berfrævingur. Í garðinum er að finna eintak af köngulpálma sem á latínu kall- ast Encephalartos woodii og ein af fáum plöntum sem eftir eru í heim- inum af þeirri tegund. Reyndar er það svo að allar plöntur af þessari tegund í heiminum eru klónar af eintakinu í Kirstenbosch og allt karlplöntur og með sama erfðaefni. Talið er að plantan hafi dáið út í náttúrunni skömmu eftir þarsíðustu aldamót vegna mikillar ásóknar í börkinn á henni sem þótti góður til lækninga. Plöntunnar, sem hefur verið í garðinum frá 1916, er vel gætt og höfð innan girðingar til að hindra að þjófar steli hlutum af henni og selji söfnurum. Auk þess sem plantan er girt af eru í kring- um hana hreyfiskynjarar sem setja af stað viðvörun sé farið of nálægt henni. Inni á milli köngulpálmanna er búið að koma fyrir eftirlíkingum af risaeðlum til að leggja áherslu á hversu gamlar lífverur plönturnar eru. Á leiðinni niður eftir garðinum voru skoðuð svæði með ýmsum tegundum ilmjurta og nytjaplantna. „Þetta er staðurinn“ Ógerlegt er að vita með vissu hvernig svæðið sem Kirstenbosch- grasa garðurinn er á leit út áður en Hollendingar settust að þar sem Höfðaborg er í dag snemma á sautjándu öld. Gera má ráð fyrir að innfæddir hafi nýtt svæðið til veiða og annarra nytja og þar hafa fundist tvö þúsund ára gömul verkfæri sem benda til fastrar búsetu. Hollendingar hófu fljótlega mikið skógarhögg við rætur og í hlíðum Table-fjalls. Timbrið var notað til húsagerðar, í vagna, til skipasmíði og sem eldiviður. Eftir að búið var að fella nánast öll trén var landið nýtt til landbúnaðar og þar meðal annars ræktuð fura og eukalyptus-tré til viðarframleiðslu. Árið 1913 var ákveðið að stofna grasagarð á svæðinu í kringum þau fáu innlendu tré sem eftir voru. Hafist var handa við að upp ræta inn fluttar plöntutegundir sem höfðu ýtt innlendum gróðri til hliðar. Það var ekki fyrr en milli 1960 og 1970 að hreinsunin bar árangur og innlendur gróður náði aftur fótfestu og innlendur skógur fór að vaxa aftur í hlíðum Table- fjalls og umhverfis garðinn. Hugmyndin að stofnun garðsins átti grasafræðingurinn Henry Harold Pearson. Pearson var menntaður frá Cambridge og flutti til Höfðaborgar til að taka við stöðu forstöðu manns grasafræðideilda Háskólans í Suður- Afríku sem í dag kallast Háskólinn í Höfðaborg. Sagt er að Pearson hafi verið að leita að svæði fyrir grasagarð í tengslum við háskólann árið 1911 og strax litist vel á Kirstenbosch og umhverfi þess og hrópar við komuna þangað „Þetta er staðurinn“. Hann fékk lága fjárveitingu til að stofna garðinn tveimur árum síðar. Pearson tók að sér að vera umsjónarmaður garðsins, launalaust, og bjó lengi innan marka hans við fremur þröngan kost. Fyrstu árin töldu margir að Pearson hefði tekið sér of mikið fyrir hendur og verkefnið óframkvæmanlegt. Svæðið var undirlagt af erlendum gróðri, skógrækt til viðarframleiðslu og villisvínum. Fyrstu árin voru einu tekjur garðsins af sölu trjáviðar og akarna. Pearson lést úr lungnabólgu árið 1916 og er hann jarðsettur í garðinum. Fána Kirstenbosch Auk gróðursins í garðinum er Kirstenbolsch-svæðið ríkt af dýra- lífi. Þar eru auk fjölda skordýra- tegunda, froskar og fuglar, fiðrildi, snákar, refir og einskaka mangar, eða mongús og skjaldbökur. Dýrin sem mest ber fyrir augu eru fuglar enda margar tegundir sem lifa í garðinum og í nágrenni hans. Þrátt fyrir að nokkrar tegundir af slöngum finnist í garðinum fer lítið fyrir þeim og einna helst að leita þeirra í runnum og kjarri. Ríflega 600 tegundir af erikum finnast villtar í Suður-Afríku og fæstar af erikunum í Kirstenbosch-garðinum komu kunnuglega fyrir sjónir. Í garðinum er að finna eintak af köngulpálma sem á latínu kallast Encephalar- tos woodii og ein af fáum plöntum í heiminum af þeirri tegund. Blóm próteru-tegunda eru eins og plastblóm viðkomu. Agapanthus eða höfuðlilja í blóma. Strelitzia reginae 'Mandela's Gold'. Köngulpálmar og annar gróður í Kirstenbosch-þjóðargrasagarðinum og Höfðaborg í baksýn. Stráþök eins og þetta í Kirsten- bosch-grasagarðinum eru algeng í Suður-Afríku og iðulega búin til úr grösum sem kallast restios og eru algengar á suðurhveli og geta náð þriggja metra hæð. Köngulpálmar og annar gróður í Kirstenbosch þjóðargrasagarðinum og Höfðaborg í baksýn. Afrískt mahogany, Khaya anthot- heca, var mikið nytjað til viðarfram- leiðslu fyrr á tímum en sjaldgæft í náttúrunni og því friðað. Stæðilegur köngulpálmi. Plöntur sem hafa haldist óbreyttar frá tíma risaeðlnanna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.