Bændablaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 78
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201978
Næsta
Bændablað
kemur út
9. janúar
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
Þökkum samskiptin
á árinu sem er að líða,
sérstaklega viðtökurnar við nýju
nafni og ásýnd fyrirtækisins.
Hlökkum til framhaldsins
– skiljum ekkert eftir.
KH Vinnuföt • Nethyl 2a
110 Reykjavík • Sími: 577 1000
info@khvinnufot.is
www.khvinnufot.is
Gleðileg jól og farsælt
komandi ár.
Þökkum viðskipin á
árinu sem er að líða.
Merry Christmas
Starfsfólk og sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar sendir
íbúum og landsmönnum
öllum hugheilar jóla-
og nýárskveðjur með
þökkum fyrir ánægjulegt
samstarf á líðandi ári.
Á þessari teikningu má sjá breytta legu Eyjafjarðarbrautar vestri (vegur 821-02/03) út fyrir þéttbýli Hrafnagils. Breytingin er í samræmi við gildandi aðal-
skipulag sveitarfélagsins.
Eyjafjarðarbraut vestri verður færð út úr Hrafnagilshverfi:
Mun liggja meðfram Eyjafjarðará
frá Jólahúsi að Stokkahlöðum
Fyrirhugað er að færa Eyja
fjarðar braut vestri niður á bakka
Eyjafjarðarár, en hún liggur nú í
gegnum Hrafnagilshverfið. Færsla
brautarinnar er inni á samgöngu
áætlun og gert ráð fyrir að verk
efninu verði lokið árið 2021.
Finnur Yngvi Kristinsson,
sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit,
segir öryggi barna og annarra íbúa
hverfisins stóraukast í kjölfar þess
að vegurinn færist út úr hverfinu.
Nýi vegurinn mun liggja meðfram
Eyjafjarðará norðan við Jólahúsið og
allt suður að Stokkahlöðum.
Ekið of hratt gegnum hverfið
Meðalökuhraði bílstjóra á Eyja
fjarðarbraut vestri gegnum Hrafna
gilshverfi er um 58 kílómetrar á
klukkustund samkvæmt úttekt
Vegagerðarinnar. Það er töluvert
meira en hámarkshraði vegarins
leyfir og er tilfærsla hans því stórt
skref í átt að auknu umferðaröryggi
á svæðinu. Áætlun Vegagerðarinnar
gerir ráð fyrir að framkvæmdin verði
í tveim áföngum og hefjist á næsta
ári og ljúki árið þar á eftir, 2021.
Við færslu vegarins opnast
möguleikar til aukinnar upp
byggingar í Hrafnagilshverfi og mun
nýtt deiliskipulag taka mið af því,
að sögn sveitarstjóra. Þannig er gert
ráð fyrir að á næstu tveimur árum
rísi um 12 ný einbýlishús þar auk
raðhúss í Bakkatröð. Þá stendur til
að skipuleggja nokkurn fjölda nýrra
lóða á árinu 2020 en unnið er að nýju
deiliskipulagi fyrir Hrafnagilshverfi
í heild.
Fjárveiting nemur 300
milljónum vegna fyrri áfanga
Margrét Silja Þorkelsdóttir, deildar
stjóri tæknideildar norðursvæðis,
kom á fund skipulagsnefndar
Eyjafjarðarsveitar í liðnum mánuði
og kynnti fyrstu drög af nýrri hönnun
Eyjafjarðarbrautar vestri. Hún segir
frumhönnun vera í fullum gangi. Í
drögum að samgönguáætlun er
gert ráð fyrir fjárveitingu til fram
kvæmdarinnar upp á 300 milljónir
króna árið 2021. Sú fjárveiting
nær til fyrri áfanga framkvæmdar
innar, þ.e. færslu Eyjafjarðarbrautar
norðan Miðbrautar. Seinni áfangi
framkvæmdarinnar hefur ekki verið
tímasettur en hann gerir ráð fyrir
áframhaldandi færslu vegarins að
árbakka Eyjafjarðarár suður fyrir
Stokkahlaðir. Tenging núverandi
vegakerfis að nýjum vegi í fyrsta
áfanga er enn í útfærslu. /MÞÞ
Séð yfir Hrafnagilshverfi. Við færslu vegarins opnast möguleikar til aukinnar uppbyggingar í hverfinu og mun nýtt
deiliskipulag taka mið af því. Mynd / Eyjafjarðarsveit
Hvar auglýsir þú?
Sími 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
45,6% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
20,4%
45,6%
á landsbyggðinniá höfuðborgarsvæðinu
29,5%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2018. Aldur 12-80 ára.
Óveðrið:
Óttast að yfir hundrað hross hafi drepist
Talsvert af útigangshrossum
drápust í óveðrinu sem gekk
yfir landið fyrir stuttu. Talið er
að rúmlega 70 hross hafi drepist
en óttast er um afdrif fleiri. Flest
hross drápust í Húnavatnssýslum.
Hross sem lifðu óveðrið af
voru mörg örmagna af þreytu og
þurfti björgunarfélagið Blanda á
Blönduósi að sinna fjölda verkefna
tengdum hrossum í veðrinu.
Mörg hross fenntu í kaf í skjóli
Ingunn Reynisdóttir, dýralæknir
að SyðriVöllum í Miðfirði, segir
að hún hafi staðfest að 70 hross
hafi drepist en að sú tala eigi ör
ugglega eftir að hækka. „Hrossin
sem drápust fenntu mörg hver í
kaf í skjóli, bæði náttúrulegu og
manngerðum. Hrossin hröktust
undan veðrinu og fóru í skurði,
að girðingum þar sem hlóðst að
þeim og sum fóru í skafla
þar sem þau fóru á kaf og
snjórinn svo þungur og
pakkaður að þau gátu enga
björg sér veitt.
Ég geri fastlega ráð fyrir
því að tala dauðra hrossa
vegna óveðursins eigi eftir
að hækka og að hún fari
yfir hundrað.
Aðstæður sem
enginn ræður við
„Við svona aðstæður
ræður enginn við neitt.
Það reyndu margir að gera
vel við hrossin og koma
þeim í skjól og fóður en í
fæstum tilfellum skilaði það
tilætluðum árangri.
Öll hrossin sem lifðu
storminn af eru ofboðslega
þreytt eða hreinlega
uppgefin og flest hrossin
sem grófust undir hafa
verið aflífuð. Það er
eitthvað verið að reyna að
bjarga folöldum en tvísýnt
hvort þau lifa af.“
Ingunn segir að margir
geldingar sem voru með
skaufann úti og gátu ekki
dregið hann inn hafi ekki
getað migið frá því að
veðrinu slotaði og aðrir
hafa heldur ekki getað
skitið og allt stopp. „Ég
hef verið að meðhöndla
þrjá þannig sem ég hafði
litla trú á að myndu jafna
sig en þeir eru samt að
koma til. Önnur hross
hafa ofkælst og fengið
lungnabólgu og svo
er farinn að detta inn
hrossasótt um leið og þau
komast í fóður.“ /VH
Magnús Ásgeir Elíasson á Stóru-Ásgeirsá í Víðidal að
moka upp eitt af hrossum sínum sem fennti í kaf í óveðr-
inu í síðustu viku.