Bændablaðið - 19.09.2019, Side 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 20194
FRÉTTIR
Árneshreppur:
Átján áttir í Norðurfirði
Nokkrar skemmdir urðu í
Árneshreppi í óveðrinu sem gekk
yfir landið í síðustu viku. Klæðning
losnaði af vélageymslu gamla
prestssetursins í Árnesi og hús
Ferðafélagsins að Valgeirsstöðum í
Norðurfirði fór illa og liggur undir
skemmdum.
Valgeir Benediktsson í Árnesi í
Trékyllisvík segir að talsvert hafi
gengið á í Árneshreppi í veðrinu
sem gekk yfir landið í síðustu viku.
„Rafmagnið fór strax um kvöldið og
komst ekki á fyrr en tveimur dögum
seinna. Svo urðu talsverða skemmdir
á útihúsum og skáli Ferðafélagsins í
Norðurfirði fór illa.“
Laus klæðing og þakplötur
„Satt best að segja var veðrið mjög
slæmt hér. Klæðningin og nokkrar
þakplötur losnuðu á vélageymslu
prestssetursins og það fóru nokkrir
plastgluggar norðanmegin í fjár-
húsinu hjá okkur en þar sem það
er ekkert fé í húsunum var engum
skepnum hætta búin.“
Þegar Valgeir er spurður hvort
það sé rétt að margar rúður í
Finnbogastaðaskóla hafi brotnað í
veðrinu svarar hann að það sé rétt
að margar rúður í skólanum séu
brotnar en að það stafi ekki af veðr-
inu. „Skólinn var glerjaður í sumar
og rúðurnar hafa verið að brotna
smám saman vegna einhvers galla
í framleiðslunni og þær voru meira
að segja farnar að brotna áður en
skólinn var glerjaður.“
Hús Ferðafélagsins skemmdist illa
Valgeir segir að Norðurfjörður
geti verið veðravíti þegar svona
gengur. „Stundum er sagt að það
geti verið átján áttir í Norðurfirði
í vondum veðrum og aldrei að vita
úr hvaða átt næsta hviða kemur. Hús
Ferðafélagsins að Valgeirsstöðum í
Norðurfirði skemmdist illa í veðrinu.
Bíslag sem var búið við húsið fékk
á sig slæma hviðu og þakið á því
með sperrum og öllu saman fauk út
í veður og vind og þannig opið inn í
húsið. Auk þess sem eitthvað er farið
af járnplötum af þaki gamla hússins
og húsið í stórhættu.
Flestir með vararafstöð
Ekki eru nema ellefu manns sem
hafa vetursetu í Árneshreppi og búa
þar allt árið. Að sögn Valgeirs eru
flestir bæir og hús þar sem búið er
allt árið með vararafstöð og því ekki
hundrað í hættunni þótt rafmagnið
fari. /VH
Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri í Norðurþingi:
Ekki hægt að sitja uppi með þá
áhættu að milljarðar tapist
„Í veðurofsanum undanfarna
daga urðum við í Norðurþingi
hvað verst úti í dreifbýlinu hér
á svæðinu sem og er rafmagni
aðeins skammtað á Kópaskeri og
Raufarhöfn sem stendur. Óvíst
er hve lengi sú staða varir en
mikið tjón er á línum sem fæða
byggðarlögin tvö. Það kemur ber-
sýnilega í ljós við svona aðstæð-
ur hversu nauðsynlegar öflugar
rafmagnstengingar eru til að ekki
þurfi að hægja, jafnvel stöðva
heilu samfélögin í fleiri daga vegna
tjóns,“ segir í yfirlýsingu Kristjáns
Þórs Magnússonar, sveitarstjóra í
Norðurþingi.
Hann segir margt leita á hugann
eftir að storminn hefur lægt, m.a.
hversu óvægin náttúran geti verið
og við lítil andspænis þeim öflum
sem engu eira.
Kristján Þór segir að ef Bakka
og Þeistareykja hefði ekki notið við
hefðu íbúar á Húsavík orðið mun
verr fyrir barðinu á ofsanum en raun
varð á.
„Það er að mínum dómi mikið
áhyggjuefni hversu illa dreifikerfi
rafmagns er undirbúið undir veður
sem þessi víða um land. Þótt þónokk-
uð hafi áunnist í að koma „hágæða-
kerfi“ rafmagnsins í jörðu verðum
við að gera mun betur í þeim efnum.
Og það er vel hægt,“ segir hann.
Má ekki gerast að smærri
sveitarfélög sitji eftir
Nærtækasta dæmið séu viðbrögð
við fjárskaðaveðrinu 2012 og með
hvaða hætti var bætt úr raforku-
öryggi við Mývatn í kjölfar þess
hildarleiks sem íbúar svæðisins
lentu í.
„Það er auðvitað ekki hægt
að sitja uppi með þá áhættu að
milljarðar tapist í frystigeymslum
sjávarútvegs- og landbúnaðarfyr-
irtækja eins og við eigum t.a.m. í
Fjallalambi á Kópaskeri og GPG á
Raufarhöfn árið 2019 vegna yfir-
vofandi rafmagnsskorts í ríku landi
sem okkar. Það má ekki gerast að
smærri byggðarlög sitji eftir þegar
kemur að úrbótum og tryggingum
á afhendingaröryggi rafmagns. Við
eigum ekki að sætta okkur við það,“
segir Kristján Þór í yfirlýsingu sinni.
Raufarhöfn sé lífæð byggðarlags-
ins og vinnsla GPG á staðnum hafi
svo að segja verið í lamasessi vegna
stöðunnar. /MÞÞ
Talsverðar skemmdir urðu á húsi Ferðafélags Íslands í Norðurfirði í óveðrinu. Þak og sperrur fuku burt.
Mynd / Valgeir Benediktsson
Valgeir Benediktsson. Mynd / VH
Gámur sem þjónaði sem snyrtiað-
staða fyrir ferðaþjónustuna í Finn-
bogastaðaskóla færðist til um
nokkra metra í veðrinu. Mynd / VB
Kristján Þór Magnússon.
Óvíst hversu miklu þurfti að hella niður af mjólk:
Um 43 þúsund lítrum
minni innvigtun
Mjólkursöfnun fór víða úr skorð-
um vegna óveðurs og ófærðar í
liðinni viku. Rafmagnsleysi var
líka víða um sveitir og hvatti
Auðhumla framleiðendur til að
hella niður mjólk þar sem kæl-
irof hafði staðið í einhverja stund
og ekki náðist að halda stöðugri
kælingu þannig að ekki var hægt
að treysta á gæði mjólkurinnar.
Garðar Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Auðhumlu, segir enn ekki
komið að fullu í ljós hversu miklu
magni mjólkur var hellt niður, en
einnig verði að horfa til þess hversu
mikil töpuð nyt verður þar sem ekki
var hægt að mjólka í langan tíma.
Garðar segir að innvigtun í liðinni
viku hafi verið 43 þúsund lítrum
minni en var í vikunni þar á undan.
„Minnkunin kemur einungis fram
í Húnaþingi og á Eyjafjarðar- og
Þingeyjarsýslusvæðinu. Annars
staðar er eðlileg innvigtun,“ segir
hann.
Langur vinnudagur
Kristín Halldórsdóttir, rekstrar-
stjóri hjá MS-Akureyri, segir að
ekki hafi þurft að hella niður mjólk
á starfssvæðinu vegna ófærðar, en
mjólk var þó ekki sótt á miðviku-
dag í síðustu viku þegar veður var
hvað verst. Upplýsingar um hvort
mjólk hafi verið hellt niður af
öðrum ástæðum liggja ekki fyrir.
„Við náðum að hreinsa svæðið
og koma okkur á rétt ról strax á
fimmtudeginum. Það var mikið
að gera þann dag og síðasti bíll
var að koma í hús undir hálf tólf
um kvöldið þann daginn, enda
var færð víða þá mjög slæm. Það
tefur líka mikið að vera margsinnis
yfir daginn að keðja á og af,“ segir
hún.
Á miðvikudag í liðinni viku var
mjólkurvörum ekki dreift í versl-
anir eða fyrirtæki. „Það var ein-
faldlega ekki hægt,“ segir Kristín.
/MÞÞ
Matvælastofnun:
Óskar eftir opinberri
rannsókn á innflutningi
– Ógn við góða sjúkdómastöðu á Íslandi
Matvælastofnun hefur óskað eftir
opinberri rannsókn á innflutningi
og útungun frjóeggja kalkúna í
Þykkvabænum. Er grunur um
innflutning án nauðsynlegra leyfa.
Málið varðar brot á lögum um
dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim,
um innflutning dýra og á reglugerð
um sóttvarnarstöðvar fyrir alifugla.
Í síðasta Bændablaði var málið
borið undir Brigitte Brugger,
dýralækni alifuglasjúkdóma hjá
Matvælastofnun. Þar kom fram að mál
sem þessi væru litin mjög alvarlegum
augum. Hún sagði að smitsjúkdómar
geti borist með frjóeggjum og sumir
sjúkdómar í alifuglum berist jafnvel
gjarnan og auðveldlega í gegnum frjó-
egg í afkvæmin. Slíkur innflutningur
væri ógn við afar góða sjúkdómastöðu
á Íslandi.
Brigitte sagði að lítið væri vitað
um sjúkdóma í bakgarðsfuglum hér
á landi en ætla mætti að frjóeggjum
væri smyglað til landsins. „Þess
vegna er ekki hægt að útiloka að
tilkynningaskyldir sjúkdómar geti
verið til staðar í bakgarðshænum.
Eigendur bera sjálfir ábyrgð á heilsu
þeirra fugla. Mikilvægt er að þeir fái
einungis fugla frá heilbrigðum hópum
á búum, þar sem ekki hafa komið upp
veikindi,“ sagði hún.
Áhyggjur eggja- og alifuglabænda
Þegar upp komst um innflutn-
inginn sendu Félög eggjabænda
og kjúklingabænda, Reykjagarður,
Matfugl, Eigenda- og ræktendafélag
landnámshænsna og Bændasamtök
Íslands bréf til Matvælastofnunar þar
sem áhyggjum var lýst vegna hætt-
unnar á að alvarlegir alifuglasjúk-
dómar berist til til landsins. Var hvatt
til þess að hart væri tekið á slíkum
ólöglegum innflutningi.
Öll sýni neikvæð
Matvælastofnun tók sýni af fuglunum
sem var útungað hér, en reyndust
þau neikvæð gagnvart öllum þeim
sjúkdómum sem skimað var fyrir.
Fuglunum verður fargað eins og
lög gera ráð fyrir. /smh
Góðri sjúkdómastöðu alifugla á Íslandi er ógnað með innflutningi á frjóeggjum
og fuglum án nauðsynlegra leyfa. Mynd / smh