Bændablaðið - 19.09.2019, Qupperneq 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 20196
Hamfaraveður eru ekki nýlunda hér á norð-
urhjara veraldar. Í gegnum aldirnar hafa
ýmis áföll dunið yfir landsmenn, bæði stór
og smá. Stórhríðin sem gekk yfir landið í
síðustu viku var eitt af þessum veðrum sem
setja allt úr skorðum. Ólíkt því sem var hér
áður fyrr kom óveðrið mönnum ekki á óvart
því búið var að spá fyrir um illviðri. Vel
var staðið að viðvörunum og fólk var með-
vitað um að vont veður væri væntanlegt.
Skólahaldi var aflýst og landsmönnum bent
á að halda sem mest kyrru fyrir. Lokanir á
vegum höfðu sín áhrif, færri voru á ferðinni
og margir vinnustaðir sendu starfsfólk
snemma heim á óveðursdaginn.
Þegar veðurspáin er slæm gera bændur við-
eigandi ráðstafanir. Í þetta sinn undirbjuggu
menn sig eins og hægt var, gengu frá lausa-
munum og hugðu að útigangi. Það gjörninga-
veður sem síðan skall á er nær fordæmalaust
í seinni tíð og sýnir hvað við erum smá gagn-
vart náttúruöflunum. Hörmulegt banaslys í
Eyjafirði fékk á alla þjóðina og erfiðar aðstæð-
ur til leitar voru öllum ljósar.
Bændur senda þakkir til viðbragðsaðila
Fjöldinn allur af viðbragðsaðilum um allt land
sinntu björgunaraðgerðum úti í óveðrinu. Mörg
vandamál þurfti að takast á við og tilkynningar
um tjón og óskir um aðstoð hrönnuðust upp.
Rafmagns- og fjarskiptaleysi var viðvarandi á
stórum landsvæðum og enn hefur ekki tekist
að tengja rafmagn alls staðar með fullnægj-
andi hætti.
Stjórn Bændasamtakanna kom saman í vik-
unni og ræddi áhrif óveðursins á sína félags-
menn. Í ályktun sem gefin var út eftir fundinn
komu fram þakkir til björgunarsveita landsins
og annarra viðbragðsaðila fyrir ómetanlegt
framlag við erfiðar aðstæður. Þær þakkir eru
endurteknar hér.
Nauðsynlegar aðgerðir í kjölfarið
Stjórn Bændasamtakanna harmar það tjón
sem bændur urðu fyrir í óveðrinu. Hún leggur
áherslu á að í framhaldinu verði afleiðingarnar
metnar og gerðar viðeigandi ráðstafanir. Huga
verður að þeim sem hafa orðið fyrir andlegu
áfalli og veita viðeigandi aðstoð til að vinna
úr því. Aðstæður sem þessar reyna verulega
á, bæði andlega og líkamlega. Það tekur á að
missa skepnur og að vera innilokaður jafnvel
sólarhringum saman, án rafmagns, hita eða
nokkurra fjarskipta. Það er ekki auðvelt að
átta sig á eða setja sig í spor þeirra sem lenda í
ámóta lífsreynslu. Það er líka erfitt að setja sig
í spor bænda sem stóðu frammi fyrir kúnum
sínum, fullum af mjólk, en höfðu enga leið til
að mjólka. Það hefur heldur ekki verið auðvelt
að vita af hrossum úti í óveðrinu.
Fara þarf yfir hvort Bjargráðasjóður eða
aðrar opinberar áfallatryggingar bæti tjón
vegna afurðamissis, gripatjóns eða tjóna á
húsakosti og girðingum. Ljóst er að á einstaka
bæjum er gríðarlegt tjón af þessum sökum sem
almennar tryggingar bæta ekki. Fordæmi eru
fyrir því að Bjargráðasjóður hefur fengið fjár-
magn til að mæta sambærilegum aðstæðum.
Bændasamtökin munu fylgja þessum málum
eftir fyrir sína félagsmenn.
Bæta þarf verulega afhendingaröryggi á
rafmagni og hraða eins og kostur er að koma
dreifilínum rafmagns í jörð. Endurmeta þarf
hvar er nauðsynlegt að varaaflsstöðvar séu
fyrir hendi og tryggja eldsneytisbirgðir fyrir
þær í skilgreindan tíma.
Fjarskipti eru hluti af grunnöryggi
Það þarf ekki að fjölyrða um þá hröðu þróun
sem hefur orðið í fjarskiptum síðustu ára-
tugi. Fjarskiptin eru hluti af grunnöryggi sem
verður að vera til staðar. Fjöldi fólks náði
engu sambandi við umheiminn og enginn
möguleiki var á að ná í það. Fjarskiptakerfin
þurfa að þola tímabundið rafmagnsleysi og
styrkja þarf GSM-símkerfið sem er mikil-
vægt öryggistæki. Það er óásættanlegt að öll
fjarskipti falli niður í svo langan tíma eins
og gerðist nú.
Rafmagnsskortur setur allt í uppnám
Tækninni hefur fleygt fram í landbúnaði
ekki síður en annars staðar. Við erum mjög
háð rafmagni og stærstur hluti tækja sem
við notum eru rafmagnstæki. Þegar þessi
búnaður bregst er svo margt sem við höfum
ekki, sumir missa allan hita og neysluvatn.
Mjaltaþjónar sinna nú mjöltum í ríflega 37%
fjósa á Íslandi. Mjaltaþjónarnir þola einungis
stutt rafmagnleysi ef þeir eiga að geta haldið
eðlilegum mjöltum. Hvort sem mjaltatækni í
öðrum fjósum er mjaltabás eða rörmjaltakerfi
er hún engu síður háð rafmagni. Mörg kúabú
urðu rafmagnslaus í óveðrinu og höfðu ekki
yfir að ráða varaafli. Mislangan tíma tók að
koma rafmagni til þessara aðila.
Bændur þurfa í kjölfar óveðursins að meta
hver og einn hvernig þeir eru í stakk búnir til
að mæta erfiðum aðstæðum eins og sköpuð-
ust í síðustu viku. Það er öllum ljóst að það
eiga eftir að koma fleiri slík veður og einnig
getur ýmislegt annað komið upp á sem truflar
afhendingu á rafmagni. Aldrei verður hægt að
koma í veg fyrir það en innviði samfélagsins
verður að styrkja svo að þeir þoli ágjöf eins
og hægt er.
Jól og áramót
Bændum og öllum lesendum Bændablaðsins
eru sendar kærar hátíðarkveðjur og óskir um
að árið 2020 verði farsælt og gjöfult.
Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum
á landinu og á öll lögbýli landsins.
Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti
gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 10.900 með vsk. (innheimt í tvennu lagi).
Ársáskrift fyrir eldri borgara og öryrkja kostar 5.450 með vsk.
Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík.
Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar −
SKOÐUN
Enn einu sinni hafa náttúruöflin minnt
okkur mannfólkið á hvaða kraftar það
eru sem ráða raunverulega ríkjum á
jörðinni. Ofsaveður sem skall á landinu
í síðustu viku sýndi að nýjasta tækni má
sín harla lítils þegar innviðir í orkukerf-
inu bresta og samgöngur stöðvast.
Það vekur óneitanlega athygli að árang-
ur af pólitískri regluverkakerfissmíði sé
að festa stjórnsýsluna í sífellt flóknara og
óskilvirkara net sem virkar æ fjandsamlegra
fyrir búsetu venjulegs fólks í landinu. Allt
er það réttlætt með því að eitt eða annað
verði að fá að njóta vafans, allt nema
fólkið sjálft sem á svo að dansa í takti við
reglurnar. Flækjustigið og tímasóun mann-
afls sem fer í að snúast í kringum þennan
vanskapnað er himinhrópandi. Allt er það
svo á kostnað almennings sem látinn er
borga kerfið í gegnum sífellt aukna skatta.
Þetta hefur komið berlega í ljós í umræð-
um um gríðarlegan vandræðagang sem uppi
hefur verið við uppbyggingu og viðhald
raforku- og vegakerfisins í landinu. Þar
virðist vera búið að skapa sérlega verndað
umhverfi fyrir bómullarvafða einstaklinga
sem í krafti reglna og peninga geta leyft
sér að troða á hagsmunum samfélags-
heildarinnar nánast út í það óendanlega.
Að sama skapi hefur verið þverskallast
við að innleiða þekkingu og tækni eins og
í jarðstrengjum sem hæglega hefðu getað
komið í veg fyrir deilur um afmarkaða
sérhagsmuni.
Það er hvorki verjandi að raforkufyrir-
tæki geti komist upp með að leggja ekki
raflínur í jörð sé þess nokkur kostur, né að
einstakir jarðeigendur geti í það endalausa
komið í veg fyrir innviðauppbyggingu í
þágu samfélagsins. Þarna verður löggjöf-
in og regluverkskerfið að vera með þeim
hætti að flækjustigið sé í lágmarki og að
almannahagsmunir gangi alltaf framar sér-
hagsmunum.
Það er til tækni sem gerir mönnum kleift
að leggja rafstrengi í jörðu þrátt fyrir að
lengst af hafi hagsmunaaðilar í orkuflutn-
ingi hér á landi barist gegn slíkum hug-
myndum. Vissulega þarf þar að skoða mis-
munandi kosti fyrir mismunandi aðstæður,
en slíka jarðstrengi er vel hægt að nota þar
sem helst þykir eftirsóknarvert að forðast
sjónmengun af staurasamstæðum. Þetta
verða menn einfaldlega að skoða með
opnum huga.
Annar angi þessa máls er að við inn-
leiðingu á regluverki ESB um orkupakka
1 og 2 var skilið á milli framleiðslu og
dreifingar á raforku. Engin kýjandi þörf
var fyrir slíku á Íslandi. Það leiddi hins
vegar til þess að nú er arðsemi virkjana og
orkudreifingarkerfis í algjörum forgangi
þegar rætt er um innviðauppbyggingu.
Almannahagsmunir skipta viðskipta-
kerfi ESB með raforku nær engu máli.
Orkupakki 3 styrkir enn frekar þessa
markaðsþróun kerfisins sem er oft þvert á
hagsmuni almennings. Þetta má berlega sjá
í nýlegri skýrslu um jarðstrengi í flutnings-
kerfi raforku. Þar er bent á þá ofuráherslu
sem lögð er í að verja eignastofn og tekju-
möguleika lagnakerfisins. Ástæðan er ein-
föld. Við aðskilnað raforkuframleiðslu og
flutnings á raforku er ekki lengur mögulegt
að nota arð af framleiðslunni til að byggja
upp orkuflutningskerfið. Slíkt er túlkað sem
styrkur sem raskar samkeppni á markaði.
Þar af leiðir verður dreifikerfið vart byggt
frekar upp á Íslandi nema það skili ásætt-
anlegri arðsemi lagnafyrirtækja. Það þýðir
hækkun á gjaldskrá fyrir flutning raforku
og þar með hækkun á orkureikingum lands-
manna. Á sama tíma er Landsvirkjun, sem
er í eigu almennra orkugreiðenda, að skila
hátt í anna tug milljarða í arð. – Er virkilega
einhver glóra í þessu fyrirkomulagi?
Með bestu óskum um gleðileg jól. /HKr.
Náttúruöflin minntu á sig með hvelli
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 − Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson
smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Auglýsingastjóri: Guðrún Hulda Pálsdóttir ghp@bondi.is – Sími: 563 0303 – Netfang auglýsinga: augl@bondi.is − Vefur blaðsins:
www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is
Frágangur fyrir prentun:Ágústa Kristín Bjarnadóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Guðrún S. Tryggvadóttir
formaður Bændasamtaka Íslands
gst@bondi.is
Þvottárskriður undir Mælifelli sunnan Álftafjarðar á Austfjörðum. Fjær er vegurinn um Hvalnesskriður sem liggur undir Krossanesfjalli á sam-
nefndu nesi. Sunnan við Krossanes kemur Hvaldalur og síðan Hvalnes og Hvalnesfjall með sitt tignarlega Eystrahorn sem blasir við þegar ekið er
veginn um Lón. Vegurinn um skriðurnar lokast oft vegna skriðufalla og snjóflóða. Ýmsar leiðir hafa verið ræddar til að auka örygggi vegfarenda,
m.a. að byggja vegskála á hættulegustu köflunum líkt og gert var á Óshlíðarvegi milli Hnífsdals og Bolungarvíkur við Ísafjarðardjúp, áður en þar
var ráðist í gerð jarðganga sem opnuð voru árið 2010. Mynd / Hörður Kristjánsson
Kerfisvandi
Óveður. Mynd / Guðrún Lárusdóttir í Keldudal