Bændablaðið - 19.09.2019, Side 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 20198
FRÉTTIR
Afleiðingar svínapestarinnar í Kína hefur áhrif á kjötmarkað um allan heim:
„Schnitzel“-viðvörun gefin út í Þýskalandi
– Búist við stórhækkunum á beikoni, pylsum og snitsel vegna vaxandi útflutnings til Kína
Mikill samdráttur í kínverskri
svínakjötsframleiðslu hefur
orðið til þess að kjötiðnaðurinn
í Þýskalandi varaði á dögunum
við hugsanlegum skorti heima
fyrir samfara verðhækkunum.
Hafa Landssamtök kjötiðnaðar-
ins (BVDF) því gefið út það sem
nefnt er „Schnitzel-viðvörun“
vegna útbreiðslu afrísku svína-
pestarinnar.
Þetta er þegar farið að hafa áhrif
meðal annars á pylsugerð í þessu
landi mestu pysluaðdáenda í heimi.
Um helmingi svína hefur verið
slátrað í Kína og hefur það hrundið
af stað stríði í kjötviðskiptum um
allan heim, samkvæmt fréttum þýska
blaðsins Bild.
BVDF segir að kínversk fyrir-
tæki kaupi nú mikið af kjöti erlendis
frá til að bæta upp skort á framboði
í Kína. Er því orðin umtalsverð
umframeftirspurn á svínakjötsmark-
aði heimsins.
Kína segir að gengið verði á
varabirgðir svínakjöts til að halda
aftur af verðhækkunum í verslun-
um. Hins vegar segja Landssamtök
kjötiðnaðarins að þýskir neytendur
verði ekki eins heppnir.
Pylsuverð fer hækkandi
Forseti BVDF-samtakanna, Sarah
Dhem, segir að pylsur séu farnar að
hækka í verði og atvinnugreinin hafi
staðið gegn verðstýringu vegna þess
að markaðsaðstæður hafi verið mjög
samkeppnishæfar. Það sé nú ekki
lengur raunhæft þar sem hart hafi
verið lagt að framleiðendum að fara
út í dýrar fjárfestingar vegna krafna
um aukna dýravelferð og sjálfbærni
í búskap. Þetta sé nú allt í hættu.
Kínverjar reyna nú að kaupa
svínakjöt hvar sem í það næst í
heiminum til að mæta niðurskurði
í framleiðslu heima fyrir. Þótt verð
á svínakjöti í Kína hafi aldrei verið
hærra en nú er samt búist við enn
frekari verðhækkun vegna aukinn-
ar kjötneyslu þegar Kínverjar fagna
nýju tungli í janúar.
Kjötneysla Kínverja
hefur gríðarleg áhrif
Kínverjar voru langöflugustu fram-
leiðendur á svínakjöti í heiminum
á árinu 2018. Þá framleiddu þeir
rúmlega 54 milljónir tonna af 120,7
milljóna tonna heildarframleiðslu.
Bara við það að þeirra framleiðsla
dragist saman á næstu misserum
um 45%, eins og spáð hefur verið,
vegna svínapestarinnar, þá þýðir
það að 24 milljónir tonna hverfa af
markaðnum í Kína. Svínpestin er
síðan farin að hafa áhrif víða um
lönd svo áhrifin geta hæglega orðið
mun meiri. Er þetta þegar farið að
hafa áhrif til hækkunar á öðrum kjöt-
tegundum, eins og á kindakjöti frá
Nýja-Sjálandi. Heildarframleiðslan
á kindakjöti í heiminum var tæp-
lega 14,9 milljónir tonna á síðasta
ári og búist er við að hún verði um
15 milljónir tonna í ár. Þá voru nærri
72 milljónir tonna af nauta- og kálfa-
kjöti framleidd í fyrra og rúmlega
128 milljón tonna af alifuglakjöti.
– Sjá líka frétt á bls 58 /HKr.
Ástralir stórefla varnir gegn svínapestinni
– Landbúnaðarráðherrann segir gríðarlega mikið í húfi fyrir þjóðarhag
Áströlsk yfirvöld hafa lofað að
leggja 66 milljónir dollara í varnir
til að koma í veg fyrir að afríska
svínapestin (African Swine Fever
– ASF) berist til landsins.
Fjármunirnir munu verða
notaðir til að fjölga mannskap í
sjúkdómavörnum, taka í notkun
sex nýja hunda til að leita uppi smit
og taka í notkun tvo nýja þrívíddar
röntgenskanna sem verða staðsettir
í Sidney og í Melbourne. Þannig
hyggjast yfirvöld m.a. reyna að finna
vörur sem verið er að flytja inn og
geta borið með sér veirusmit, en eru
ranglega skráðar.
Fjölmargar aðrar ráðstafanir eru
fyrirhugaðar til að koma í veg fyrir
að smit berist til landsins. Felst
það m.a. í auknum kröfum um
upplýsingagjöf þeirra sem stunda
innflutning til Ástralíu.
Milljarða dollara
tekjur bænda í húfi
Bridget McKenzie, landbúnaðar-
ráherra Ástralíu sagði í frétt Global
Meat News, að ef smit bærist í
svínastofninn í landinu þá myndi
það setja 5,2 milljarða tekjur bænda
í landinu í uppnám og gæti valdið
miklum skaða bæði á einstökum
svæðum sem og á landsvísu.
Mega ekki við fleiri áföllum
Sagði ráðherrann að landbúnaðurinn
í Ástralíu hafi verið að berjast við
erfiðleika vegna þurrka og mætti
alls ekki við áföllum af þeirri
stærðargráðu sem svínapestin gæti
skapað.
„Við flytjum út 70% af öllum
landbúnaðarvörum sem við
framleiðum og það eru gerðar miklar
kröfur til okkar á alþjóðavísu þar
sem við höfum gott orðspor vegna
hreinnar og öruggrar framleiðslu.
Það orðspor byggir á okkar stefnu
að halda landinu lausu við faraldra
og sjúkdóma.
Eins og er er ekki til nein lækning
eða lyf við ASF veikinni og um
fjórðungur af svínastofni heimsins
hefur þegar þurrkast út.“
Tugir tonna af svínakjöti gert
upptækt hjá ferðamönnum
Engin vitneskja er um að ASF veiran
hafi borist til Ástralíu. Hins vegar
breiðist svínapestin nú hratt um lönd
Asíu og yfirvöld hafa af því miklar
áhyggjur.
Landbúnaðarráðuneyti Ástralíu
gaf út tilkynningu fyrir skömmu að
frá 5. nóvember 2018 til 31. ágúst
2019 hafi 27 tonn af svínakjöti
verið gerð upptæk sem ferðamenn
reyndu að koma með til landsins.
Þetta gerðist þrátt fyrir gríðarlega
hörð viðurlög við innflutningi
ferðamanna á hvers konar matvælum
til landsins.
Patrick Hutchinson, forstjóri
Samtaka ástralskra kjötframleiðenda,
fagnaði þeim ráðstöfunum sem
áströlsk yfirvöld ætla að grípa til.
Þar sé sérstaklega horft til þess að
tryggja áfram velvild á erlendum
mörkuðum. Hann hefur þó áhyggjur
af úrvinnslufyrirtækjum sem eru að
framleiða matvörur sem geta verið
úr blöndu af bæði innlendu og
erlendu hráefni. /HKr.
Svínapestarveiran getur lifað árum saman í frosnu og þurrkuðu kjöti:
Engar sérstakar ráðstafanir á Íslandi gegn ASF
– Innflutningur á hráu kjöti verður heimill um áramót – fólki bent á bann við fóðrun dýra með matarafgöngum
Víða um lönd er nú verið að
herða varnir gegn útbreiðslu
afrísku svínapestarinnar (ASF)
sem breiðist nú óðfluga út um
heiminn. Samkvæmt upplýsingum
frá Matvælastofnun er ekki
sérstakur viðbúnaður í gangi hér
á landi vegna ASF fyrir utan þær
ströngu innflutningsreglur sem
gilda hér á landi. Þó er búist við
auknu eftirliti og upplýsingagjöf
samhliða því að breyttar reglur
um innflutning á hráu kjöti taka
gildi um áramótin.
Matvælastofnun hefur verið
að brýna það fyrir svínabændum
að gæta fyllstu varúðar til að
koma í veg fyrir að smit afrísku
svínapestarinnar berist með varningi
eða fólki inn á íslensk svínabú. Þá
birti MAST í síðasta Bændablaði
ábendingu til veiðimanna sem
verið hafa erlendis við dýraveiðar
að huga vel að sótthreinsun á öllum
veiðibúnaði sem komið er með til
landsins.
Áhyggjur í Evrópu út
af villisvínum
T h e l m a D ö g g
R ó b e r t s d ó t t i r ,
sérgreinadýralæknir hjá
MAST, segir að áhyggjur
manna úti í Evrópu og
víðar séu mestar vegna
hættu á að villisvín dreifi
veirunni. Reynslan hafi
sýnt að veiran berist
gjarnan með kjöti af
smituðum dýrum. Oft
hafi fólk verið að gefa svínum
afganga af slíku kjöti og smitað
dýr á þann hátt.
Hafa því verið settar upp sér-
stakar girðingar á landamærum
Danmerkur og Þýskalands til að
hefta för villisvína. Þá segir hún
að Norðmenn hafi verið að íhuga
mögulega útrýmingu villisvína í
landinu.
ASF-veiran getur lifað
árum saman í frosnu kjöti
„Vandinn er að veiran getur lifað
í mörg ár í frosnu kjöti og einnig
í þurrkuðu kjöti. Hér höfum við
verið með mjög strangar reglur á
innflutningi. Trúlega er tollvarningur
þó ekki skoðaður eins gaumgæfilega
og æskilegt væri.“
Mikil varúð viðhöfð
á íslenskum svínabúum
Thelma Dögg segir að miklar
varúðarráðstafanir séu viðhafðar á
íslenskum svínabúum gagnvart smiti
af öllu tagi. Þau eru um 20 talsins
og þar eru að hennar sögn líklega
einar bestu smitvarnir sem þekkjast
í landbúnaði hérlendis.
– Hvað með ferðamenn sem
koma með skipum eins og ferjunni
Norrænu?
„Við höfum lagt áherslu á það við
fólk að fóðra ekki svín eða önnur dýr
með matarafgöngum. Slíkt er bannað.
Við munum síðan halda áfram að
upplýsa fólk um hættuna þótt hér séu
ekki uppi sérstakar ráðstafanir vegna
svínapestarinnar,“ sagði Thelma
Dögg Róbertsdóttir. /HKr.
Afríska svínapestin hefur verið að breiðast hratt út og mun draga úr
kjötframleiðslu í heiminum sem nemur tugum milljóna tonna.
Mikill ótti er víða um lönd vegna útbreiðslu
afrísku svínapestarinnar.