Bændablaðið - 19.09.2019, Qupperneq 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201910
FRÉTTIR
Stofnun rannsóknateymis til að rannsaka sýklalyfjaónæmi á Íslandi:
Markmið að viðhalda lágu
hlutfalli ónæmis í landinu
– og vinna gegn þróun ónæmis annars staðar í heiminum
Rannsóknarteymi íslenskra og
bandarískra vísindamanna hefur
verið sett saman í þeim tilgangi
að rannsaka sýklalyfjaónæmi á
Íslandi, en landið er talið ákjós-
anlegur vettvangur til að rannsaka
þessa vaxandi ógn við lýðheilsu
í heiminum vegna sérstöðu þess.
Meginmarkmið teymisins er að
að skapa þekkingu sem gæti nýst
til þess að móta mótvægisaðgerðir
byggða á gagnreyndum vísindum, til
að viðhalda lágu hlutfalli ónæmis á
Íslandi og vinna gegn þróun ónæmis
annars staðar í heiminum.
Tekur til manna, dýra,
matvæla og umhverfis
Rannsóknin byggir á aðferðafræði
sem kölluð er „ein heilsa“ og tekur til
manna, dýra, matvæla og umhverfis
á landsvísu, með það að markmiði að
auka þekkingu á því hvernig sýkla-
lyfjaónæmar bakteríur breiðast út.
Ætlunin er að ná til sem flestra þátta
með því að rannsaka E. coli bakterí-
una sem finnst í búfénaði, umhverfi,
svo og í innlendum og innfluttum
kjötvörum – og bera þær saman við
E. coli bakteríur sem greinast í sýk-
ingum í mönnum.
Að sögn Karls G. Kristinssonar,
frá sýkla- og veirufræðideild
Landspítalans og læknadeild Háskóla
Íslands, hafa takmarkaðar rannsókn-
ir verið gerðar á því að hve miklu
leyti sýklalyfjaónæmi geti borist með
dýrum og matvælum til manna, þótt
vitað sé að það geti gerst. „Þar skipta
aðstæður á hverjum stað miklu máli,
svo og neysluvenjur,“ segir Karl.
Aðstæður á Íslandi
einstaklega góðar
„Dr. Lance Price er sá aðili sem hefur
verið hvað fremstur í rannsóknum
á þessu sviði, og hefur flutt fjölda
fyrirlestra um málið auk þess að
birta greinar í vísindaritum. Hann
kom og hélt fyrirlestur á Hótel
Sögu fyrr á þessu ári og var þá
meðal annars tekið viðtal við hann í
Bændablaðinu. Við Lance hittumst
fyrst á árinu 2015 og töluðum saman
um rannsóknir okkar og aðstæður
á Íslandi. Aðstæður á Íslandi væru
einstaklega góðar til að framkvæma
rannsókn svipaða og hann hafði gert
í Arizona í Bandaríkjunum nokkru
fyrr. Það var svo á árinu 2016 sem
var ákveðið að kanna möguleikann á
að gera slíka rannsókn á Íslandi og þá
enn víðtækari en í fyrri rannsóknum.
Þá má segja að rannsóknahópurinn
hafi verið settur saman með full-
trúum frá helstu viðeigandi stofn-
unum hér á landi. Það hefur síðan
tekið þennan tíma að setja saman
rannsóknaráætlun og fá samþykki
viðeigandi aðila og stofnana til
þess að framkvæma rannsóknina,“
segir Karl um forsögu þessa rann-
sóknarteymis.
„Leitað verður að E. coli bakter-
íunni í sýnum frá mönnum, dýrum,
matvælum og umhverfi á Íslandi.
Sýklalyfjanæmi þessara stofna
verður skoðað og hluti þeirra heil-
genamengisraðgreindur hér á landi.
Flestir stofnanna verða væntanlega
raðgreindir á rannsóknastofu Lance
Price og Cindy Liu í Washington,
svo og úrvinnsla þeirra niðurstaðna,
meðal annars hver sé líklegur upp-
runi þeirra.“
Í tilkynningu um stofnun rann-
sóknarteymisins segir að sú „sérstaða
sem gerir Ísland bæði einstakt og
ákjósanlegt til slíkra rannsókna er
landfræðileg einangrun, íbúafjöldinn
og hversu auðvelt er að fylgjast með
sýklalyfjanotkun og sýklalyfja-
ónæmi bæði hjá mönnum og dýrum.
Sýklalyfjaónæmi í landinu er með
því lægsta sem þekkist í heiminum,
en þeirri öfundsverðu stöðu er nú
ógnað. Vaxandi ferðamannaiðnað-
ur með meira en 2 milljónir ferða-
manna til lands með íbúafjölda um
360.000, auknar ferðir Íslendinga til
svæða með meira sýklalyfjaónæmi
og vaxandi innflutningur á landbún-
aðarafurðum eins og fersku kjöti og
grænmeti.“
Hlutfall ónæmra baktería á
Íslandi með því lægsta
„Mikilvægt er að átta sig á því hvers
vegna hlutfall sýklalyfja ónæmra
baktería á Íslandi er með því lægsta
sem þekkist í heiminum í dag, þrátt
fyrir að við notum meira af sýkla-
lyfjum í menn en gert er í nágranna-
löndum okkar. Við notum hins
vegar mun minna af sýkla lyfjum í
landbúnaði en þekkist víðast hvar
annars staðar. Við vonumst til að
sú þekking sem fæst með þessari
rannsókn hjálpi til við að viðhalda
lágu hlutfalli ónæmis í landinu. Sú
vitneskja gæti einnig hjálpað til að
vinna gegn ónæmisþróun annars
staðar í heiminum,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Þverfaglegir sérfræðingar
Rannsóknarteymið er skipað
þverfaglegum sérfræðingum sem
rannsaka munu vistfræði baktería
og sýklalyfjaónæmis svo og áhrif
þess á dýr, matvæli og menn. Þær
stofnanir sem koma að rannsókn-
inni eru Sýkla- og veirufræði-
deild Landspítalans, Tilraunastöð
Háskóla Íslands í meinafræði að
Keldum, Matís, Matvælastofnun;
Aðgerðarstofnun gegn sýklalyf-
jaónæmi, George Washington
University, Washington DC (ARAC)
og Vísindastofnun vistkerfis og
þjóðfélags, Northern Arizona
University, Arizona (ECOSS).
Í íslenska rannsóknarteyminu
með Karli eru þau Þórunn Rafnar
Þorsteinsdóttir, Tilraunastöð
Háskóla Íslands í meinafræði að
Keldum, Viggó Marteinsson frá
Matís og Vigdís Tryggvadóttir frá
Matvælastofnun. /smh
Karl G. Kristinsson, yfirlæknir sýkla-
og veirufræðideildar Landspítalans.
Mynd / smh
Verð á áburði lækkar á nýju ári vegna lækkunar á erlendum mörkuðum.
Mynd / YARA
Yara áburður frá SS
lækkar umtalsvert
Áburðarverðskrá Sláturfélags
Suðurlands (SS) fyrir Yara
áburð lækkar nú umtalsvert
á milli ára. Skýrist það fyrst
og fremst af lækkun á áburði
á erlendum mörkuðum.
Köfnunarefnisáburður lækkar
þannig um 7% samkvæmt frétta-
tilkynningu frá SS. Þá lækkar NP
áburður um 14–15% og flestar
NPK áburðartegundir
lækka um 14%.
Í boði eru hag-
stæðir greiðslu-
samningar eða
afslættir. Sé
greitt fyrir-
fram fyrir 15.
mars 2020 er
8% afsláttur
og 5% ef
greitt er fyrir
15. maí 2020.
Gerður er samt
fyrirvari varð-
andi mögu-
legar breytingar
á gengi. Þá býður
SS hagstætt tilboð á flutningi á
áburði heim á hlað ef pantað er
fyrir 15. janúar 2020. Hljóðar til-
boðið upp á 1000 krónur á tonnið
án virðisaukaskatts ef flutt eru 6
tonn eða meira.
Sex tegundir sem
allar innihalda selen
SS bætir nýrri tegund í áburðar-
flóruna með NPK 20-5-10.
Tegundin er sögð henta sérstak-
lega vel þar sem þörf er á miklum
fosfór. Yara leggur áherslu á að
bjóða bændum góða valkosti til
að auka selen í heyi og á beit-
arlönd enda víða selenskortur. Þá
segir að heyefnaniðurstöður hjá
bændum sem hafa borið á selen-
bættan Yara áburð staðfesti með
óyggjandi hætti góða selenstöðu
gróffóðursins.
Einkorna gæðaáburður
Allur Yara áburður er sagður
einkorna gæða áburður þar sem
öll næringarefnin eru í hverju
korni en góð dreifing og nýt-
ing næringarefna í áburði getur
skipt sköpum varðandi fóðrun og
heilsufar gripa. – Nánari upp-
lýsingar um Yara áburðinn er að
finna á www.yara.is. /HKr.
Hlaðan – hlaðvarp Bændablaðsins:
Bændablaðið gefur út hlaðvarpsþætti á netinu
Bændablaðið hefur á síðustu
vikum unnið að uppsetningu og
þróun á hlaðvarpsþáttum sem deilt
verður á vef blaðsins, bbl.is, og á
helstu hlaðvarpsveitum. Hlaðvörp
eru í raun eins og útvarpsþættir
sem gefnir eru út á netinu en ekki
sendir út í beinni útsendingu.
Hlustendur geta hlýtt á þættina á
vefnum eða hlaðið þeim niður og
spilað í síma í gegnum SoundCloud
og fleiri efnisveitur í fyllingu tím-
ans.
Hlaðvarp Bændablaðsins gengur
undir nafninu Hlaðan en í henni verða
nokkrir fastir þættir birtir reglulega.
Jón Gnarr reið á vaðið með þátt-
inn Kaupfélagið þar sem hann ræðir
viðskipti með nýja og notaða hluti.
Í þættinum tekur hann fyrir það
helsta sem er á smáauglýsingasíðum
Bændablaðsins hverju sinni og hefur
jafnvel samband við auglýsendur.
Fyrsti þáttur Jóns hefur fengið yfir
1.200 hlustanir en þar sagði Jón m.a.
frá áhugamálum sínum sem tengjast
endurnýtingu gamalla hluta og við-
skiptum með þá.
Umhverfismál og nýsköpun í
landbúnaði
Tveir aðrir þættir hófu göngu sína í
síðustu viku. Sveinn Margeirsson,
matvælafræðingur og doktor í
iðnaðarverkfræði, stýrir þætti sem
heitir Víða ratað og mun fjalla um
tækniumbyltingar, nýsköpun og
þróun í landbúnaði og tengdum
greinum.
Nýjasti þátturinn er í umsjá
Áskels Þórissonar, fyrrverandi rit-
stjóra Bændablaðsins, og ber hann
nafnið Skeggrætt. Áskell mun fá til
sín gesti og ræða umhverfismál í
víðu samhengi.
Fylgist með á næstu vikum
Fleiri hlaðvarpsþættir eru í
burðarliðnum sem munu birtast
á næstu vikum og mánuðum. Þar
má nefna þætti um landbúnað og
málefni lífrænnar ræktunar í um-
sjá Berglindar Häsler og Svavars
Péturs Eysteinssonar. Máltíð er
heiti á þætti í umsjón Hafliða
Halldórssonar matreiðslumeistara
og Bruggvarpið verður í höndum fé-
laganna Höskuldar Sæmundssonar
og Stefáns Pálssonar. Una
Hildardóttir og Guðrún Vaka
Steingrímsdóttir ræða um matar-
menningu og sögu í þættinum Snakk
og ritstjórn Bændablaðsins sjálfs
verður með yfirlitsþátt um nokkrar
fréttir blaðsins. Þá mun útgefandi
Bændablaðsins, Bændasamtök
Íslands, einnig miðla upplýsingum
úr sinni starfsemi í gegnum hlað-
varpið. /TB