Bændablaðið - 19.09.2019, Síða 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201912
FRÉTTIR
Ullarvinnslufyrirtækið Ístex:
Sængur úr einstakri
íslenskri ull
Lopidraumur er ný vörulína hjá
Ístex sem inniheldur hágæða
sængur úr 100 prósent íslenskri
ull sem keypt er beint af íslensk-
um bændum. Sængurnar eru
umhverfisvænar og sjálfbærar
en ullin er þvegin í ullarþvotta-
stöð fyrirtækisins á Blönduósi.
„Ístex hefur verið í þró-
unarvinnu síðustu mánuði með
íslenskar ullarsængur og verkefnið
hefur gengið vonum framar. Það
voru margir sem komu að verk-
efninu bæði hérlendis og erlendis.
Það tók tíma að finna réttu þykkt-
ina fyrir sængurnar, þess má geta
að við bjóðum upp á tvenns konar
þykktir, annars vegar heilsárs-
sængina Emblu og hins vegar vetr-
arsængina Iðunni. Þannig að fólk
getur valið sæng eftir því hversu
heitfengt það er,“ útskýrir Sigríður
Jóna Hannesdóttir, verkefnastjóri
hjá Ístex.
Fengið frábærar viðtökur
Í sængurnar er notuð íslensk
hágæða ull sem er náttúruleg og
með einstaka eiginleika, hún er
létt, hlý, andar vel og er vistvæn.
„Ullin býr yfir þeim eiginleika að
hún er temprandi þannig að manni
ætti ekki að vera of heitt eða kalt
undir sænginni. Við notum sérstaka
aðferð til að meðhöndla ullina fyrir
sængurnar svo að sængin þófni
ekki, sem þýðir að hún hleypur ekki
til. Þess má geta að hún má fara í
þvott á ullarstillingu og þurrkara á
vægan hita. Sængurnar hafa hlotið
OEKO-Tex stimpilinn. Sængurnar
hafa fengið frábærar viðtökur og við
höfum varla undan að afgreiða þær,“
segir Sigríður Jóna og bætir við:
„Íslenska ullin hefur þróast í 1100
ár í köldu, norðlægu loftslagi og býr
yfir einstakri samsetningu innri og
ytri þráða. Þelið er fíngert, mjúkt
og verndar féð gegn kulda. Togið er
lengra og vex út úr reyfinu, það er
harðgert og glansandi og veitir vörn
gegn vatni og vindum. Ull íslensku
sauðkindarinnar er einstök og engin
sambærileg ull er til í heiminum.
Hægt er að sjá nánar um og nálgast
sængurnar á heimasíðunni okkar
www.lopidraumur.is.“ /ehg
Páskar í Flórens & Caprí
sp
ör
e
hf
.
Vor 6
Flórens, Sorrento, Amalfíströndin, eyjan Caprí og Assisi
eru sannkallaðar draumaperlur Ítalíu en kynngimögnuð
fegurð þessara staða umvefur okkur í þessari glæsilegu
ferð. Við upplifum skemmtilega daga á meðan við
fræðumst um sögu, listir og mannlíf svæðisins. Skoðum
m.a. eina af frægustu fornminjum veraldar í Pompei og
siglum til klettaeyjunnar Caprí og í Bláa hellinn.
8. - 21. apríl
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 366.600 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Skógræktin hefur hrundið
af stað verkefni sem kallast
Skógarkolefni. Verkefninu er
ætlað að koma á fót viðurkenndu
ferli vottunar á bindingu kolefnis
með nýskógrækt.
Vottunin gerir í fyrsta sinn á
Íslandi kleift að versla með vottaðar
einingar kolefnis sem bundið er með
nýskógrækt. Ein eining samsvarar
einu tonni af koltvísýringi. Stefnt
er að því að fyrstu einingarnar verði
skráðar á næsta ári.
Raunveruleg kolefnisbinding
með nýskógrækt
Í fréttatilkynningu frá Skógrækt inni
segir að markmið Skógarkolefnis
séu að draga úr áhrifum loftslags-
breytinga með því að binda kolefni,
bjóða landeigendum upp á nýja kosti
til að fjármagna skógrækt, bjóða fyr-
irtækjum og einstaklingum upp á
nýjan kost til að kolefnisjafna sig,
efla skógrækt á Íslandi með öllum
þeim kostum sem henni fylgja.
Þar segir einnig að Skógarkolefni
tryggi raunverulega kolefnisbindingu
með nýskógrækt, viðbót við fyrri
kolefnisbindingu, mælda og stað-
festa kolefnisbindingu, skilgreindan
varanleika kolefnisbindingar, vott-
aða kolefnisbindingu, umhverfis- og
samfélagslega ábyrgð.
Tonn á móti tonni
Hlutverk skóga í kolefnis-
hringrásinni er að fjarlægja
koltvísýring úr andrúmsloftinu
sem losnað hefur, t.d. við rotnun
lífrænna efna eða vegna bruna jarð-
efnaeldsneytis. Trén binda kolefnið
í vefjum sínum og í jarðvegi en
skila súrefnishluta sameindarinnar
CO2 aftur út í andrúmsloftið.
Ein skógarkolefniseining sam-
svarar einu tonni af koltvísýringi
(CO2) í andrúmsloftinu sem bundið
er í skógi. Til að jafna losun á einu
tonni af CO2 þarf því að telja fram
eina skógarkolefniseiningu. Til að
slíkar einingar geti orðið til þarf
að rækta nýjan skóg og fá kolefn-
isbindinguna vottaða og skráða í
Skógarkolefnisskrá. Einingarnar
eru skráðar „í bið“ til að byrja með.
Eftir fimm ár frá gróðursetningu er
skógurinn metinn til að sjá hvort
hann sé á réttu róli og muni binda
það sem til er ætlast. Með óháðri
vottun eru þessar úttektir staðfestar
og þar með verða skógarkolefnis-
einingarnar fullgildar. Tíu árum
seinna er skógurinn fyrst mæld-
ur og kolefnisbinding staðfest
og vottuð. Þegar skógarkolefnis-
einingar eru notaðar til jöfnunar
á losun er ekki hægt að nota þær
aftur.
Kerfi í mótun
Fyrstu drög að Skógarkolefni eru
nú til kynningar en stefnt er að
því að hægt verði að skrá fyrstu
einingarnar á árinu 2020. Til að
svo megi verða þarf að koma á
laggirnar Skógarkolefnisskrá sem
heldur utan um skógræktarverk-
efni frá því að stofnað er til þess
og þar til vottaðar skógarkolefnis-
einingar hafa verið notaðar á móti
losun. Skógarkolefnisskrá er því eins
konar banki sem tryggir að einingar
standist settar kröfur og að þær séu
aðeins notaðar einu sinni á móti
losun. Einingarnar þarf að votta af
til þess bærum vottunaraðila. Ekki er
nauðsynlegt að einungis ein vottunar-
stofa sjái um slíka vottun heldur þarf
hún aðeins að hafa réttindi til vott-
unar og vera óháð þeim sem stofna
til eða versla með einingarnar.
Ríkið, einkageirinn
og almenningur
Skógarkolefni inniheldur viðmið
fyrir vottun og skráningu á kolefn-
isbindingu með ný-skógrækt á
frjálsum markaði. Almenningur,
stofnanir og fyrirtæki sem vilja
leggja sitt af mörkum til loftslagsbar-
áttunnar og binda kolefni fá þannig
fullvissu um bindingu sína. /VH
Skógarkolefni er nýjung í
kolefnisjöfnun hérlendis
Merki Skógarkolefnis, verkefnis sem Skógræktin hefur hrundið af stað.
Vinsældir vistvænna lanolin-efna sem unnin eru úr sauðfjárull aukast stöðugt:
Ullarfituryðvarnir Smára Hólm
í stærra húsnæði í Hafnarfirði
Smári Hólm Kristófersson, stofn-
andi og eigandi fyrirtækisins „Hjá
Smára Hólm“, er nú að flytja í nýtt
og stærra húsnæði á Suðurhellu í
Hafnarfirði til að ryðverja bifreið-
ar með lanolin fituefni sem unnið
er úr sauðfjárull. Að sögn Smára
eru sífellt fleiri að uppgötva frá-
bæra ryð- og tæringarvarnareig-
inleika þessa.
Verkstæði Smára hefur verið í
frekar þröngu iðnaðarhúsnæði að
Rauðhellu 1 í Hafnarfirði. Hann er
nú að flytja starfsemina í mun stærra
og bjartara húsnæði að Suðurhellu
10. Þarna verður opnað strax eftir
áramót. „Loksins getum við þá farið
að anna eftirspurn,“ segir Smári.
Hann bendir á að lanolin hafi
verið grunnefnið í gamla Mjallar-
bóninu sem mörgum þótti gefa
afbragðs vörn fyrir lakk á bílum.
Þessa eiginleika hafi menn verið að
uppgötva í Prolan efnunum líka og
hafi því jafnvel verið að nota það til
að bóna bíla sína.
Viðurkennt í matvælaiðnaði
Efnið sem um ræðir kemur frá
Prolan á Nýja-Sjálandi, en umboðs-
aðili Prolan sem Smári skiptir við
er Denrex ASP í Danmörku. Hann
kynnti þetta m.a. á landbúnaðarsýn-
ingunni Íslenskur landbúnaður sem
haldin var í Laugardalshöll haustið
2018.
Lanolin ullarolían, sem er lykil-
efnið í vörum Prolan, þykir eitthvert
albesta ryð- og tæringar varnarefni
sem völ er á. Prolan er líka vottuð
NSF vara af Evrópusambandinu
sem vistvænt smurefni fyrir
matvælaiðnaðinn. Vegna þessa
sérstöku skaðleysis eiginleika þá
hafa íslenskir bændur sýnt Prolan
efnunum áhuga, þar sem óhætt
er að nota þau sem ryðvörn á
dráttarvélar og önnur tæki án þess
að valda skaða í umhverfinu eða á
framleiðsluvörum bænda.
Lanolin hefur líka verið nefnt
ullarvax eða ullarfeiti og myndast
í fitukirtlum allra dýra sem hafa
ullarfeld. Það er því líka að finna í ull
af íslensku sauðfé, en þó í tiltölulega
litlu magni. Mun meira af slíkri fitu
er í fé sem alið er á heitari slóðum,
eins og í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi.
Segir Smári að fjölmargir bænd-
ur séu byrjaðir að nota þetta á sinn
vélbúnað. Hefur efnið líka notið vin-
sælda meðal jeppamanna og hafa
bifreiðaumboðin líka verið að skoða
þetta. Þannig er Smári m.a. að fá
glænýjan Mercedes Benz vörubíl til
ryðvarnar með Prolan efni.
Hvorki hættulegt
fólki né skepnum
„Prolan er hvorki hættulegt fólki
né skepnum. Bændur geta því að
skaðlausu úðað þessu efni yfir sínar
heyvinnuvélar, dráttarvélar og önnur
tæki á haustin.
Þá virkar þetta bæði sem smur-
efni og tæringarvörn. Þó þetta fari
á bremsudiska á bílum verða þeir
ekki bremsulausir. Bremsudælur
sem hætt er við að ryðgi haldast fínar
og flottar við að úða á þær Prolani.
Þá þarf engar áhyggjur af hafa af
gúmmífóðringum, þær skemmast
ekki,“ segir Smári. /HKr.
Smári Hólm Kristófersson og dóttir hans, Alína-Eydís Hólm Smáradóttir.
Sigríður Jóna Hannesdóttir verkefnastjóri, Rebekka Kristjánsdóttir sölu-
stjóri og Sigurður Sævar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ístex, með nýju
íslensku ullarsængina.