Bændablaðið - 19.09.2019, Page 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201916
Fiskur gegnir mikilvægu og vax-
andi hlutverki í fæðuöflun jarðar-
búa. Heimsaflinn hefur verið
nokkuð stöðugur um langt árabil
en hlutur fiskeldis eykst jafnt og
þétt. Eldið var komið í 47% af
heildarframboði í fyrra og stefnir
í tæp 49% í ár.
Alþjóðamatvælastofnunin (FAO)
heldur utan um tölur um heims-
framboð á fiski. Í skýrslu frá FAO
sem út kom fyrr á þessu ári segir
að heimurinn hafi haft til ráðstöf-
unar 178 milljónir tonna af fiski á
árinu 2018. Er það um 2,2% aukning
frá árinu 2017. Svona til að setja
þessar tölur í samhengi þá veiddu
Íslendingar tæpar 1,3 milljónir tonna
af fiski árið 2018. Heimsframboðið
árið 2018 skiptist þannig að 94,5
milljónir tonna koma frá hefðbundn-
um fiskveiðum og 83,2 milljónir
tonna frá fiskeldi.
Í þessari grein verður gluggað í
nokkrar tölur FAO um fiskveiðar og
fiskeldi, svo sem heildarmagn og
hverning skipting er milli landa og
einstakra tegunda o.fl. Nýjar tölur
liggja ekki fyrir í öllum tilvikum og
því er ýmist verið að fjalla um árin
2018, 2017 eða 2016.
Áður en lengra er haldið er rétt
að geta þess að orðið „fiskur“ í skýr-
slu FAO er til einföldunar gjarnan
notað sem safnheiti yfir ýmsar aðrar
tegundir en fisk, svo sem rækjur,
krabba, skeljar o.fl. Veiðar á sjáv-
arspendýrum eru ekki inni í þessum
tölum.
Hátt verð og mikil verðmæti
Samkvæmt tölum FAO var afla-
verðmæti veiða og verðmæti eldis í
heiminum metið á um 362 milljarða
dollara árið 2016, eða tæpa 45 þús-
und milljarða íslenskra króna. Þar
af var verðmæti eldis 232 milljarðar
dollara, tæpir 29 þúsund íslenskir
milljarðar.
Vegna mikillar eftirspurnar var
verð á fiskafurðum hátt árin 2017
og 2018. Í skýrslu FAO er birt
þróun vísitölu fiskverðs síðustu
áratuga. Hún fór í hæstu hæðir frá
upphafi mælinga í mars í fyrra en
lækkaði lítillega þegar leið á árið.
Verðþróunin á síðasta ári var þó ekki
öll á einn veg, verð á eldisfiski lækk-
aði að meðaltali en verð á villtum
fiski hækkaði.
Verð í byrjun árs 2019 var enn hátt
í sögulegu samhengi. Viðskiptastríð
milli Kína og Bandaríkjanna og
Brexit hafa skapað óvissu um við-
skipti með fisk í heiminum á þessu
ári.
Eldisfiskur 53%
Megnið af heimsframboði á fiski fór
til manneldis, eða um 88% af heild
árið 2018. Restin fór í framleiðslu á
fiskimjöli eða var ráðstafað á annan
veg.
Fiskneysla í heiminum hefur
aukist gríðarlega. Árið 1961 sporð-
renndi hver maður einungis 9 kílóum
að meðaltali en neyslan er nú komin
í 20,4 kíló á mann á ári. Neyslan
hefur því meira en tvöfaldast á þessu
tímabili.
Fiskneysla á mann skiptist þannig
að 9,5 kíló koma frá veiðum en 10,9
kíló koma frá eldi. Eldisfiskur er
þannig kominn í 53% af fiskneyslu
jarðarbúa. Ráðstöfun á fiski til mjöl-
framleiðslu minnkar hlutdeild veið-
anna í fiskneyslunni.
Ekki liggja fyrir nýlegar tölur
um fiskneyslu Íslendinga. Oft er
vitnað til könnunar sem gerð var
fyrir allnokkrum árum sem sýndi
að neyslan væri 46 grömm á dag
sem gera tæp 17 kíló á mann á
ári. Samkvæmt því er fiskneysla
hjá fiskveiðiþjóðinni Íslandi undir
meðaltali í heiminum.
Ansjósur oftast í fyrsta sæti
Þótt FAO hafi birt gögn um áætl-
aðan heildarafla á árinu 2018 þá
þarf að fara til ársins 2016 til að fá
nánari upplýsingar um skiptingu
afla á einstakar tegundir og veiði-
þjóðir.
Ansjósa við Perú hefur um langt
árabil verið mest veidda fisktegund
í heiminum. Hún lenti þó í öðru
sæti á heimslistanum 2016, með
tæp 3,2 milljónir tonna, vegna
slæms ástands stofnsins af völdum
veðurfyrirbærisins El Nino. Það
ár var alaskaufsi í fyrsta sæti með
tæp 3,5 milljónir tonna. Í þriðja sæti
var randatúnfiskur með rúm 2,8
milljónir tonna. Þetta er sá túnfiskur
sem við kaupum aðallega í dósum.
Ansjósustofninn rétti úr kútnum,
að minnsta kosti um stundarsakir.
Samkvæmt opinberum tölum í Perú
nam veiðin 6 milljónum tonna árið
2018, sú mesta á sex árum.
Ef við horfum á tegundir
sem Íslendingar þekkja best þá
veiddust rúmar 1,6 milljónir tonna
af síld í heiminum, þar af tæpar
1,5 milljónir tonna í Norðaustur-
Atlantshafi. Þorskur skilaði rúmum
1,3 milljónum tonna.
Kínverjar veiða mest
Kína ber höfuð og herðar yfir aðrar
fiskveiðiþjóðir. Kínverjar veiddu um
15,5 milljónir tonna af fiski árið 2016,
eða tæp 17% af heildinni. Indónesía
er í öðru sæti með tæp 6,2 milljónir
tonna. Bandaríkin verma þriðja sætið
með um 4,9 milljónir tonna. Perú er
ekki í þrem efstu sætum þetta árið
vegna ansjósubrests, eins og fyrr er
sagt. Þess má geta að Ísland var í 18.
sæti á heimslistanum árið 2016, með
tæp 1,1 milljón tonna eða um 1,2%
af heimsaflanum.
Gríðarlegt magn af vatnakarpa
Kína er einnig langstærsta landið
í eldi á fiski, með yfir helming
framleiðslunnar.
Ljúkum þessari yfirferð um
heimsframboð á fiski með því að líta
á framleiðslu á helstu tegundum í
fiskeldi á árinu 2017.
Í nokkrum efstu sætunum eru
tegundir sem Íslendingar þekkja
vart nema af afspurn. Vatnakarpi og
skyldar tegundir skipa efsta sætið.
Framleiðsla á vatnakarpa, sem er
ferskvatnsfiskur, nam samanlagt
um 28,3 milljónum tonna sem er
gríðarlegt magn. Tilapia er í öðru
sæti með 5,9 milljónir tonna. Ostrur
eru í þriðja sæti með 5,7 milljónir
tonna.
Rækjur eru í 8. sæti með 5,5 millj-
ónir tonna og lax og silungur koma
næst á eftir með alls 3,5 milljónir
tonna. Um er að ræða hlýsjávar-
rækjur sem Íslendingar þekkja sem
risarækjur.
Spáð er aukinni eftirspurn eftir
fiski í framtíðinni og til að anna þeirri
eftirspurn þarf að efla fiskeldið enn
frekar.
Helmingur af fiskneyslu
heims kemur frá fiskeldi
Kjartan Stefánsson
kjartanst@simnet.is
Ef marka má þjóðháttalýs-
ingu Jónasar Jónassonar frá
Hrafnagili var aldrei keppst
eins mikið við vinnu eins og
fyrir jólin. Einkum var lagt
kapp á að ljúka við ullarvinnu
og prjónaskap á jólaföstunni.
Síðasta vikan fyrir jól var
kölluð staurvika vegna þess að
þá notaði fólk vökustaura til að
halda sér vakandi. Staurarnir
eða augnteprurnar voru gerðar
úr smáprikum ámóta stórum
og eldspýtur en stundum var
notað svokallað baulubein úr
þorskhöfði eða eyruggabein úr
fiski. Skorið var inn í beinið til
hálfs en það haft heilt hinum
megin og á það gerð lítil brota-
löm og skinninu á augnlokinu
smeygt inn í hana. Stóðu þá
endarnir í skinnið og mjög sárt
að loka augunum.
Jónas segir að húsbændur
hafi stundum sett
vökustaura á
þá sem áttu
erfitt með
að halda
sér vakandi
við vinnu
síðustu vik-
una fyrir jól.
Víða þótti til siðs
að þrífa allt hátt og lágt fyrir
jólin. Menn skiptu um nærföt
og stundum var meira að segja
skipt á rúmunum og mestu
sóðar brutu jafnvel venjur sínar
og voru hreinir og vel til hafðir
um jólin.
Samkvæmt gamalli þjóð-
trú lét guð alltaf vera þíðviðri
rétt fyrir jólin, til þess að fólk
gæti þurrkað plöggin sín fyrir
hátíðina og var þessi þurrkur
kallaður fátækrar þerri.
Til siðs var á mörgum býlum
að fara í kaupstað fyrir jólin.
Sumir fóru eingöngu til að
sækja jólabrennivínskútinn til
að eiga til hressingar.
Stundum var lagt út í mikla
óvissu til að ná í jólaölið og
kom fyrir að menn urðu úti í
slíkum nauðsynjaferðum.
Á flestum bæjum var til
siðs að slátra kind fyrir jólin
til að eiga nýtt kjöt yfir jólin og
mun kindin sú hafa verið kölluð
jólaærin. Jónas segir að siður-
inn hafi að mestu verið aflagður
á Norðurlandi í sinni tíð en í
fullu gildi á Vestfjörðum langt
fram á hans daga.
Að sögn Jónasar voru jólin
helgust og mest allra hátíða
enda má rekja þau aftur til
hinnar elstu og römmustu
heiðni á Norðurlöndum og til
Germana.
Um jólaleyti eru allar
ófreskjur og illþýði á ferð og
gera allt illt sem þau geta. Tröll
og óvættir gengu um og voru
Grýla gamla og jólasveinarnir
hennar þar fremstir í flokki.
Ekki mátti leika sér á jóla-
nóttina, hvorki spila né dansa.
Til er saga sem segir að einu
sinni hafi tvö börn farið að
spila spil á jólanótt. Kom þá
til þeirra ókunnugur maður og
fór að spila við þau, hann hvatti
þau til að spila við sig fram eftir
nóttu eða þar til eitt barnið fór
að raula sálmavers en þá hvarf
maðurinn. Þar mun andskotinn
sjálfur hafa verið á ferð.
Víða mun hafa verið til siðs
að kveikja ljós um allan bæinn
á jólanótt svo að hvergi bæri á
skugga.
Þegar búið var að sópa húsið
gekk húsfreyjan í kringum og
bauð álfunum heim með orðun-
um: „Komi þeir sem koma
vilja, veri þeir sem veri vilja,
fari þeir sem fara vilja mér og
mínum að meinalausu.“
Gleðileg jól. /VH
STEKKUR NYTJAR HAFSINS
Ansjósur við Perú eru alla jafna mest veidda tegundin í heiminum. Samkvæmt
opinberum tölum í Perú nam veiðin 6 milljónum tonna árið 2018.
Kínversk skip. Kína ber höfuð og herðar yfir aðrar fiskveiðiþjóðir. Kínverjar veiddu um 15,5 milljónir tonna af fiski
árið 2016, eða tæp 17% af heildinni.
Vatnakarpi og skyldar tegundir skipa efsta sætið í fiskeldi. Framleiðslan nam
samanlagt um 28,3 milljónum tonna 2017 sem er gríðarlegt magn.
Bænda
9. janúar 2020
Vökustaurar