Bændablaðið - 19.09.2019, Page 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201920
Kínverjar eru með stórtækar fyr-
irætlanir í sorpeyðingu og við að
umbreyta sorpi í orku. Þar er m.a.
ný sorporkustöð í byggingu við
Shenzhen-borg norður af Hong
Kong sem á að verður ein stærsta
sorporkustöð í heimi. Hún á að
brenna um 5.600 tonnum af sorpi
á sólarhring og umbreyta því í
hita- og raforku.
Á sama tíma er borgin að niður
greiða meðferðarstöðvar fyrir
veitingastaðaúrgang. Víðs vegar
um Kína eru meira en 50 slíkar
verksmiðjur, sem nota örverur til
að brjóta lífræn efni niður í áburð og
lífgas sem notað er til að framleiða
orku til upphitunar.
Stefnuleysi virðist ríkja
í losun úrgangs á Íslandi
Á Íslandi hefur engin ákveðin stefna
verið mótuð í þessum efnum og sér
kennileg pólitísk feimni og hræðsla
virðist ríkjandi varðandi það að eyða
sorpi með bruna. Á Suðurlandi hafa
menn glímt við þennan vanda og fyr
irséð að flutningur á sorpi til urðunar
í landi Reykjavíkur í Álfsnesi verður
ekki í boði til frambúðar. Helst hefur
verið nefnt að flytja sorpið út í stað
inn til förgunar með skipum með til
heyrandi kostnaði og kolefnisspori.
Menn eru þó smám saman að átta
sig á aðrar og mun umhverfisvænni
lausnir eru vel þekktar sem skyn
samlegt gæti verið að taka upp hér á
landi. Hreinn bruni á sorpi við háan
hita er t.d. umhverfisvænni leið til
að losa sig við sorp en að láta það
rotna í jarðvegsfyllingum. Slíkt er
t.d. gert í sorpeyðingarstöð Kolku
við Helguvík í Reykjanesbæ, en
slæm reynsla af mislukkuðum sorp
brennslustöðvum, eins og á Ísafirði
og á Kirkjubæjarklaustri, hafa fælt
fólk frá frekari tilraunum í þessa átt.
Tæknin er vel þekkt
Frændþjóðir okkar, Svíar, Danir og
Norðmenn, hafa fyrir löngu upp
götvað þennan möguleika og hafa
um áratuga skeið verið að þróa og
starfrækja sorporkustöðvar. Þannig
hefur talsvert af úrgangsefnum verið
flutt frá Íslandi til Svíþjóðar í fjölda
ára undir yfirskini endurvinnslu,
en í raun verið nýtt að stórum
hluta sem eldsneyti fyrir sorp
orkustöðvar. Hér í Bændablaðinu
hefur m.a. verið fjallað um nýja há
tæknilega sorporkustöð á Amager í
Kaupmannahöfn. Einnig hugmyndir
manna um að byggja stóra sorporku
stöð á Vestfjörðum.
Risasorporkustöð byggð
í Kína með danskri tækni
Sama fyrirtæki og hannaði Amager
Bakke sorporkustöðina í Kaup
manna höfn, danska fyrirtækið
Babcock & Wilcox Vølund (B&W
Vølund), hefur komið víða við á
sínum ferli. Fyrirtækið var stofnað
1898, en hannaði sína fyrstu
sorporkustöð árið 1930 og var hún
reist í Gentofte í Danmörku árið
1931. Hófst síðan útflutningur á
þessari tækni árið 1934. Hefur B&W
Vølund verið leiðandi á þessu sviði
allar götur síðan. Hafa sérfræðingar
fyrirtækisins m.a. hannað yfir 500
endurvinnslustöðvar í 30 löndum
og því ekki skrítið að Kínverjar
hafi leitað til þessa fyrirtækis eftir
samstarfi við að leysa sitt gríðarlega
sorpvandamál.
Skartar margverðlaunuðum
snillingum á öllum sviðum
Í október 2007 kom fyrirtækið
Babcock & Wilcox Vølund inn á
kínverskan markað og kynnti sína
lausn við byggingu sorporkustöðva.
Var síðan gerður samningur árið
2015 um að kínverska fyrirtækið
China Sciences Group Holding
fengi heimild til að nýta tækni
B&W Vølund. Nú er bygging sorp
orkustöðvarinnar Shenzhen East
langt komin en verkefnið felur í
sér hönnun og skipulagningu af
miklum metnaði á svæði sem er yfir
1,3 milljónir fermetra. Arkitektarnir
á bak við þetta mikla verkefni eru
Schmidt Hammer Lassen Architects
og Gottlieb Paludan Architects.
Hefur verkefnið þegar unnið til
alþjóðlegra verðlauna, eða IDEAT
Vision Award, 2019. Schmidt
Hammer Lassen Architects hafa
unnið til fjölmargra verðlauna fyrir
störf sín í Asíu. Eru þeir þekktir
fyrir innleiðingu á skandinavískum
byggingarstíl. Gottlieb Paludan
Architects hafa líka áður unnið til
verðlauna í tæknilausnum eins og
Nykredit Architecture Prize, sem
eru helstu arkitektaverðlaunin í
Danmörku.
Vaxandi sorpvandi samfara
aukinni velmegun í Kína
Þrjátíu ára ára efnahagslegur upp
sveifla í Kína og bætt lífskjör hafa
leitt til aukningar í úrgangi frá
þéttbýli. Kína er nú stærsti fram
leiðandi rusls í heiminum eftir að
hafa farið fram úr Bandaríkjunum
í þeim efnum árið 2004. Kínverjar
hafa einnig verið leiðandi í úrvinnslu
á innfluttum úrgangsefnum. Í hlutum
Kína hefur sorpsöfnun og innflutn
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Það styttist í að sorpurðun verði bönnuð en vandræðagangur virðist enn einkenna stöðu mála á Íslandi:
Háþróaðar sorporkustöðvar koma í stað
mengandi urðunar á sorpi víða um heim
– Kínverjar nýta norræna tækni og reisa nú risastóra sorporkustöð sem tekur til starfa 2020
Shenzhen East-verkefnið í Guangdong-héraði í Kína snýst um að setja upp 165 megawatta orkuver. Þetta verður ein stærsta sorporkustöð heims þegar
hún verður fullbúin á næsta ári. Verið mun geta brennt 5.600 tonn af föstum úrgangi frá sveitarfélögum á svæðinu á sólarhring.
Shenzhen East-sorporkustöðin er á svæði sem spannar yfir 1,3 milljónir fermetra.
Amager Bakke-sorporkustöðin í Kaupmannahöfn.
Hönnun sorporkustöðvar Shenzhen
East þykir vera til mikillar fyrirmynd-
ar og í hópi hönnuða er margverð-
launað lið arkitekta.