Bændablaðið - 19.09.2019, Page 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201922
Í Bændablaðinu 24. október sl.
var grein sem hét „Ráðgátan
um humarstofninn“. Sagt var
frá því að humarstofninn væri
í dýpstu lægð frá því að veiðar
á humri hófust fyrir rúmum 60
árum, en nýliðunarbrestur hefur
verið sl. 9 ár. Veiðar séu að mestu
bannaðar og miðist nú við sk.
könnunarveiðar til að fylgjast
með ástandi stofnsins.
Þar er Jónas Páll Jónasson,
fiskifræðingur á Hafró, sem stýr-
ir rannsóknum á humarstofninum,
spurður að því hvers vegna sé svo
illa komið fyrir humarstofninum.
„Stutta svarið er að við höfum
ekki skýringu á því hvað veldur“
segir Jónas.
Ljótt er ef satt er, sérfræðingur-
inn sem stýrir veiðum, nýtingu og
rannsóknum á humri veit ekkert
hvaða þættir hafa áhrif á stofninn,
sem hann er ábyrgur fyrir.
En hann fer þá leið að giska á
ýmislegt sem gæti valdið því að
nýliðun, endurnýjun stofnsins,
hafi brugðist:
1. Makríllinn varla sökudólg-
urinn, segir hann, nýliðunar-
bresturinn hófst ekki fyrr en
2005.
2. Breyttar umhverfisaðstæð-
ur líkleg skýring, en frekari
rannsóknir þurfi til, athuga
þurfi hvort frumframleiðslan
hafi verið seinna á ferðinni
með því að skoða gervihnatta-
gögn. Þá kunni hærra hitastig
að hafa áhrif á þroskunarferli
eggjanna. Þá þurfi að vakta
fyrstu skeiðin á þroskunarferli
humarsins betur.
Það vekur athygli mína að hann
minnist ekkert á þær hættur sem
humarinn þarf að forðast. Annað
er sjálfrán eða sjálfát þar sem stór
humar étur smærri humar. Hitt er
afrán, þar sem aðalóvinurinn er
þorskur. Varðandi hitastig sjávar
má benda á að það hefur verið
stöðugt eða lítillega lækkandi
frá s003 skv. mælingadufli við
Vestmannaeyjar.
Sjálfát humars
Vatnahumar (Astacus) er ná-
skyldur leturhumri (Neprops) og
þar sem hann er ræktaður verður
hver og einn að vera í sérstöku
búri á stærð við eldspýtustokk til
að koma í veg fyrir að þeir éti hver
annan. Ungarnir leita skjóls undir
skildi kvendýrsins, annars étur
karlinn þá. En eftir um 30 daga
verða þeir að flýja því annars étur
mamman þá.
Vatnahumarinn er næturdýr,
hann fer á kreik út úr holu sinni
þegar rökkvar til að forðast að
verða rándýrum að bráð. Hann er
í mestri hættu að verða étinn þegar
hann skiptir um skel. En hann fer
út úr holunni á daginn til skelskipta
því hann metur það svo að það sé
öruggara að vera á ferðinni þegar
aðrir humrar eru í holum sínum
og taka frekar áhættuna á að vera
étinn af fiskum.
Alþekkt er frá Skotlandi og
Írlandi að humar étur undan sér.
Tilraunir með að friða svæði í
þeim tilgangi að stækka stofninn
hafa reynst afar illa. Þegar svæði
voru opnuð aftur eftir nokkurra ára
friðun gripu menn í tómt, einung-
is veiddust nokkrir stórir humrar.
Þar hafa menn lært að miðin þurfa
stöðuga áníðslu til að hindra sjálfát
en þessi mikla sókn leiðir auðvitað
til þess að humarinn er almennt
smærri en menn velja að sjálfsögðu
marga smærri en örfáa stærri.
Hér á Íslandi er brugðist við
samdrætti í humarstofninum með
því að draga úr sókn, sem er rangt
sé það rétt að humarinn éti undan
sér. Ekki eru gerðar neinar tilraunir
með það. Það vekur athygli mína
að hann minnist ekkert á þær
hættur sem humarinn þarf að forð-
ast. Annað er sjálfrán eða sjálfát
þar sem stór humar étur smærri
humar. Hitt er afrán, þar sem aðal-
óvinurinn er þorskur. Mismunandi
veiðiálag á mismunandi svæðum
til að kanna hvort betra sé að
minnka eða auka sókn. Litið er á
humarstofninn sem eitt mengi þótt
veiðisvæðin séu dreifð.
Afrán
Alþekkt er meðal sjómanna að
þorskur sem veiðist á humarslóð
er að éta humar og oft er það hans
aðalfæða. Þar sem stefnan hefur
verið að byggja upp þorskstofn-
inn með friðun hefur verið mikið
unnið að því að hanna veiðarfæri
sem skilja þorsk frá öðrum afla.
Þetta á við bæði um rækju og
humarveiðar.
Reynslan í Noregi eftir að farið
var að setja fiskskiljur í rækjutroll
var að við það minnkuðu tekjur
sjómanna um þriðjung vegna þess
að þá hvarf meðafli af fiski sem
gaf þessar tekjur. Þegar frá leið
minnkaði rækjuaflinn og þar með
tekjur sjómanna. Ástæðan fyrir
minnkuðum rækjuafla var að hætt
var að fjarlægja átvaglið, fiskinn,
sem var að djöflast í rækjunni.
Hafró hóf athuganir á afráni ýsu
og þorsks 2008 en þá var farið að
greina magainnihald þorsks og
ýsu sem veiddist í humarleið-
öngrum stofnunarinnar. Nokkuð
seint í rassinn gripið að margra
mati, enda sjómenn búnir að
vita lengi að oft var þorskurinn
fullur af humri. Auk þess höfðu
rannsóknir erlendis í Írska hafi
og Norðursjó sýnt að þorskur át
mikið af humri. Ein rannsókn við
Ísland 2001/2002 hafði sýnt að
afrán þorsks á humri var töluvert.
Niðurstaða þessarar rannsókn-
ar Hafró var í stuttu máli sú að
afránsvísitalan benti til þess að
afrán á humri hafi verið töluvert
árin 2009 til 2010 en lækkað eftir
það.
Athygli vekur að ekkert er
minnst á hvaða stærðir humars
voru í þorskmögunum, ef menn
voru að leita skýringa á slakri
nýliðum humars, en e.t.v. voru
þeir ekkert að hugsa út í það.
Það hefur lengi verið stefna
Hafró að byggja upp þorskstofninn
með friðun. Sóknarþunga í þorsk
hefur verið breytt úr 35–40% árin
1981–93 í að vera undir 20% sl.
10 ár. Hrygningarstofn þorsks
var fram undir síðustu aldamót
tæp 200 þús. tonn en er nú kom-
inn í sögulegt hámark, 650 þús.
tonn, sem er rúm þreföldun á 10
árum. Þá hefur hlutfallslega verið
veitt minna á vertíð en áður, því
útgerðarmenn vilja heldur veiða
þann kvóta sem þeim er úthlut-
að utan vertíðar, þegar fiskverð
er hærra.
Ætla má að vertíðarþorskur
eftir hrygningu sé sá sem mest
étur af humri og að át þorsks á
humri sé í réttu hlutfalli við stærð
hrygningarstofnsins.
Ein kennisetning Hafró er að
stór hrygningarstofn þorska auki
nýliðun. Reynslan sýnir að það
er ekki rétt, nýliðun þorsks hefur
verið léleg í rúm 15 ár, líklega
vegna þess að þorskurinn étur
undan sér. Þessi minnkaða sókn í
þorskstofninn hefur ekki eingöngu
verið aflatap í þorski heldur einnig
í öðrum tegundum fiska, rækju og
humri. Engin breyting á þessari
stefnu er í sjónmáli þótt gögn um
skaðsemi hennar hrannist upp.
Minnkuð sókn og veljandi
veiðarfæri
Sókn í humar hefur minnkað mikið
og er nú svo komið að eingöngu
eru stundaðar sk. könnunarveiðar.
Á áttunda áratugnum stunduðu
158 bátar veiðarnar, en settar voru
strangari reglur um veiðarnar með
ákveðnum hámarksafla, sem var
3000 tonn 1973 og 2000 tonn
1974 auk þess sem bátarnir voru
bundnir hámarksstærð. 1976–2013
var ársaflinn 1400–2700 tonn en
minnkaði svo hratt. Bátum hefur
mjög fækkað, nú eru 18 skráðir
með kvóta, auk þess hafa veiðarfæri
verið þróuð til að minnka meðafla
af fiski, velja úr stærri humarinn og
vernda þann smáa.
Legggluggi með 200 mm
möskvastærð hefur um langa hríð
verið lögboðinn við veiðar á humri
í botnvörpu og þjónar þeim tilgangi
að hleypa út smáfiski. Rannsóknir
2009 leiddu í ljós að með því að
nota stórriðið yfirbyrði mátti ná enn
betri árangri í að hleypa út smáfiski,
jafnframt því sem tilraunavarpan
veiddi hlutfallslega minna af smá-
humri.
Það er klassískt verklag Hafró
innan Alþjóða hafrannsóknastofn-
unarinnar, ICES, að reyna að
stækka stofna með friðun, og
vernda ungviði, með því að velja
stærstu dýrin. Það hefur vægast sagt
gefist illa en þrátt fyrir mikla fag-
lega gagnrýni er haldið sama striki.
Jón Kristjánsson
fiskifræðingur
TÆKNI&VÍSINDI
NYTJAR HAFSINS
Humarraunir Hafró
Leturhumar veiddur á N-Írlandi.
Humarinn sem kemur í land úr írska hafinu er smár, enda er sóknin mikil.
Þessir humarhalar eru unnir í það sem á Bretlandseyjum kallast scampi.
Hrygningarstofn þorsks (rauða línan) hefur rúmlega þrefaldast á rúmum
áratug en nýliðun stendur í stað. Fæðuþörf stofnsins hefur aukist að sama
skapi og ekki ólíklegt að hann hafi lagst á humarinn enda eru hrygningar-
stöðvar þorsksins og uppvaxtarsvæði á svipuðum slóðum.
Jón Kristjánsson.
Humaraflinn 1980–2018. Aflinn hefur fallið hratt sl. 10 ár og útlitið svart.