Bændablaðið - 19.09.2019, Qupperneq 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201924
GLÍMT VIÐ NÁTTÚRUÖFLIN
Ábúendur á Vöðlum í Önundarfirði eru vel settir með varaafl þegar óveður dynja yfir:
Lítið mál að skella inn varaafli ef eitthvað bjátar á
– „Ég á í raun tvær varadísilstöðvar,” segir Árni Brynjólfsson bóndi og hrósar um leið fyrirhyggju Orkubús Vestfjarða
Árni Brynjólfsson og Erna Rún
Thorlacius búa á Vöðlum í
Önundarfirði með um 50 mjólk-
andi kýr. Óveðrið sem gekk yfir
landið í síðustu viku olli þeim þó
engum teljandi vandræðum.
Árni sagði að óveðrið í síðustu
viku hafi ekki verið að plaga þau neitt
að ráði miðað við það sem heyrð
ist af vanda bænda á Norðurlandi.
Hann segir að ekki hafi heldur borið
á truflunum í afhendingu rafmagns
frá Orkubúi Vestfjarða.
Hrósar Orkubúinu
fyrir fyrirhyggju
„Hjá Orkubúinu ákváðu þeir að
ræsa tímanlega varaaflsstöðina í
Bolungarvík til að hafa allt til reiðu
ef bilanir yrðu á línum. Þeir eiga hrós
skilið fyrir að sýna þá fyrirhyggju.
Það datt því ekkert út rafmagnið
hér hjá okkur þótt einhverjar trufl
anir hafi verið á Þingeyri og víðar
í Dýrafirði.“
Vel sett með varaafl
Árni segist reyndar búa vel hvað
varaafl varðar, bæði hvað varðar
raforku fyrir mjaltaþjón og aðra
starfsemi. Við bæinn er lítil vatns
aflsvirkjun sem búin er að þjóna
bændum á Vöðlum síðan 1952.
Hún hentar samt ekki til að knýja
mjaltaþjón.
„Hún dugar ekki nema fyrir
gamla bæinn, en hann var aldrei
tengdur við veitukerfið. Virkjunin
dugði hins vegar ekki fyrir þau hús
sem ég hef byggt og þau eru tengd
við veiturafmagn frá Orkubúinu. Þá
keypti ég nýja varaaflsstöð um leið
og ég keypti róbótinn.“
Segir Árni að ekki hafi verið
verjandi annað en að vera með
öruggt varaafl á staðnum, enda
hafi það nánast verið fastur liður í
Önundarfirði og víðar á Vestfjörðum
á hverjum einasta vetri á árum áður
að rafmagnið dytti út. Jafnvel oft
yfir veturinn.
Mikilvægt að missa
kýrnar ekki út úr rútínu
„Það vita það allir sem þekkja inn
á kýr að ef menn missa þær niður í
nyt vegna þess að ekki er hægt að
mjólka, þá eru menn búnir að tapa
tekjunum af þeim kúm þar til eftir
næsta burð. Einhverjar kunna að
jafna sig að hluta eftir slík áföll en
obbinn af kúnum missir nyt. Það er
allavega mín reynsla,“ segir Árni.
„Það er búin að vera varaafls
stöð hér allan minn tíma í búskap.
Reyndar var komin varaaflsstöð hér
fyrir gamla fjósið áður en róbótinn
kom. Þannig að ég á í raun tvær vara
dísilstöðvar.
Ég hef alltaf getað snúið lykli og
sett í gang varaaflið ef rafmagnið
hefur farið eitthvað úr skorðum í
veitukerfinu. Svo er rofi við raf
magnstöfluna þar sem ég skipti á
milli. Þannig hafa slíkar truflanir
engin áhrif á okkur.“
Margt búið að gera til
úrbóta í flutningskerfinu
„Þeir mega samt eiga það hjá
Orkubúinu að það hefur verið margt
gert til úrbóta á þeim 30 árum sem ég
hef stunda hér búskap. Það er búið
að leggja jarðstrengi á verstu köfl
unum þar sem línur voru gjarnar á
að gefa sig og staurastæður að fara
í snjóflóðum.“
Byggja nýtt haughús og aðstöðu
fyrir nauta- og kvígauppeldi
Þau hjón hafa verið að byggja nýtt
haughús við fjósið á Vöðlum. Ofan
á því er hugmyndin að vera með
uppeldisfjós fyrir naut og kvígur
sem ekki hefur verið mögulegt að
ala hingað til. Þannig munu þau hjón
væntanlega styrkja tekjugrunn bús
ins. Árni segist að öðru leyti ekki
ætla að bæta við sig mjólkurkúm
nema það sem núverandi fjós býður
upp á.
Þau hjón eru líka vel sett hvað
moksturstæki varðar þótt hressi
lega snjói. Er Árni með snjóblásara
til taks sem mikið var nýttur fyrir
Vegagerðina meðan hann stundaði
þar verktöku á vetrum.
Öll mjólkin frá Vöðlum fer
nú beint til vinnslu hjá Örnu í
Bolungarvík. Hefur sú mjólkur
vinnsla mjög verið að sækja í sig
veðrið og nýtir hún nú meiri mjólk
en framleidd er á Vestfjörðum. Þar
vonast menn líka til að við tilkomu
Dýrarfjarðarganga opnist leið til að
liðka fyrir flutningum og stytta leið
með mjólk af Barðaströndinni. /HKr.
Árni Brynjólfsson, bóndi á Vöðlum,
algallaður að sinna útiverkum.
Árni er líka vel tækjavæddur til snjó-
moksturs.
Víða fennti hressilega í óveðrinuná dögunum. Þessa mynd tók Guðrún
Lárusdóttir, bóndi í Keldudal í Skagafirði.
Við sérhæfum okkur í þinni starfsemi
Óskum bændum, búaliði og landsmönnum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Þökkum kærlega fyrir viðskiptin á liðnu ári
og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.
Stjórn og starfsfólk
Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins
Gunnhildur Gylfadóttir á Steindyrum og mæðgurnar á Klaufabrekkum, þær
Jóna Heiða Gunnlaugsdóttir og Soffía Hreinsdóttir, sóttu geitur upp í Urða-
björg, en þær höfðu sökum óþægðar ekki skilað sér til byggða í haust.
Myndir / Hjálmar Herbertsson
Nokkrar geitur á tveimur bæjum
í Svarfaðardal, Steindyrum og
Klaufabrekkum, ganga saman í
fjalli ofan þeirra á sumrin. Þær
höfðu ekki náðst heim í haust
sökum óþægðar og staðsetningar
í klettum.
Eftir að óveðrinu sem skall á í
síðustu viku slotaði fóru þau fjögur
af stað að sækja þær, Gunnhildur
Gylfadóttir á Steindyrum og mæðg
urnar á Klaufabrekkum, þær Jóna
Heiða Gunnlaugsdóttir og Soffía
Hreinsdóttir. Með í för var Hjálmar
Herbertsson.
Geiturnar voru upp við Urðabjörg
og náðust þar. „Þær óþægustu tvær
voru bundnar saman svo þær gerðu
nú ekkert af sér á heimleiðinni.
Steindyrageiturnar eru með bjöllur
sem hljómuðu jólalega á leiðinni
niður en við bættist hljómurinn í
snjókleprunum á þessum greyjum,“
segir Gunnhildur. Geiturnar eru nú
allar komnar á hús og hinar spræk
ustu. /MÞÞ
Sóttu geitur upp í fjall
eftir að óveðri slotaði
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 9. janúar 2020