Bændablaðið - 19.09.2019, Page 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201928
LÍF&STARF
„Fólk með forystufé elskar að tala
við forystufé og um forystufé“
– segir Gulla á Gróustöðum í Gilsfirði sem skrifaði BA-ritgerð um forystufé og hefur stofnað vinsæla Facbook-síðu um forystufé
Gulla á Gróustöðum, eins og hún
er alltaf kölluð, er mögnuð kona
sem elskar að heyra sögur og
umgangast forystufé. Hún stofn-
aði nýlega síðu á Facebook sem
heitir „Forystufé“, sem hefur sleg-
ið í gegn því þar eru meðlimirnir
orðnir tæplega 500 talsins.
Á Gróustöðum hefur verið for-
ystufé í um 20 ár, auk þess sem
forystuhrútar af bænum hafa verið
á sæðingarstöð. Vorið 2015 útskrif-
aðist Gróa sem þjóðfræðingur eftir
að hafa skrifað BA-ritgerð um for-
ystufé, þar sem hún tók saman ritaða
sögu forystufjár og viðhorf til þess
síðustu 100 árin eða svo. Áhugi
hennar á þessum stofni er því ansi
víðtækur. En byrjum á byrjuninni,
hver er Gulla á Gróustöðum?
Skjalavörður fyrir
utanríkisráðuneytið
„Ég heiti Guðlaug Guðmunda
Ingibjörg Bergsveinsdóttir, þekkt
sem Gulla, uppalin á Gróustöðum
í Gilsfirði, og er fjórða kynslóð í
beinan kvenlegg sem býr þar. Ég
útskrifaðist sem þjóðfræðingur frá
Háskóla Íslands vorið 2015 en í
framhaldi af því vildi ég komast
í einhverja verklega vinnu aftur,
svo ég réði mig hjá Kjötafurðastöð
Kaupfélags Skagfirðinga og var
þar í tvö ár, þar sem ég sá um
heimatökuna í sláturvertíð. Eftir
það fékk ég aðeins þjóðfræðilegri
vinnu sem skjalavörður fyrir utan-
ríkisráðuneytið, í starfsstöð þeirra á
Sauðárkróki og var þar í ár.“
Sýning um íslenska haförninn
Haustið 2017 létust amma Gullu og
mamma heima á Gróustöðum, en
hún hafði alltaf verið með annan
fótinn heima, stundum báða, frá
því að hún „flutti burt“ um 16 ára
þegar hún byrjaði í framhaldsskóla
á Akranesi.
„Í lok febrúar 2019 var ég komin
með allt of mikla heimþrá, fluttist
frá Króknum og aftur heim og hef
ekki séð eftir því. Ég tók við sem
framkvæmdastjóri hjá litlu fyrirtæki
sem foreldrar mínir stofnuðu árið
2012 og kallast „Össusetur Íslands“,
en það er með sýningu um íslenska
haförninn ásamt því að vera með
hliðarverkefnið „GilsfjordurArts“.
Það er „art residency“ og felst í
því að taka á móti listamönnum
hvaðanæva að úr heiminum, kynna
þá fyrir Gilsfirði og sveitinni minni
og veita þeim stað í nokkrar vikur
til að skapa list sína í friði og kynna
svo fyrir heimafólki,“ segir Gulla.
Í síðasta mánuði réði hún sig í
starf hjá Rannsóknasetri Háskóla
Íslands á Stöndum við að rannsaka
þjóðsögur um fugla, ásamt því að
vera í heimilishjálp, þannig að hún
sankar að sér hinum og þessum
hlutastörfum. Ofan á þetta hjálpar
hún aðeins til með sauðfjárbúskap-
inn á Gróustöðum, en pabbi hennar
tók við búskapnum eftir að mamma
hennar féll frá.
„Nema hvað ég sé um skemmti-
lega hluti sem voru á hennar könnu,
eins og að berjast við Fjárvís,“ segir
Gulla og skellihlær.
20 forystukindur
í 300 kinda hjörð
Gulla segist vera alin upp í kringum
sauðfé á Gróustöðum. Nágranni
fjölskyldunnar í Gilsfirði, Halldór
í Múla, gaf bróður Gullu for-
ystugimbur kringum árið 1999, sem
fékk nafnið Komma. Þegar Halldór
hætti svo að búa í Múla nokkrum
árum síðar fékk fjölskylda Gullu
fleira forystufé frá honum og áður
en þau vissu af voru þau komin með
20 forystukindur í 300 kinda hjörð.
„Mamma ber mesta ábyrgð á
sauðfjáráhuganum mínum. Við
gátum talað endalaust um forystu-
féð, hún hringdi í mig þegar ég var
að heiman og í skóla og sagði mér
hvað það var að gera af sér, við
ræddum hvernig persónuleika það
hefði, hvernig samskiptin við það
væru og hvernig við héldum að for-
ystulambgimbrarnar/gemlingarnir
yrðu seinna meir. Hún var þrusugóð-
ur sauðfjárbóndi því hún hugsaði svo
mikið um féð sjálft, það gekk alltaf
fyrir öllu,“ segir Gulla.
BA-ritgerð um forystufé
Þegar Gulla hóf nám í þjóðfræði
gerði hún sér strax grein fyrir því
að hún gæti fléttað saman þennan
áhuga sinn á sveitinni, sauðfé og
forystufé við námið.
„Það þróaðist út í heila
BA-ritgerð sem ég gerði með
hjálp Forystufjársetursins, Ólafs
R. Dýrmundssonar, foreldra minna
og ýmissa fleiri. Í ritgerðinni fór
ég bæði í gegnum ritaða sögu
forystufjár, en elsta heimildin um
það er síðan um aldamótin 1200 í
„Íslensk hómilíubók“ og svo tók ég
nokkur viðtöl, fjallaði um þau og
greindi út frá þjóðfræðilegu sjón-
arhorni. Ein af niðurstöðunum var
einfaldlega sú að fólk með forystufé
elskar að tala við forystufé og um
forystufé,“ segir Gulla. Hún hvetur
áhugasama að fara inn á Skemmuna,
skemman.is, leita eftir „forystufé“
og lesa ritgerðina sér til ánægju og
fróðleiks.
Gulla í kindakjólnum sínum að tala við forystukindina Röskvu. Mynd / Úr einkasafni
Kindin Kleó, barnabarn Kommu sem margir þekkja, ásamt hrútnum sínum
í vor. Mynd / Úr einkasafni
Gulla kallar þessar mynd „Mórautt merkikerti“ en þetta er hrútur undan
Freyju sem var seldur. Mynd / Úr einkasafni
Gulla með hrútnum Brúski og tíkinni Æsu. Mynd / Úr einkasafni