Bændablaðið - 19.09.2019, Side 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201930
Karólína í Hvammshlíð gefur út nýtt dagatal:
Nú þarf að fjármagna
vegarslóðagerð
Í fyrrahaust vakti það talsverða
athygli þegar af því fréttist að
Karólína í Hvammshlíð hefði
náð að safna peningum til kaupa
á sinni fyrstu dráttarvél, með
sölu á ljósmyndadagatali sem gaf
innsýn inn í lífið á bænum allan
ársins hring. Hún hefur nú gefið
út nýtt dagatal fyrir árið 2020 og
segir að nú þurfi að fjármagna
vegarslóðagerð frá bænum hennar
niður að þjóðvegi.
Karólína býr ein í Hvammshlíð
með sinn litla blandaða bústofn;
rúmlega 50 kindur, fáein hross og
tvo hunda. Dagatalið sem kom út
í fyrra var eins konar búfjárdagatal
með alþýðlegum fróðleik um sögu
daganna og bæði með íslenskum og
þýskum texta – enda er stór hluti
viðskiptavina hennar þýskumæl-
andi ferðamenn. Tvö upplög af
því seldust upp. Hún segir að nýtt
dagatal sýni meðal annars hvernig
dráttarvélin, sem er af gerðinni Zetor
7245, árgerð 1990, hefur staðið sig
á þessu ári.
Hvammshlíð er í Skagabyggð
í Austur-Húnavatnssýslu og var
eyðijörð þegar Karólína keypti
hana fyrir nokkrum árum. „Margir
hvöttu mig til að búa til aðra útgáfu,
en þar má finna úrvalsmyndir af
litríku kindahjörðinni, hrossunum
fjórum og hundunum Baugi og
Kappa sem veita enn dýpri innsýn
í hversdagslífið uppi í fjöllunum,“
segir Karólína.
„Dagatalið er í stóru broti, 42 x
30 sentímetrar – eða jafnvel 42 x
60 sentímetrar ef maður hengir það
upp á efra blaðinu til að sjá allar
myndir og upplýsingar hvers mánað-
ar í einu. Upplýsingar um gömlu
mánuðina á borð við Þorra, Hörpu
og Einmánuð er þarna að finna ásamt
helstu merkisdögum Íslendinga. Svo
fylgir viðauki í svart-hvítu með þeim
upplýsingatexta sem var í fyrri
útgáfu. Einnig gamlar íslenskar
mælieiningar, smá bakgrunnur um
sauðamjaltir og nokkur ómissandi
orð í kringum sauðfé. Að þessu sinni
prýðir líka ein gömul mynd hvert
mánaðarblað sem spannar tímabilið
frá 1874 til 1950,“ útskýrir Karólína.
Dagatalið fæst að sögn Karólínu á
nokkrum stöðum en best sé að hafa
samband beint við sig í gegnum
netfangið 14carom@web.de eða
síma 8658107, en það kosti 3.000
krónur eins og á síðasta ári. /smh
Ferðaþjónusta:
Hey Iceland veitt hvatningar
verð laun Ábyrgrar ferðaþjónustu
Ferðaþjónustufyrirtækinu Hey
Iceland, sem sérhæfir sig í ferða-
lögum á landsbyggðinni, var veitt
hvatningarverðlaun Ábyrgrar
ferðaþjónustu þann 5. desember
á Hótel Sögu
Verðlaunin voru veitt á viðburði
sem haldinn var í nafni verkefnisins
Ábyrg ferðaþjónusta, en tilgangur
þess er að stuðla að því að Ísland
verði ákjósanlegur áfangastaður
ferðamanna um ókomna tíð þar sem
stutt er við sjálfbærni fyrir komandi
kynslóðir.
Í rökstuðningi dómnefndar fyrir
verðlaununum segir meðal annars að
fyrirtækið byggi á traustum grunni
Ferðaþjónustu bænda og hafi starfað
eftir sjálfbærnistefnu frá árinu 2002.
Fyrirtækið hafi verið þátttakandi í
Ábyrgri ferðaþjónustu frá upphafi,
sett sér markmið og birt þau í tengsl-
um við áherslur verkefnisins. Þá
hafi það sett sér mælikvarða til að
meta árangurinn.
Stefnt að kolefnisjöfnun
„Fyrirtækið er gæðavottað af
Vakanum, með gull-umhverfis-
merki og sýnilegt er að áhersla er
lögð á sjálfbærni í starfsemi fyr-
irtækisins. Þá hvetur Hey Iceland
samstarfsfyrirtæki sín til þess að
vera með vottun hjá Vakanum og
hefur þannig jákvæð áhrif á sitt
nærsamfélag og ferðaþjónustu á
Íslandi.
Hey Iceland stefnir að kolefn-
isjöfnun á öllu flugi Bændaferða
árið 2020 og mun kolefnisjafna
sína starfsemi samhliða því. Hey
Iceland sýnir fordæmi fyrir aðra
aðila í þessum skrefum og á starfs-
fólk Hey Iceland hrós skilið fyrir
metnaðarfull verkefni á sviði
umhverfismála. Þá ber einnig að
nefna verkefnið „Hleðsla í hlaði“
sem unnið hefur verið að í sam-
starfi við fjölda aðila.
Fyrirtækið er með sjálfbæra
ferðaþjónustu að leiðarljósi og er
í einstakri stöðu til að hvetja aðra
til góðra verka og vinna saman
að verk efnum heimsmarkmiða
Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra
þróun.
Margar flottar tilnefningar bár-
ust dómnefnd en var niðurstaðan sú
að Hey Iceland væri vel að þessum
hvatningarverðlaunum komin og
þá sérstaklega vegna þess áhrifa-
máttar sem fyrirtækið getur haft
á aðra. Hey Iceland hefur mikið
tækifæri til að vera innblástur og
fyrirmynd í ábyrgri ferðaþjón-
ustu fyrir samstarfsfélaga sína og
ferðaþjónustu á Íslandi,“ segir í
rökstuðningnum.
Fjöldi ferðaþjónustufyrirtækja
þátttakandi í verkefninu
Íslenski ferðaklasinn og Festa, mið-
stöð um samfélagsábyrgð, stofnuðu
til verkefnisins Ábyrg ferðaþjónusta
árið 2017 ásamt samstarfsaðilum og
bakhjörlum. Fjöldi ferðaþjónustufyr-
irtækja hefur skrifað undir yfirlýsingu
um þátttöku í verkefninu og þar með
heitið því að setja sér markmið og
mæla árangur sinn reglulega.
Ganga vel um náttúruna
Meðal þeirra atriða sem felast í þeirri
þátttöku er að ganga vel um og virða
náttúruna, tryggja öryggi gestanna og
koma fram við þá af háttvísi, virða
réttindi starfsfólks og hafa jákvæð
áhrif á nærsamfélagið sitt. /smh
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Loftslagssjóður var stofnaður á þessu ári og heyrir undir
umhverfis- og auðlindaráðherra. Hlutverk sjóðsins er
að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála
og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif
loftslagsbreytinga. Rannís hefur umsjón með sjóðnum.
Boðið er upp á tvær styrktegundir og eru styrkirnir
veittir til eins árs:
• Styrkir til kynningar og fræðslu um loftslagsmál.
• Styrkir til nýsköpunarverkefna, ætlaðir meðal annars
til þess að styrkja rannsóknir og þróunarstarf í tengslum
við innleiðingu á nýjum loftslagsvænum tæknilausnum
og hönnun.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 þann 30. janúar 2020.
Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum rafrænt
umsóknarkerfi Rannís. Ekki er tekið við gögnum eftir að
umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar og reglur um sjóðinn er að finna
á www.rannis.is
Loftslagssjóður
Umsóknarfrestur til 30. janúar 2020
Hvammshlíðin böðuð í leiftrandi norðurljósum og Zetorinn stendur í hlaðinu.
Hugrún Hannesdóttir tók við verðlaununum fyrir hönd Hey Iceland og hún er
hér með blómvöndinn. Með henni eru frá vinstri Ásta Kristín Sigurjónsdóttir,
framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans, Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, og Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður stjórnar Samtaka ferðaþjón-
ustunnar. Mynd / Íslenski ferðaklasinn
Bændaferðir sýna samfélagslega ábyrgð:
Allar ferðir kolefnis
jafnaðar á næsta ári
Bændaferðir hafa sett sér það
markmið fyrir næsta ár að allar
flugferðir þeirra verði kolefn-
isjafnaðar. Heildarverð ferðar,
með kolefnisgjaldi, verður þannig
búið að reikna inn í ferðirnar og
borgar farþeginn helming kolefn-
isgjaldsins en Bændaferðir hinn
helminginn.
Bændaferðir eru vörumerki
í eigu Ferðaþjónustu bænda hf.
og að sögn Sævars Skaptasonar,
framkvæmdastjóra fyrirtækisins, er
kolefnisjöfnunin hluti af sjálfbærni-
stefnu sem mótuð var árið 2002 og
unnið hefur verið eftir síðan. Með
henni sýni fyrirtækið samfélagslega
ábyrgð.
Bændur í lykilstöðu
Sævar segir bændur líka í lykilstöðu
til að binda kolefni í jörðu og því sé
samstarf við grasrótina gríðarlega
mikilvægt en ferðaþjónustubændur
vinna margir hverjir mikilvægt starf
á sviði landgræðslu, skógræktar og
endurheimtar votlendis.
Að sögn Sævars rennur kolefn-
isgjaldið í sérstakan sjóð og verður
úthlutað úr honum í fyrsta sinn í byrj-
un árs 2021. Ítrekar hann að áhersla
verði lögð á gagnsæi og kynningu
á framgangi þeirra verkefna sem
sjóðurinn styrkir, en þannig geti við-
skiptavinir og aðrir áhugasamir fylgst
með því hvernig
fjár munum sjóðs-
ins er varið.
Ábyrg ferðaþjón-
usta
Varðandi út-
reikning á kol-
e f n i s g j a l d i n u
munu Bændaferðir
styðjast við reiknivél Alþjóða flug-
málastofnunar (ICAO), en sam-
kvæmt þeim for sendum myndi
kolefnisgjald
á flugi með
Bændaferðum
til München
í Þýskalandi
nema 892
krónum – sem
skiptist þá jafnt á milli farþega og
Bændaferða.
Ferðaþjónusta bænda er gæða-
vottað af Vakanum, með gull-um-
hverfismerki og þátttakandi í hvatn-
ingarverkefninu Ábyrg ferðaþjón-
usta. /smh
Sævar
Skapta son.
Starfsfólk Hey Iceland og Bændaferða fór saman í aðventuferð til Þýskalands í
desember. Bæði starfsfólk og fyrirtækið lögðu sitt af mörkum til kolefnisjöfnunar
ferðarinnar með fyrstu framlögunum í kolefnisjöfnunarsjóðinn.