Bændablaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201932
Góður árangur hefur náðst í baráttunni gegn riðu:
Skjálfandahólf gæti orðið
riðufrítt um áramótin
Ef ekki kemur upp riðutilfelli
í Skjálfandahólfi til áramóta
mun það verða skilgreint sem
riðufrítt varnarhólf, enda hefur
þá ekki komið upp tilfelli þar í
tuttugu ár þegar riða greindist
á bænum Lóni í Kelduhverfi.
Matvælastofnun greindi frá
þessu á dögunum. Fé má þá
flytja frjálst innan hólfsins sem
er skilgreint sem svæðisskipt
varnarhólf, þar sem svæðin
Skútustaðahreppur, Engidalur
og Lundarbrekka – og bæir þar
fyrir sunnan – teljast ósýkt svæði
í annars sýktu hólfi.
Gangi þetta eftir verða
enn sjö varnarhólf skilgreind sýkt svæði; Landnámshólf, Vatnsneshólf, Húna- og Skagahólf,
Tröllaskagahólf, Suðurfjarahólf,
Hreppa-, Skeiða- og Flóahólf auk
Biskupstungnahólfs.
Matvælastofnun hvetur til
þess að sauðfjáreigendur haldi
áfram vöku sinni fyrir einkennum
riðuveikinnar og hafi samband
við héraðsdýralækni ef kind sýnir
grunsamleg einkenni. „Einnig
ef kindur drepast heima við eða
þeim slátrað vegna sjúkdóma eða
slysa. Þá skal hafa samband við
Matvælastofnun og séð verður til
þess að sýni séu tekin, bændum að
kostnaðarlausu,“ segir í umfjöllun
Matvælastofnunar. /smh
Ef það gengur eftir að Skjálfandahólf verði riðufrítt um áramótin verða enn sjö varnarhólf skilgreind sem sýkt svæði.
Myndir / Matvælastofnun
Staðfest riðutilfelli frá 1987.
LANDBÚNAÐUR&HEILBRIGÐI
2020 Alþjóðlegt ár plöntuheilbrigðis:
Verndum plöntur
– Verndum líf
Matvæla og landbúnaðarstofn-
un Sameinuðu þjóðanna, FAO,
hefur lýst árið 2020 Alþjóðlegt ár
plöntuheilbrigðis í heiminum. Á
heimasíðu FAO segir að með til-
nefningunni sé ætlunin að auka
meðvitund jarðarbúa á nauðsyn
þess að gæta að plöntuheilbrigði
til að vinna gegn hungri og draga
úr fátækt, vernda umhverfið og
auka hagsæld.
Í yfirlýsingu FAO vegna til-
nefningarinnar segir að þrátt fyrir
að plöntur séu uppspretta súrefnis í
heiminum og stórs hluta þess matar
sem við neytum sé lítið gert til að
huga að heilbrigði þeirra. Samkvæmt
áætlun FAO tapast um 40% af upp-
skeru nytjaplantna í heiminum vegna
plöntusjúkdóma og meindýra sem
leggjast á plöntur. Afleiðing þessa
er matvælaskortur hjá milljónum
manna í fátækustu ríkjum heims
og mikið tekjutap þeirra sem leggja
stund á ræktun matjurta.
Fyrirbyggjandi aðgerðir
vænlegastar
Samkvæmt FAO er mun betra að
beita fyrirbyggjandi aðferðum til að
draga úr matarsóun vegna plöntu-
sjúkdóma og afáti meindýra heldur
en að berjast við vandann eftir að
hann er kominn. Erfitt og nánast
ómögulegt er að útrýma plöntusjúk-
dómum eða rándýrum í ræktun ef
þau ná fótfestu.
Hvað er hægt að gera?
Samkvæmt FAO geta allir lagt sitt
af mörkum til að stuðla að eflingu
plöntuheilbrigðis í heiminum.
Eitt það sem allir geta gert er að
bera ekki með sér plöntur eða plöntu-
hluta eða panta þær milli landa nema
að heilbrigðisvottorð fyrir gróður-
inn liggi fyrir. Plöntusjúkdómar geta
hæglega borist þannig milli landa og
valdið gríðarlegu tjóni.
Í yfirlýsingu FAO er skorað
á stjórnvöld að auka fræðslu um
plöntuheilbrigði og á mikilvægi
plantna fyrir mannkynið. Auk þess
sem stjórnvöld eru hvött til að efla
eftirlit með innflutningi plantna og
tryggja heilbrigði þeirra. /VH
Vinnuplan Evrópuráðsins „Horizon 2020“:
Markmiðið er að tryggja
fæðuöryggi og sjálfbærni
Í vinnuplani Evrópuráðsins frá
því í október „Horizon 2020“
varðandi lífhagfræði fyrir kom-
andi ár, er áhersla lögð á fæðu-
öryggi, sjálfbæran landbúnað og
skógrækt samhliða auknum sjáv-
ar- og ferskvatnsrannsóknum. Er
þetta í takt við samfélagsáskorun
(Societal Challenge 2) með fjár-
festingu upp á 1,3 milljarða evra
á árunum 2018 til 2020.
Bent er á að þetta sé hluti af
áskorunum sem plánetan okkar
stendur frammi fyrir um ókomin
ár að laga sig að og draga úr lofts-
lagsbreytingum. Það verði gert með
því að tryggja fæðuöryggi, vernda
náttúruauðlindagrunninn, stuðla
að sjálfbærum valkostum í stað
jarðefnaeldsneytisknúins hagkerf-
is. Sjálfbærri nýtingu á auðlind-
um hafsins og verndun hafanna.
Landbúnaður og matvælafram-
leiðslukerfin, skógrækt, útgerð sem
byggja á nýtingu lífríkisins eru að
mati Evrópuráðsins kjarninn í þeim
áskorunum sem takast þarf á við.
Vinnuáætlun SC2 leggur áherslu
á sjálfbæra stjórnun lands og hafs
til að tryggja hollan mat sem og líf-
fræðilegan fjölbreytileika og hreint
vatn. Enn fremur á það að styðja
nýstárlegan matvæla- og sjávar-
útveg, lífhagkerfið og kraftmikla
landsbyggð.
Um þessar mundir stendur heims-
byggðin einmitt frammi fyrir mikilli
áskorun vegna afrísku svínapestar-
innar sem fór að breiðast hratt um
helstu svínaræktarlönd heims á árinu
2018 og 2019. Viðskipti með tugi
milljóna tonna af kjöti eru að falla út
og eitthvað þarf í staðinn og það með
hraði. Þetta bætist við áhyggjur sem
menn telja að muni stafa af hlýnandi
loftslagi. Það er því engin tilviljun
að þjóðir Evrópu sem og Sameinuðu
þjóðirnar hafa lagt áherslu á að ríki
heims leggi ríka áherslu á fæðuör-
yggi til handa þegnum sínum.
Gert er ráð fyrir að lausnirn-
ar sem verða til af starfsemi SC2,
muni skila umtalsverðum efnahags-
legum, umhverfislegum og félags-
legum ávinningi. Til dæmis er fjár-
festingunni ætlað að beina sjónum
að eflingu fjölbreytilegs landbún-
aðar og heilbrigðs og öruggs matar,
auka dýravelferð, sjálfbæra stjórnun
jarðvegs og þróun örverufræðilegra
umsókna. Styðja brautryðjendastarf,
stafræna byltingu og nýjar verð-
mætakeðjur í landsbyggðinni.
Gert er ráð fyrir að nýjar hug-
myndir, vörur, tækni, og nýjar sam-
félagslegar lausnir muni vinna í
takt við að skapa stuðningsramma
fyrir raunverulegar endurbætur. Það
varðar hvernig við framleiðum og
neytum matar. Þetta er sagt vera í
takt við væntingar samfélagsins um
áhrifadrifnar rannsóknir. /HKr.