Bændablaðið - 19.09.2019, Page 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201936
SAGA&MENNING
slegið í gegn hjá ferðamönnum
Manngerðir hellar eru víða á
Suðurlandi en þeir hellar sem
eru mest í umræðunni um þessar
mundir eru hellarnir við Ægissíðu
við bæinn Ægissíðu sem stendur
við Ytri-Rangá rétt áður en komið
er að Hellu.
Hellarnir hafa verið opnaðir
almenningi þar sem hægt er að fá
skemmtilega og fróðlega leiðsögn
um þá. Einnig eru stundum óvæntar
uppákomur í hellunum, t.d. tónleik-
ar, sögulestur og fleira í þeim dúr.
Ægissíða hefur um aldir verið
vinsæll áningarstaður en staðurinn
var m.a. miðstöð vöru- og póstflutn-
inga fyrir sveitina, auk þess sem
fyrsta símstöðin á svæðinu var reist
á bænum árið 1909.
Margrét Blöndal fjölmiðla-
kona er markaðsstjóri hellanna við
Ægissíðu og Baldur Þórhallsson
stjórnmálafræðingur ólst upp á
bænum. Þau svöruðu nokkrum
spurningum um hellana og allt það
sem þeir hafa upp á að bjóða.
Dularfull og spennandi saga
„Saga hellanna er bæði dularfull og
spennandi, ekki síst vegna þess að
enginn veit með vissu hver gerði
þá og hvenær. En sé vitnað í sunn-
lenskar munnmælasögur, sem sumir
rekja til Einars Benediktssonar, þá
eru hellarnir verk Kelta sem voru
hér fyrir þegar norrænir menn námu
land. Okkur finnst spennandi að
velta þeim möguleika fyrir okkur
því það er margt í hellunum sem
bendir til þess að þeir hafi verið
bústaðir kristinna manna fyrir
langa, langa löngu. Má þar nefna
sem dæmi að í Fjóshelli er að finna
einstaka krossa, höggna í bergið,
sérstakar ristur sem enginn kann
skil á og fagurlega höggvin sæti
sem augljóslega hafa verið ætluð
höfðingjum,“ segir Margrét.
12 hellar á jörðinni
Þegar Margrét er spurð hvernig
hellar þetta séu og hvað þeir eru
margir kemur fram hjá henni að
þetta séu manngerðir móbergs-
hellar og alls er vitað um 200 slíka
frá Ölfusi að Vík í Mýrdal. Þeir eru
misstórir og flestir á milli Þjórsár
og Ytri-Rangár. Elstu heimildir
um manngerða hella á Íslandi eru
í Jarteinabók Þorláks helga frá
1199 og fyrstu skráðu heimildir
um hellana á Ægissíðu eru í þulu
sem Guðlaug Stefánsdóttir í Selkoti
á að hafa farið með fyrir Vigfús
Þórarinsson sýslumann í lok 18.
aldar þar sem hún nefnir átján hella
á Ægissíðu.
„Nú er vitað um 12 hella á jörðinni
og þar af 10 rétt við bæjarhólinn.
Þeir bera nöfn eins og Hlöðuhellir,
Fjárhellir og Lambahellir, svo ein-
hverjir séu nefndir, og heiti þeirra
vísa til þess hvernig þeir voru nýtt-
ir á síðari öldum. Fjóshellir var þó
ekki fjós heldur hlaða og úr honum
voru göng upp í fjósið sem stóð
uppi á bæjarhólnum. Einn hellanna,
Kirkjuhellir, dregur nafn sitt af því
að í honum er fagurlega höggvin
hvelfing sem minnir helst á kirkju-
hvelfingu. Því miður er ekki óhætt
að fara inn í hann í dag en það stend-
ur til bóta,“ segir Margrét.
Geymslur fyrir saft,
sultur og jarðávexti
Baldur segir að hellarnir hafi að-
allega verið notaðir fyrir búfénað,
hey og matvæli og einn þeirra,
Skagahellir, var notaður sem íshús
eða frystigeymsla á þriðja áratug
20. aldar.
„Þá var refabú á Ægissíðu og
hellirinn notaður til að geyma fóður
fyrir refina, aðallega kjöt og svo að
það skemmdist ekki var hafður ís í
hellinum. Og það var þekkt víðar
að nota hella sem íshús, þá var snjó
mokað ofan í þá að vetri og mat-
vælin geymd í snjónum. Allt þar til
nýlega voru hellarnir geymslur fyrir
saft og sultur og jarðávexti sem voru
ræktaðir á bænum. Hellarnir voru
öldum saman nýttir af bændum á
Suðurlandi og gríðarleg búbót og
spöruðu bændum kostnaðarsamar
húsbyggingar,“ segir Baldur.
Gamall draumur að rætast
Baldur er spurður að því hvað varð
til þess að fólkið á Ægissíðu fór að
grafa hellana út og koma þeim í
„umferð“ aftur? „Já, það hefur lengi
verið draumur minn að standsetja
hellana og gera þá aðgengilega á
ný. „Það vill svo skemmtilega til að
það var einmitt Margrét sem kom
að máli við mig og spurði hvort
við ættum ekki að fjalla um hell-
ana þegar hún var að vinna að sjón-
varpsþáttunum Að sunnan á N4.“
Margrét kemur þá hér inn í spjallið:
„Baldur fór með mig og Sighvat
Jónsson, sem vann þessa þætti með
mér, í Fjóshelli og það má segja
að ég hafi heillast upp úr skónum
á svipstundu. Það er magnað að
koma þarna inn og það fyrsta sem
mér datt í hug var að við yrðum að
fá manninn minn til að búa til ein-
hvers konar tónleika í þessum helli.
Annaðhvort með kór eða hljóm-
sveit eða bara bæði. Hellirinn minn-
ir mest á samkomusal eða einhvers
konar félagsheimili og hrifningin
minnkaði ekki þegar Baldur fór svo
að segja sögu hellanna, enda er hún
ævintýralega spennandi og beið
þess að verða sögð sem flestum.“
Afi Baldurs sýndi
gestum hellana
Baldur ólst upp við hellana og
skottaðist þar um með afa sínum.
Hvaða minningar koma fyrst upp í
hugann þegar hellarnir eru nefndir
í hans eyru?
„Já, þetta er rétt, ég var mikið
með afa í hellunum því mikill fjöldi
ferðamanna kom að skoða hellana
á hverju sumri meðan afi gat haldið
hellunum við. Hann var iðinn við
að sýna gestum hellana og ég var
oft með enda drakk ég í mig sögur
hans um landnámið fyrir landnám
þegar Keltar byggðu Suðurland
áður en norrænir menn numu land.
Afi fór gjarnan með ferðamenn í
alla hellana við bæjarhólinn og gaf
sér góðan tíma til að sannfæra alla
gesti um sannleiksgildi sögunnar.
Það var ekki efi í nokkru hjarta um
tilburð hellanna þegar hann kvaddi
á bæjarhlaðinu,“ segir Baldur.
Útlenskt góðgæti í laun
Þegar Baldur var beðinn um að rifja
upp einhverja skemmtilega sögu
– Margrét Blöndal markaðs- og verkefnisstjóri og Baldur Þórhallsson, sveitastrákur frá Ægissíðu, segja frá Hellunum
Baldur Þórhallsson og Margrét Blöndal, sem hafa yfirumsjón með markaðssetningu á hellunum við Ægissíðu við
Hellu. Skemmtilegt verkefni sem þau halda vel utan um með sínu fólki. Mynd / Hellarnir við Hellu.
Fólk að skoða sig um í Hlöðuhelli en hann er
tengdur Fjárhelli með göngum. Framan af
20. öld voru hellarnir tveir notaðir, eins
og nöfnin benda til, sem hlaða og
fjárhús. Árið 1927 voru grafin 10
metra göng milli Hlöðuhellis
og Fjárhellis.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og ráðherra, er
heillaður af hellunum við Ægissíðu enda notar hann hvert tækifæri þegar
hann er með gesti að fara og skoða hellana. Í sumar mætti hann m.a. með
samstarfsráðherra Norðurlanda og þeirra embættismenn í skoðunarferð
um hellana. Hér er hann með Ólöfu Þórhallsdóttur, systur Baldurs.
Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson