Bændablaðið - 19.09.2019, Síða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201938
Minningarsjóður Hjálmars R.
Bárðarsonar og Else S. Bárðarson
Minningarsjóður Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson
auglýsir rannsóknastyrki í landgræðslu og skógrækt, með sér-
stakri áherslu á vistfræði lúpínu og landgræðsluskógrækt með
lúpínu.
Til úthlutunar verða sjö milljónir króna.
Umsóknum skal skilað eigi síðar en 20. janúar 2020.
Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðum Landgræðslunnar
(land.is), Skógræktarinnar (skogur.is) og Skógræktarfélags
Íslands (skog.is). Umsókn ásamt fylgigögnum skal skila í einu
pappírseintaki og á tölvutæku formi (á minniskubbi) sem rtf, pdf
eða word skjal). Ófullgerðum umsóknum verður vísað frá.
Umsóknum skal skila til: Minningarsjóður Hjálmars R.
Bárðarsonar og Else S. Bárðarson, bt. Guðbrands Brynjúlfssonar,
Brúarlandi, 311 Borgarnes
- Vörubílar
- Rútur
- Vinnuvélar
Slow Food Reykjavík fær nýjan formann:
Diskósúpudrottningin tekur við
– Dominique verið í fararbroddi fyrir málstaðinn síðastliðin 12 ár
Slow Food Reykavík hélt sinn
aðalfund sunnudaginn 15.
desember í Hörpu – í tengslum
við Matarmarkað Íslands sem
var haldinn sömu helgi. Helst bar
þar til tíðinda að Dominique Plédel
Jónsson hætti sem formaður, en
hún hefur verið þar í fararbroddi
síðustu 12 ár og látið mikið að sér
kveða í baráttunni fyrir siðrænni
matvælaframleiðslu – í anda
grunngilda móðurhreyfingarinnar.
Dóra Svavarsdóttir, samstarfskona
hennar til margra ára, tekur við
keflinu.
Á fundinum var Dominique þökk-
uð vel unnin störf og um hana sagt
að hún hafi helst, að öðrum ólöst-
uðum, haldið kyndli heilbrigðrar
matvælaframleiðslu á lofti á Íslandi
og víðar undanfarin ár. Hún tekur nú
við formennsku í Slow Food Nordic,
samtökum Norðurlandadeilda. „Mér
finnst nauðsynlegt að stíga til hlið-
ar núna og hleypa yngra fólki að,
þó ég sé enn í fullu fjöri. Þetta er
að mörgu leyti ákjósanlegur tími til
þess, en ég var fyrir nokkru beðin
um að taka við Slow Food Nordic
til að móta betur framtíðina þar
og undirbúa Terra Madre Nordic
2020, sem verður haldin í ágúst
í Stokkhólmi. Það verkefni er í
mótun og er spennandi; við verðum
þar til dæmis með norræna útgáfu
af Askinum [Íslandsmeistaramótið
í matarhandverki]. Eftir að hafa
bragðað á íslensku matarhandverki
íslenskra smáframleiðenda í Hörpu
um síðustu helgi er ég sannfærð um
að Íslendingar eiga fullt erindi í þá
keppni.
Svo verð ég líka áfram í stjórn
Slow Food Reykjavík þannig að
ég er ekki af baki dottin,“ segir
Dominique um þessi tímamót.
Dóra kunn fyrir Diskósúpuna
Nýkjörinn formaður er Dóra
Svavarsdóttir matreiðslumeistari,
sem hefur vakið athygli á matar-
sóun með því meðal annars að elda
svokallaða Diskósúpu úr hráefni
sem stóð til að henda, þótt það væri
enn vel neysluhæft. Hún hefur þar
að auki haldið námskeið um land
allt til að vísa veginn að betri nýtni
matvæla við allar aðstæður og hefur
verið fulltrúi Slow Food víða á við-
burðum undanfarin ár.
Aðrir í nýrri stjórn eru Gunnþórunn
Einarsdóttir, gæðastjóri hjá ÁTVR,
Ragnheiður Axel, Íslenskri holl-
ustu og Og Náttúra, auk Sveins
Kjartanssonar matreiðslumanns. Þeir
Ólafur Dýrmundsson, fyrrverandi
ráðunautur hjá Bændasamtökum
Íslands, og Svavar Halldórsson, sem
nemur við Slow Food-háskólann í
Pollenzo á Ítalíu, eru varamenn.
Mörg mikilvæg verkefni
Að sögn Dominique liggja mörg
mikilvæg verkefni fyrir á næsta
ári. Samtökin muni taka þátt í Terra
Madre Nordic viðburðinum í ágúst
á næsta ári og í byrjun október
verður síðan Salone del Gusto og
Terra Madre hátíðin, sem haldin er í
Tórínó á Norður-Ítalíu. Þar sé meðal
annars haldin matarsýningin, ein
stærsta sölusýning opin almenningi
með um 250 þúsund gesti. Þar hitt-
ist Slow Food félagar og áhugafólk
hvaðan æva að úr heiminum, kynni
sér matarhefðir, smakki góðan mat,
styrki tengslanetið og leggi drög
að nýjum áföngum við útbreiðslu
á gildum hreyfingarinnar um að
matvæli skuli vera framleidd vegna
gæða þeirra, á „hreinan“ hátt með
sanngirni að leiðarljósi.
Hún bendir á að aldrei megi
gleyma því að góður matur sé ekki
forréttindi, heldur mannréttindi –
eins og Carlo Petrini, forseti Slow
Food, hefur sagt.
Innanlands eru mörg áhugaverð
verkefni í bígerð hjá nýrri stjórn
Slow Food Reykjavík, að sögn
Dominique. Haldið verður áfram
að taka þátt í verkefnum sem stuðla
að betri neyslu og matvælafram-
leiðslu, sem mun hafa jákvæð áhrif
gegn þeirri loftslagsvá sem er fram
undan. Áfram verður gert átak í að
fjölga nýjum meðlimum til að koma
skilaboðum markvissar áfram í sam-
félagið.
Árvekni um matarsóun
Diskósúpuviðburðurinn verður
haldinn áfram til að auka vitund
um matarsóun með því að bjarga
matvælum sem annars hefði verið
hent – og gómsætar súpur gerðar
sem gefnar verða. Málefni matarsó-
unar verði áfram unnin í samstarfi
við ýmsa aðila sem vinna sameig-
inlega að því að sporna við þessu
vandamáli.
Að sögn Dominique leist þeim
sem sátu aðalfundinn vel á þá
hugmynd að tengja Slow Food meira
við ferðaþjónustuna í gegnum Slow
Food Travel-hugmyndina. /smh
Dóra Svavarsdóttir og Dominique Plédel Jónsson á góðri stund á hinni miklu matarhátíð, Salone del Gusto, í
Tórínó á síðasta ári.
Slow Food-hreyfingin fagnar 30 ára afmæli:
Matvæli skulu vera vel gerð
Alþjóðlega Slow Food-hreyfingin
fagnar 30 ára afmæli um
þessar mundir. Formlega var
hún stofnuð í París þann 21.
desember árið 1989 þegar
fulltrúar 15 landa skrifuðu
undir stefnuyfirlýsingu fyrir
hreyfinguna í Opéra Comique
leikhúsinu.
Hjarta Slow Food-hreyfingar-
innar slær þó í Piemonte-héraði
á Ítalíu. Í Tórínó, stærstu borg
héraðsins, er haldin hin mikla
matarhátíð, Salone del Gusto,
og Terra Madre annað hvert ár í
nafni Slow Food. Rétt suðaustur
af Tórínó er bærinn Bra, en
þar – og í sveitunum í kring –
er hugsjónafólkið fætt og alið
upp sem hreyfingin á sínar
rætur í. Það sem spyrnti fótum
við skyndibitavæðingunni og
mótmælti árið 1986 á Spænsku
tröppunum í Róm þeim áformum
borgaryfirvalda að heimila
MacDonald´s að opna þar
veitingastað.
Í Bra eru höfuðstöðvar
alþjóðlegu Slow Food-hreyfingar-
innar og þaðan er Carlo Petrini,
einn af stofnendum hennar og
forseti frá byrjun.
Fjölmörg ört vaxandi verkefni
á borði Slow Food
Grunngildi Slow Food hafa verið
smættuð niður í þrjú ensk orð;
„good, clean and fair “ og er mest
allt starf hreyfingarinnar leitt af
þessum hugtökum. Þau standa fyrir
þá hugsjón að matvæli skulu vera
vel gerð; góð á bragðið, ómenguð
og framleidd á sanngjarnan hátt í
allri virðiskeðjunni.
Verkefni Slow Food taka
mið af þessum grunngildum
og eru í rauninni hjálparstarf á
sviði umhverfis- og matvæla-
framleiðslumála.
Fræðslumál um matvæli verða
málefni næstu ára
Carlo Petrini heimsótti Ísland
að vori árið 2017 og flutti
fyrirlestur í Háskóla Íslands,
sem var innblásinn af óréttlátu
hagkerfi mat vælaframleiðslunnar
í heiminum.
Í viðtali hér í blaðinu sagði
hann að í Róm fyrir meira en 30
árum var einungis verið að andæfa
þeirri þróun að matur væri að
verða einsleitari. Hreyfingin hefði
breyst mikið og væri orðin beittari
í baráttunni fyrir því að allir eigi
rétt á góðum mat. Hann taldi að
þungi starfsins myndi í framtíðinni
snúa að fræðslustarfi um matvæli
þar sem ungt fólk léki lykil-
hlutverk varðandi
fram tíð móður
jarðar. Hann
sagðist vona að
ekki yrði þörf fyrir
Slow Food eftir önnur
30 ár; það myndi þýða
að þá hefði takmarkinu
verið náð.
/smh