Bændablaðið - 19.09.2019, Side 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201940
Í SUÐUR-AFRÍKU
Kirstenbosch
Kirstenbosch-grasagarðurinn í
Suður-Afríku teygir sig upp eftir
austurhlíðum Table-fjallsins í
Höfðaborg. Ofan af fjallinu er
útsýnið yfir Höfðaborg stórkost-
legt á heiðskírum og lygnum
degi. Þaðan má meðal annars
sjá Robbeneyju, þar sem Nelson
Mandela var í stofufangelsi í tæpa
þrjá áratugi. Garðurinn er ótrú-
lega fallegur og hreint undur að
skoða.
Heitið Kirstenbosch er dregið af
nafni J.F. Kirsten sem var umsjónar-
maður svæðisins á átjándu öld.
Seinni hluti heitisins, bosch, er hol-
lenska og þýðir skógur eða runni.
Markmiðið að varðveita
innlenda flóru
Garðurinn er einn af tíu þjóðargrasa-
görðum í Suður-Afríku og þar er
að finna gróður sem tilheyrir fimm
af sex lífbeltum landsins. Allt frá
stofnun garðsins árið 1913 hefur
megináhersla hans verið að varð-
veita innlenda flóru landsins og var
hann fyrsti garðurinn í heimi sem
setti sér slíkt markmið.
Útisvæði garðsins er rétt rúmir
528 hektarar að stærð og liggur
frá rótum Table-fjalls og hátt upp í
klettóttar hlíðar þess. Garðinum er
skipt í svæði eftir gróðri og í honum
er að finna stórt gróðurhús þar sem
vaxa eyðimerkurplöntur sem kjósa
minni úrkomu en nýtur í Höfðaborg.
Í garðinum er að finna yfir 7.000
plöntutegundir sem allar eru upp-
runnar í Suður-Afríku.
Gengið um garðinn
Frá aðalinngangi garðsins, þar sem
er veitingaaðstaða, plöntusala og
verslun með ágætu úrvali bóka um
grasa- og náttúrufræði, liggur hann
í aflíðandi hlíð þar til komið er að
klettum Table-fjallsins.
Ég og ferðafélagar mínir heim-
sóttum garðinn á indælum góðviðr-
isdegi í byrjun nóvember síðast-
liðinn en þá er vor í Suður-Afríku.
Hægt er að velja nokkrar mislangar
gönguleiðir í garðinum en við völd-
um, að hætti Íslendinga, að ráfa
frekar um garðinn og sjá það sem
fyrir augu bar.
Fyrst lá leiðin að brjóstmynd af
Nelson Mandela. Fyrir aftan stytt-
una vex afbrigði af blómi paradísar-
fuglsins sem kennt er við forsetann
fyrrverandi og kynbætt honum til
heiðurs í Kirstenbosch og kallast
Strelitzia reginae 'Mandela's Gold'.
Kynbætur afbrigðisins hófust 1970
og tóku tuttugu ár en eins og nafnið
gefur til kynna er afbrigðið með gul-
ari blómum en aðrar plöntur innan
ættkvíslarinnar.
Fljótlega eftir að komið er inn í
garðinn blasir við hátt og krónumik-
ið afrískt mahogany-tré, Khaya ant-
hotheca. Tegundin var mikið nýtt til
viðarframleiðslu fyrr á tímum en er
sjaldgæft í náttúrunni og því friðuð.
Sagan segir að grasafræðingurinn
sem fyrstur greindi tréð hafi spurt
innfæddan leiðsögumann sinn hvað
tréð héti. Leiðsögumaðurinn svaraði
khaya og skráði grasafræðingurinn
heitið samviskusamlega niður. Ekki
vitandi að á máli leiðsögumannsins
þýddi khaya ég veit það ekki.
Brúin yfir trjásafninu með austurhlíðar Table-fjalls, Kastalaklett, Beinagrindagil og Trjáburknatind í baksýn. Myndir / VH.
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Ferðafélagar mínir í Suður-Afríku á vegum Farvel, Óskar Einarsson, Unnur Gunnarsdóttir, Jón Guðlaugsson, Lára
Jónsdóttir og Guðjón Gústafsson, í Kirstenbosch-garðinum í Höfðaborg.