Bændablaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201942
Dráttarvélaframleiðandinn New
Holland hefur kynnt fyrstu met-
anknúnu T6 METHANE POWER
dráttarvél fyrirtækisins sem
kemur á markað 2020. Til að byrja
með verður vélin framleidd í tak-
mörkuðu magni svo enn er óvíst
hvenær hún verður á boðstólum
hjá umboðsaðilanum Kraftvélum
á Íslandi.
Miklar væntingar hafa verið
bundnar við metanvæðingu drátt-
arvéla sem gæti aukið sjálfbærni í
sveitum þar sem einnig er mögulegt
að framleiða metangas. Metan er
víða framleitt í sveitum i Þýskalandi
og Danmörku svo einhver ríki séu
nefnd, en það er þá ýmist notað til
húshitunar eða keyrslu ljósavéla til
raforkuframleiðslu.
Það virðist sannarlega tími til
kominn að menn fari að taka við
sér í framleiðslu á ökutækjum sem
ganga fyrir gasi. Fyrsta nothæfa öku-
tækið með sprengihreyfli sem gekk
fyrir gasi var hannað af Frakkanum
Etienne Lenoir árið 1860. Á fimmta
og sjötta áratug síðustu aldar hugð-
ust Sovétríkin gasvæða samgöngur
og atvinnutæki og hönnuðu mikið
net gasstöðva. Lítið framboð af gasi
á þeim tíma kom þó í veg fyrir að
þetta verkefni næði almennilegu
flugi.
Metangas mengar
80% minna en dísilolía
Venjulegt metangas sem þjappað
er til notkunar á bíla, eða svonefnt
„Compressed natural gas - CNG“,
er þjappað 200 til 250 falt miðað
við gas í óþjöppuðu ástandi, eða
nálægt 3.000–3.600 psi. Þó slíkt
dugi ágætlega á fólksbíla, þá þyrfti
ansi umfangsmikla tanka ef nota ætti
CNG gas á dráttarvélar eða önnur
vinnutæki sem starfa þurfa lengi
fjarri áfyllingarstöð. Það þyrfti t.d.
þrisvar til fjórum sinnum meira pláss
í tönkum til að aka sömu vegalengd
á gasknúnum bíl og á dísilbíl.
New Holland T6 er einungis
útbúin fyrir CNG gas en til að
auka drægni er hægt að fá vélina
með aukatank að framan þar
sem venjulega er pláss fyrir
þyngdarklossa eða balllest. Einnig
er hægt að fá aukatank að aftan. Að
öðru leyti eru gastankar á sama stað
og olíutankar á hefðbundnum vélum.
Vinnslutími T6 dráttarvélanna
óbreyttra er því nokkuð takmarkaðri
en dísilknúinna dráttarvéla af sömu
stærð, en þær geta þó hentað vel þar
sem áfyllingarstöð er í nágrenninu.
Rekstrarkostnaður á metangasvélinni
er hins vegar sagður um 30% lægri
en á hefðbundinni dísilvél. Að öðru
leyti hefur vélin sömu eiginleika og
dísilknúna dráttarvélin.
Nýr mótor sem byggir á 20
ára reynslu í smíði gasvéla
Mótorinn er glænýr NEF 6,7 lítra
sem er sagður sérhannaður af FPT
Industrial fyrir landbúnaðarnotkun.
Byggt er á 20 ára reynslu við
þróun og smíði yfir 50.000
gasknúinna mótora. Mótorinn
skilar 180 hestöflum og er með
tog upp á 740 Newtonmetra sem
þykir ansi gott. Þá skilar mótorinn
aðeins 1% af sótögnum miðað við
hefðbundna dísilvél og um 10%
minna af CO2 og sáralítið af öðrum
mengandi lofttegundum. Í heild
losar gasknúni mótorinn um 80%
minna af mengandi lofttegundum
en sambærilegi dísilmótorinn þótt
gasknúni mótorinn sé í grunninn
byggður á dísilmótor.
Aukin drægni næst
með fljótandi gasi
Til að ná mikilli drægni eða keyrslu-
tíma á vélum og trukkum er æskilegt
að minnka rúmtakið á gasinu veru-
lega og koma því í fljótandi ástand.
Þá verður til það sem kallað er
fljótandi gas eða „Liquefied natural
gas -LNG.“ Til að hægt sé að koma
gasi í fljótandi form þarf að kæla það
niður í mínus 161,5° á Celsíus og
ná þannig 600 faldri þjöppun. Slík
aðferð er gjarnan notuð við flutning
á gasi t.d. með skipum. Þá er staðan
orðin áþekk hvað drægni varðar og
hjá dísilknúnum ökutækjum miðað
við ásættanlegt rúmtak eldsneytis-
geyma. Til að nota fljótandi gas
þarf sérstakar átöppunardælur. Þar
sem innviðir fyrir venjulegt gas eru
afar takmarkaðir á Íslandi er trúlega
enn langt í land að hér verði sköpuð
skilyrði fyrir notkun á fljótandi gasi.
Framtaksleysi í innviða
uppbyggingu fyrir gas
Varðandi nýtingu á gasi í ökutæki
á Íslandi reynir á aðgerðir stjórn-
valda, en þar hefur ríkt alvarlegt
stefnuleysi á liðnum árum. Lítil sem
engin áhersla hefur verið lögð á upp-
byggingu innviða fyrir gasknúin öku-
tæki. Öll áherslan hefur verið lögð
á innviðauppbyggingu fyrir rafbíla
þó vitað sé að mesti árangurinn í að
draga úr losun koltvísýrings fengist
af að skipta um orkugjafa fyrir dí-
silknúna trukka, rútur, strætisvagna
og vinnutæki. Auk þess eru gasknúin
ökutæki mun ódýrari í framleiðslu
og innkaupum en rafknúin og orkan
mun ódýrari en olía og víðast líka
ódýrari en rafmagn. Svo ekki sé talað
um þann ávinning sem fæst með
brennslu á gasi sem skilar sáralítilli
mengun, en eyðir um leið út gasinu
sjálfu sem annars er mjög áhrifamikil
gróðurhúsagas tegund.
Ávinningurinn margfaldast ef
notast yrði við lífrænt gas (Biogas)
sem framleitt væri í landbúnaði. Þar
næst líka annar ávinningur þegar t.d.
kúamykja er nýtt við gasframleiðsl-
una, en mykjan verður mun betri
áburður á eftir. Svo ekki sé talað
um sparnað á gjaldeyri, bæði við
eldsneytis- og áburðarkaup.
Rafknúnar stórar dráttarvélar
eru ekki í sjónmáli
Sérfræðingar sem Bændablaðið
hefur rætt við telja litlar sem engar
líkur á að rafknúin tæki muni leysa
af stórar dráttarvélar í náinni fram-
tíð. Þar séu neikvæðu þættirnir ein-
faldlega illyfirstíganlegir varðandi
rafhlöðurnar og endurhleðslutíma á
orkunni. Þá yrðu slíkar vélar mjög
dýrar í framleiðslu. Mun líklegra er
talið að trukkar og stórar dráttarvélar,
og önnur stór vinnutæki verði útbúin
fyrir fljótandi metangas. Rafmagn
hefur samt reynst vel í liðléttingum
og minni vinnuvélum sem ekki þurfa
að vera í notkun heilu dagana langt
frá hleðslustað.
17 milljónir gasknúinna
ökutækja á götum heimsins
Samkvæmt heimasíðu rússneska
gasfyrirtækisins Gazprom eru um
17 milljón gasknúin ökutæki í um-
ferðinni í heiminum í dag og fer
ört fjölgandi. Leiðandi fyrirtæki
í bílaframleiðslu bjóða öll upp á
gasknúna bíla, þar með taldir fram-
leiðendurnir Volvo, Audi, Chevrolet,
Daimler-Benz, Iveco, MAN, Opel,
Peugeot, Citroen, Scania, Fiat,
Volkswagen, Ford, Honda, Toyota
auk fyrirtækja eins og Ssangyoung,
Seat og fleiri. Hafa gasknúnir fólks-
bílar notið mikillar hylli meðal þeirra
sem þá hafa prófað hér á landi. Þeir
eru hljóðlátari en dísilbílar og mun
ódýrari í rekstri. /HKr.
byko.is
YLEININGAR ERU LÉTTAR STÁL-
KLÆDDAR SAMLOKUEININGAR
SEM FÁST MEÐ ÞÉTTIFRAUÐS-
EÐA STEINULLARKJARNA.
Einingarnar eru sterkar og burðarmiklar og
fást með mismunandi yfirborði og litum að
eigin vali. Helstu kostir þess að nota samloku-
einingar er auðveld og fljót uppsetning, auðveld
þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi og er
ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir.
Yleiningar henta vel fyrir eldri gripahús þar sem
skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum.
BALEX yleiningar eru framleiddar undir
ströngu eftirliti samkvæmt viðurkenndum
evrópskum stöðlum.
Hafðu samband: bondi@byko.is
YLEININGAR
TÆKNI&ORKA
Fyrsta metandráttarvélin frá New
Holland kemur á markaðinn 2020
– Verður mun ódýrari í rekstri en dísilknúin vél og mengar 80% minna
Metangasknúna dráttarvélin New Holland T6 Methane Power er með nýjan
NEF 6,7 lítra og 180 hestafla mótor.
Til að auka drægni og keyrslutíma vélarinnar er hægt að bæta við gastönkum
að framan og jafnvel aftan líka.
Fyrsta nothæfa ökutækið með
sprengi hreyfli sem gekk fyrir gasi
var hannað af Frakkanum Etienne
Lenoir árið 1860.
Á fimmta og sjötta áratug síðustu
aldar hugðust Sovétríkin gasvæða
samgöngur og atvinnutæki og
hönnuðu mikið net gasstöðva. Lítið
framboð af gasi á þeim tíma kom
þó í veg fyrir að þetta verkefni næði
almennilegu flugi.