Bændablaðið - 19.09.2019, Side 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201944
Af öllum þeim blómum sem
við notum til að skreyta híbýli
okkar á jólum og skammdegi
yfirleitt er riddarastjarnan
ein sú blómfegursta. Hávaxnir
blómstilkar vaxa upp úr stór-
um lauk. Efst á hverjum stilk
myndast stór og glæsileg blóm
sem gaman er að fylgjast með.
Blómliturinn er af ýmsu tagi,
hér þekkjum við aðallega sterk-
rauð yrki, enda höfum við vanist
því að tengja riddarastjörnuna
jólum, en hann fæst einnig hvítur,
gulur og tvílitur.
Hippeastrum eða Amaryllis?
Riddarastjarnan vex villt í
Brasilíu og í Andesfjöllum Mið-
og Suðurameríku allt til Mexikó.
Hippeastrum er hið kórrétta heiti
ættkvíslarinnar sem tegundin
telst til, en fyrir misskilning sem
erfitt hefur reynst að uppræta
hefur nafnið Amaryllis fest við
hana svo oftar en ekki gengur
tegundin undir því heiti í almennri
umfjöllun. Amaryllis er hins vegar
hópur tegunda sömu ættar sem á
uppruna sinn í Suður-Afríku. Hér
er bæði um hreinan nafnarugling
að ræða og einnig deilur vísinda-
manna sem hafa átt erfitt með að
staðsetja þessar tegundir innan
flokkunarfræðinnar. Það var
ekki fyrr en tekin var sameigin-
leg ákvörðun sérfræðinga beggja
vegna Atlantshafsins árið 1987
sem nafngiftirnar voru formlega
ákveðnar.
Blendingur nokkurra tegunda
Riddarastjarnan er kynblendingur
nokkurra tegunda Hippeastrum-
ættkvíslarinnar sem hefur verið
ræktaður á Vesturlöndum síðan
á 18. öld.
Laukarnir eru framleiddir í
stórum stíl á ökrum, líkt og aðrir
skrautlaukar og síðan meðhöndl-
aðir á sérstakan hátt til að kalla
fram blómvísa, sem eru varðveitt-
ir í lauknum og sjást ekki fyrr en
hann er tekinn til ræktunar.
Ræktun og blómgunartími
Íslenskir garðyrkjubændur flytja
laukana til landsins á haustin
og gróðursetja þá grunnt í stóra
blómapotta og rækta þá í gróður-
húsi þar til blómið, sem fram að
því hafði varðveist inni í lauknum,
tekur að vaxa uppúr honum. Þá er
yfirleitt komið fram í nóvember
og hægt er að bjóða þá til sölu
í blómaverslunum. Hægt er að
nota hitastýringu til að stjórna því
hversu hratt blómin þroskast. Ef
ætlunin er að hraða blómþrosk-
anum er hitinn hækkaður dálítið
upp fyrir 20°C, annars má hægja
á þroskanum með því að lækka
hitann, jafnvel niður í 10°C eða
enn neðar ef þörf er á. Annars
gildir sú regla að því svalari sem
aðstæður eru þegar blómin hafa
opnast þeim mun lengur standa
þau á plöntunni. Riddarastjarna
sem opnar fyrstu blómin um
miðjan desember ætti að vera í
blóma langt fram eftir janúar-
mánuði.
Hvað svo?
Lauf riddarastjörnunnar taka að
vaxa af krafti þegar blómmynd-
unin er langt komin. Ef ætlunin
er að reyna að fá laukinn til að
blómstra aftur er eftirfarandi leið
fær: Þegar laufblöðin hafa náð
fullum þroska að lokinni blómgun
er plantnan ræktuð áfram með
daufri áburðarlausn eða með því
að setja hana í örlítið stærri pott
með meðalsterkri mold.
Plantan er ef til vill engin sér-
stök híbýlaprýði án blómanna
en henni er sem sagt haldið í
góðri rækt fram eftir sumri. Þá
er dregið úr vökvun og plantan
látin þorna í pottinum og við tekur
dvalatími hennar. Á þessum þurra
dvalatíma má geyma plöntuna á
afviknum stað við lágan hita, td
í kringum 10°C. Þegar haustar á
ný er laukurinn, sem þá er orðinn
þurr og skorpinn, settur grunnt í
blómapott með venjulegri gróð-
urmold og vökvaður varlega
við 15–20°C. Þá myndast rætur
og lífsferillinn hefst aftur með
endurtekinni blómgun í kjölfar-
ið. Þannig má láta sama laukinn
blómstra ár eftir ár.
Ingólfur Guðnason
námsbrautarstjóri
garðyrkjuframleiðslu BHÍ
Reykjum, Ölfusi
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Riddarastjarna
Riddarastjarnan vex villt í Brasilíu og í Andesfjöllum Mið- og Suður-Am-
eríku allt til Mexíkó.
Amaryllis er hópur tegunda sömu
ættar sem á uppruna sinn í Suð-
ur-Afríku.
...frá heilbrigði til hollustu
Eins og flestir búfjáreigend-
ur vita er landinu skipt upp í
25 varnarsvæði eða hólf með
svokölluðum varnarlínum sem
ýmist eru girðingar eða nátt-
úrulegar hindranir. Flutningar
á nautgripum á milli hólfa (yfir
varnarlínur) eru háðir leyfi
Matvælastofnunar. Flutningar á
nautgripum innan varnarhólfa
eru aðeins skráningarskyldir í
hjarðbók t.d. í Huppa.is (ekki
þarf að sækja um).
Þegar flytja á nautgripi yfir
varnarlínur er það kaupandinn
sem sækir um flutningsleyfið á
Þjónustugátt Matvælastofnunar og
það er héraðsdýralæknir í umdæmi
kaupandans sem afgreiðir leyfin.
Umsóknir
Þegar umsókn um flutning naut-
gripa berst til Matvælastofnunar
er framkvæmd ítarleg skoðun til
þess að ákveða hvort samþykkja
eigi umsóknina eða hafna henni.
Garnaveiki er fyrst og fremst sá
sjúkdómur sem óttast er að geti
fylgt í kjölfar nautgripaflutninga.
Þess vegna er allur flutningur á
nautgripum frá búum þar sem
garnaveiki hefur greinst undan-
farin 10 ár bannaður. Listi yfir
garnaveikibæi á heimasíðu Mast
er uppfærður reglulega.
Viðauki við reglugerð nr.
911/2011 um garnaveiki og varn-
ir gegn henni segir til um hvar á
landinu er skylt að bólusetja lömb
og kið:
1. Á Suðvesturlandi og Vestur
landi frá Markarfljóti að
Hvammsfjarðarlínu úr
Hvamms firði í Hrútafjörð.
Ekki er þó skylt að bólusetja
á fjár skipta bæjum í Biskups
tungum eða í Vestmanna
eyjum.
2. Á Norðurlandi frá Húnaflóa
að Skjálfandafljóti og einnig í
Skútustaðahreppi. Ekki er þó
skylt að bólusetja í Miðfjarðar
hólfi eða í Grímsey.
3. Á Austurlandi, frá Smjörfjalla
línu að Hamarsfjarðarlínu.
Undanskildir eru þó bæir
í Suðurdal/Suður byggð í
Breið dal og á Berufjarðar
strönd norðan Berufjarðar
botns.
4. Á Suðausturlandi frá Hamars
fjarðarlínu að Jökulsá á
Breiða merkursandi.
Hérlendis hefur aldrei fundist hinn
alvarlegi sjúkdómur kúagarnaveiki
heldur er hér um að ræða sauðfjár-
garnaveiki sem þó getur smitast yfir
í nautgripi. Bólusetning sauðfjár
gegn garnaveiki er ekki trygging
fyrir því að það geti ekki smitast,
aðeins að það veikist ekki, og þar af
leiðandi getur smit eftir sem áður
borist í nautgripi. Þess vegna stafar
mestri hættu af flutningi nautgripa
af svæði þar sem bólusett er við
garnaveiki yfir á svæði þar sem
ekki er bólusett. Það er vegna þess
að ef nautgripur smitaður af garna-
veiki kæmi inn á svæði þar sem
ekki er bólusett, gæti hann verið
búinn að smita marga gripi áður en
það uppgötvast, því sjúkdómurinn
er lengi að búa um sig og smitefnið
getur hafa dreifst með saur í langan
tíma. Það gefur því auga leið að
tjónið getur orðið umtalsvert og
krafa yrði gerð um skyldubólu-
setningu á svæðinu.
Hins vegar er líklegt að leyfi
fengist til þess að flytja nautgripi:
• milli svæða þar sem bólusett
er í báðum hólfum
• milli svæða þar sem bólusett
er í hvorugu hólfi
• frá svæði þar sem ekki er
bólusett yfir á svæði þar sem
er bólusett
Á þessu er þó sá fyrirvari að þó
að bólusett sé í Snæfellsneshólfi
þá er það líflambasöluhólf og
það mundi glata þeirri stöðu ef
þar kæmi upp garnaveiki. Því má
bara leyfa flutning á nautgripum
í hólfið frá svæðum sem eru laus
við garnaveiki og ekki er bólusett.
Héraðsdýralæknir sem afgreiðir
umsókn um flutning á nautgripum
tekur einnig tillit til hvort aðrir
sjúkdómar gætu verið á ferli eins
og t.d. veiruskita sem gæti orðið
til þess að flutningi sé hafnað eða
honum seinkað.
Einnig tekur héraðsdýralæknir
afstöðu til þess hvort hafna þurfi
umsókn um flutning vegna áhættu
við riðusmit, t.d. ef óskað er eftir
því að flytja nautgripi frá búi sem er
á miklu riðusvæði, yfir á bú sem er
með sauðfé og er staðsett á hreinu
svæði.
Algjört skilyrði til þess að leyfi
til flutnings fáist er að skráningar í
hjarðbók séu uppfærðar reglulega
og gefi rétta mynd af hjörðinni.
Einnig gætu niðurstöður eftirlits
haft áhrif á afgreiðslu umsókna.
Sigrún Bjarnadóttir,
dýralæknir nautgripa-
og sauðfjársjúkdóma
hjá Matvælastofnun
Flutningar á nautgripum
Matvælastofnun hefur
óskað eftir lögreglu-
rannsókn á meintum
flutningi fjögurra lamb-
hrúta frá Vestfjörðum
til Norðurlands eystra.
Óheimilt er að flytja sauð-
fé yfir varnarlínur nema
í sérstökum undantekn-
ingartilfellum að fengnu
leyfi stofnunarinnar.
Meintur flutningur upp-
götvaðist við eftirlit og hefur
flutningsbann verið sett á
hrútana að því er segir á
vefsíðu MAST.
Árið 2016 sótti viðtak-
andi hrútanna um leyfi til
Matvælastofnunar um
kaup á fimm lambhrútum
úr Vestfjarðahólfi vestra.
Þeirri umsókn var hafnað.
Tilgangur dýrasjúk-
dómalaga er m.a. að
hindra útbreiðslu dýra-
sjúkdóma og vinna
að útrýmingu þeirra.
Samkvæmt þeim lögum
ákveður ráðherra, að
fengnum tillögum
Matvælastofnunar, hvaða
varnarlínum skuli haldið
við. Varnarlínur eru
ákveðnar til að verja eftir
föngum bústofn bænda
fyrir dýrasjúkdómum.
Flutningi fjögurra lambhrúta yfir
varnarlínu vísað til lögreglu