Bændablaðið - 19.09.2019, Síða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201946
Alexander mikli þekkti til græð-
andi eiginleka aloe-plöntunnar
og flutti þær með sér í pottum
í landvinningaferðum sínum til
að græða sár hermanna sinna.
Plantan er vinsæl pottaplanta
hér á landi enda auðveld í ræktun.
Aloe er mest ræktaða lækninga-
planta í heimi.
Erfitt er að átta sig á umfangi
aloe-ræktunar í heiminum enda fleiri
en ein og fleiri en tvær tegundir í
ræktun. Plantan er einnig nytjuð í
náttúrunni vegna mismunandi eig-
inleika. Löndin sem mest rækta
af aloe eru Ástralía, Bangladess,
Kúba, Dóminíska lýðveldið, Kína,
Mexíkó, Indland, Jamaíka, Spánn,
Kenýa, Tansanía, Suður-Afríka og
suðurfylki Bandaríkjanna Norður-
Ameríku.
Áætlað er að velta á vörum fram-
leiddum úr aloe vera árið 2018 hafi
verið ríflega 253 milljónir banda-
ríkjadalir sem jafngildir rúmum
30,7 milljörðum íslenskra króna.
Áætlanir gera ráð fyrir að sú velta
verði komin í 471 milljón dollara,
57 milljarða, árið 2026.
Ekki fundust upplýsingar um
innflutning á aloe eða afurðum
unnum úr plöntunni á heimasíðu
Hagstofunnar.
Ættkvíslin Aloe
Heimildum ber ekki saman um
hversu margar tegundir teljast til
ættkvíslarinnar Aloe en þær eru
sagðar vera milli 250 og 500 auk
þess sem til er fjöldi undirtegunda,
afbrigða og yrkja. Ólíkar tegundir
finnast villtar á þurrkasvæðum um
sunnanverða Afríku, á Madagaskar,
Jórdaníu, Arabíuskaga og eyjum
í Indlandshafi. Auk þess sem
plönturnar hafa aðlagað sig vel í
löndunum í kringum Miðjarðarhafið,
Indlandi, Ástralíu, í suðurríkjum
Norður-Ameríku, Mið-Ameríku og
norðurhluta Suður-Ameríku eftir að
hafa verið fluttar þangað til rækt-
unnar.
Sígrænar og fjölærar plöntur
sem flestar vaxa upp af blaðhvirf-
ingu þar sem þykk og safarík blöð
sem annaðhvort eru þyrnótt eða án
þyrna mynda rósettu með þykkum
en fremur grunnt liggjandi trefjarót-
um sem lifa í sambýli við sveppi
til að auðvelda næringarefnanám.
Ummál rósettunnar er breytilegt eftir
tegundum. Upp af rósettunni miðri,
sem annaðhvort vex við jörðina eða
myndar stofn með auknum aldri
miðri, vex lauflaus blómstöng-
ull eða stönglar sem stundum eru
greinóttir og mislangir eftir tegund-
um. Blómin sem eru mörg saman á
stöngulendunum eru pípulaga, gul,
appelsínugul, bleik eða rauð.
Ýmsar tegundir innan ættkvíslar-
innar, eins og til dæmis A. arbor-
escens, A. perfoIiata, A. chinensis,
A. littoralis eru í ræktun til land-
búnaðar eða sem pottaplöntur auk
þess sem villtar tegundir eru talsvert
nytjaðar.
Tegundir eins og A. vera, A.
perryi og A. ferox eru vel þekktar
lækningajurtir en aðrar eru nytjaðar
vegna trefjanna og tegundir eins og
A. socotrina og A. barbadensis eru
notaðar til að búa til bragðefni fyrir
matvörur.
Tegundirnar A. vera og A. ferox
eru þær aloe-tegundir sem mest
eru ræktaðar í heiminum í dag og
þær eru mest ræktuðu og nytjuðu
lækningajurtir veraldar. Langstærstur
hluti uppskerunnar er notaður til að
búa til vörur sem tengjast heilsu- og
snyrtivörum.
Aloe ferox
Fjölær stofnplanta sem verður tveir
til þrír metrar að hæð. Rósettan sem
vex efst á trékenndum stofninum er
með mörgum 40 til 60 sentímetra
löngum og þyrnóttum blöðum en
þyrnunum fækkar eftir því sem
plantan eldist. Blómstöngullinn
greindur og milli 60 og 120 sentí-
metra að hæð. Blómin rauð, gul
og appelsínugul að lit, pípulaga og
2,5 sentímetra að lengd. A. ferox
plöntur geta verið talsvert breyti-
legar eftir vaxtarstað og aðstæðum.
Plantan sem er oft kölluð bitur aloe
finnst villt um mest allan suðurhluta
Suður-Afríku í sendnum og grýttum
jarðvegi og þar sem sólar nýtur að
fullu.
Aðallega ræktuð af fræi eða þá að
rósettan er tekin af gömlum plönt-
um og látin ræta sig. Yfirleitt tekur
fjögur til fimm ár fyrir fræplöntur
að ná nýtingarþroska sem er þegar
hvert blað rósettunnar er 1,5 til 2,5
kíló að þyngd.
Aloe vera
Fjölær og sígræn planta með
rósettum sem vaxa umhverfis
grannan stofn sem oft er jarðlægur
og verður plantan sjaldan hærri en
einn metri. Blöðin vaxkennd við-
komu, græn eða grágræn, 30 til
60 sentímetra löng og snarptennt,
ljósgul og eru ung blöð oft með
hvítum blettum. Blómstöngullinn
allt að 100 sentímetrar að hæð og
greindur, blómin gul og mörg saman
á stöngulendanum.
Saga og útbreiðsal
Tegundin A. vera er langsamlegast
algengasta tegundin í ræktun í dag
og það sem á eftir fer á að mestu um
hana. Tegundin er talin vera upp-
runnin á suðvesturhluta Arabíuskaga
og að þaðan hafi hún snemma borist
til suðurhluta Indlands og Súdan.
Í dag hefur plantan breiðst út með
ræktun og víða náð rótfestu í nátt-
úrunni þar sem hún hefur slæðst út
frá ræktun. Meðal annars í Norður-
Afríku, suðurhluta Spánar, Súdan og
á Kanaríeyjum svo dæmi séu nefnd.
Tegundin var flutt til Kína á sautj-
ándu öld þar sem hún hefur komið
sér vel fyrir bæði sem nytjaplanta í
ræktun og í náttúrunni.
A. vera á sér langa ræktunarsögu
sem lækningaplanta. Ritaðar heim-
ildir frá Egyptalandi benda til að
Forn-Egyptar hafi gróðursett aloe-
plöntur meðfram aðalveginum að
pýramídanum í Gísa og notað safa
plöntunnar til lækninga 4000 árum
fyrir Krist. Egyptar sögðu plöntuna
varðveita leyndarmál fegurðarinnar
og eilífs lífs og bæði Kleópatra og
Nefredíta notuðu húðkrem sem unnið
var úr henni til að viðhalda fegurð
sinni og yndisþokka. Egyptar notuðu
safa plöntunnar við smurningu náa
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Aloe – læknirinn
í blómapottinum
Þyrnar aloe eru bæði stórir og hvassir.
Aloe feox á akri í Suður-Afríku.
Óþekkt aloe-tegund í Kirstenbosch grasagarðinum í Höfðaborg. Myndir / VH
Læknirinn í pottinum. Aloe vera er
vinsæl pottaplanta og ætti að vera
til á öllum heimilum vegna græðandi
eiginleika sinna.