Bændablaðið - 19.09.2019, Page 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 2019 51
Aðalfundur Hvanneyrarbúsins
ehf. var haldinn þann 27. ágúst sl.
Í stjórn félagsins á síðasta starfsári
voru Baldur Helgi Benjamínsson,
búfjárerfðafræðingur og bóndi á
Ytri-Tjörnum í Eyjafirði, formað-
ur, Ólöf Ósk Guðmundsdóttir,
námsbrautarstjóri búfræðibraut-
ar skólans og Pétur Diðriksson,
bóndi á Helgavatni í Þverárhlíð.
Bústjóri er Egill Gunnarsson
og fjósameistari er Hafþór
Finnbogason.
Fundargerðir stjórnarfunda, árs
reikningar og skýrslur stjórnar eru
birtar á heimasíðu Landbúnaðar
háskólans, lbhi.is.
Afurðir og mjólkurgæði
í fremstu röð
Tilgangur félagsins er að reka á hag
kvæman hátt kúabú á Hvanneyri í
þágu kennslu og rannsóknastarfs
Landbúnaðarháskóla Íslands.
Innlögð mjólk árið 2018 var 544.883
lítrar með 4,01% fitu og 3,26%
próteini, mfm líftölu var 14 og
mfm frumutölu 123. Hlutfall fitu og
próteins hækkaði nokkuð frá fyrra
ári, en líftala og frumutala lækkuðu
frá árinu á undan, þannig að heilt yfir
er þróun mjólkurgæða mjög jákvæð.
Árskýr á búinu voru 72,2 (73,1) sem
að meðaltali skiluðu 8.289 (8.180)
kg mjólkur, með 4,06% fitu (3,79%)
og 3,32% próteini (3,23%). Búið er
hið 4. afurðahæsta á landinu, mælt
í kg mjólkur/árskú. Tún, engjar og
grænfóðurakrar eru um 170 ha.
Stöðugur rekstur
Rekstur félagsins gekk með ágætum
á árinu 2018 og var hann í samræmi
við þær áætlanir sem stjórnendur fé
lagsins lögðu upp með. Heildartekur
félagsins voru 87,1 m.kr og hagn
aður félagsins á árinu eftir fjár
magnsliði var 5 m.kr. Áætlun yfir
standandi árs gerir ráð fyrir tekjuaf
gangi þannig að halda megi áfram
að byggja upp eigið fé félagsins, búa
í haginn fyrir nauðsynlega endur
nýjun á tækjum, búnaði og ræktun,
ásamt því að efla fjárhagslegan styrk
Hvanneyrarbúsins. Eigið fé félagsins
jókst um rúmlega 5 milljónir kr á
árinu og nemur það nú 26,6 m.kr.
Eiginfjárstaða félagsins hefur rúm
lega tvöfaldast frá því að rekstur fé
lagsins var færður í núverandi horf
árið 2015, eins og sjá má á mynd
unum hér að neðan.
Helstu fjárfestingar félagsins á
liðnu ári voru nýjar sláttuvélar, bæði
fram og afturvél og frambúnaður
á aðaldráttarvél búsins, MF5613.
Auk þess var keypt notuð hliðar
rakstrarvél. Eldri vélar voru ýmist
seldar eða settar upp í þær nýju. Þá
var umtalsverðum fjármunum varið
til viðhalds á ræktun og framræslu.
Óplægður rannsóknaakur
Frá síðasta aðalfundi hafa orðið þau
þáttaskil í rekstrinum að uppgjöri við
fyrrverandi bústjóra er að fullu lokið.
Stjórn leggur áherslu á að nýta það
fjárhagslega svigrúm sem myndast
við það í þágu áframhaldandi upp
byggingar á aðstöðu og búnaði.
Fyrir liggur að nauðsynlegt
er að gera ýmsar breytingar á
Hvanneyrarfjósinu ef í því á að vera
mögulegt að framkvæma einstak
lingsfóðrunartilraunir á nautgripum.
Þegar er farið að huga að því með
hvaða hætti sú endurnýjun skuli
gerð. Til að mynda þrengdi einföld
rannsókn á fóðrun ungkálfa mjög að
núverandi búrekstri. Þá er mjög stór
rannsóknaakur varðandi umhverfis
áhrif nautgriparæktar óplægður.
Í nýrri skýrslu RML um hagrænt
vægi eiginleika í nautgriparækt
kemur fram að handbær gögn um
launakostnað í mjólkurframleiðslu
eru mjög takmörkuð. Með skipulegri
og handhægri skráningu vinnutíma
starfsmanna Hvanneyrarbúsins,
væri mögulegt að gera þar nokkra
bragarbót á.
Horft til framtíðar
Í nýútkominni stefnu Landbúnaðar
háskólans 20192024 er lögð áhersla
á að „tryggja fyrirmyndar búrekstur
sem er leiðandi í sjálfbærni,
umhverfisvernd og tækniþróun“.
Að mati stjórnar Hvanneyrar
búsins er núverandi búrekstur
til mikillar fyrirmyndar á flesta
mælikvarða. Til að hann verði
leiðandi á landsvísu varðandi
fyrrnefnd atriði þarf að ráðast
í ýmsar framkvæmdir og fjár
festingar; plastnotkun er t.d. hægt
að minnka gríðarlega. Öflugri
rannsóknir í jarðrækt með bættri
aðstöðu og auknum mannafla
væru vel til þess fallnar að auka
sjálfbærni í fóðuröflun búsins.
Nýr mykjutankur hefur stór
bætt nýtingu næringarefna í búfjár
áburði, svo dæmi séu tekin. Sú
fjárfesting er mikilvægt framlag til
umhverfismála. Aukin sjálfbærni í
orkuöflun búsins er einnig atriði sem
vert er að gefa gaum.
Stjórn Hvanneyrarbúsins ehf.
þakkar starfsmönnum fyrir sam
starfið á árinu og óskar þeim til
hamingju með góðan árangur í
búrekstrinum. Starfsmönnum skólans
er jafnframt þakkað fyrir samstarfið.
Á aðalfundi 2019 urðu þær breytingar
að Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir
rektor tók við stjórnarformennsku
í félaginu en Baldur og Pétur sitja
áfram með henni í stjórn þess. /BHB
2.870.000 kr.
VIVARO VAN
Listaverð 3.890.000 kr.
Tilboðsverð
án vsk. 3.742.000 kr.
VIVARO COMBI - 9 manna
Listaverð 4.990.000 kr.
Tilboðsverð
án vsk.
ÁRAMÓTATILBOÐ* - OPEL ATVINNUBÍLAR
Frábær vinnukraftur!
Nýttu þér skattalegt hagræði ársins sem er að líða
Birt m
eð fyrirvara um
verð- og textabrengl. *Tilboðið gildir til 31. des. 2019.
2.145.000 kr.
COMBO CARGO
Listaverð 2.990.000 kr.
Tilboðsverð
án vsk.
benni.is ReykjavíkKrókhálsi 9
590 2000
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
420 3330
Opið virka daga frá 9 til 18
Laugardaga frá 12 til 16
Verið velkomin í reynsluakstur
Á FAGLEGUM NÓTUM
Hvanneyrarbúið styrkir stöðu sína
skógarhögg
Er dauðans
alvara
grisjun og skógarhögg er orðinn ríkur
þáttur í störfum skógarbænda en er
síður en svo hættulaus.
Slys verða helst þegar menn eru að
flýta sér eða misreikna öryggissvæðið
í kringum skógarhöggið.
Er þitt bú
öruggur
og góður
vinnustaður?
PO
RT
h
ön
nu
n
Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi
og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is