Bændablaðið - 19.09.2019, Page 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 2019 55
Hafinn er undirbúningur að
útgáfu markaskráa um land
allt en þær eru gefnar út á átta
ára fresti í samræmi við ákvæði
afréttalaga og reglugerðar um
búfjármörk. Nýjum marka-
skrám verður dreift fyrir haustið
2020.
Nú er starfandi 21 markavörð-
ur í landinu og er reiknað með að
markaskrárnar verði 17 að tölu eins
og 2012. Skylt er að eyrnamarka
allt sauðfé og geitfé og skulu öll
þau mörk vera í markaskránum. Þá
eru folöld víða eyrnamörkuð þar
sem samgangur er mikill, svo sem
í afréttum, og eru flest þau mörk
sérmerkt í skránum. Brennimörkin
koma með svo og öll skráð frost-
mörk hrossa. Bæjarnúmerin fylgja
með að venju enda prentuð á öll
plötumerki sauðfjár og geitfjár í
viðeignandi litum eftir svæðum.
Sauðfjáreigendum í landinu
hefur farið fækkandi, frostmörkum
hefur lítið fjölgað og er því reiknað
með nokkurri fækkun marka þegar
á heildina er litið. Með skráningu
marka í markaskrárnar er jafnhliða
verið að mynda grunn undir endur-
nýjaða Landsmarkaskrá á netinu
(www.landsmarkaskra.is).
Söfnun marka hafin
Markaverðir um land allt hafa fengið
send öll þau gögn sem þeir þurfa frá
Bændasamtökum Íslands til að geta
hafið söfnun marka og er hún nú
þegar hafin í sumum markaumdæm-
unum. Allir skráðir markaeigendur
fá send bréf með markablöðum og
leiðbeiningum og er reiknað með
að flestar skráningarnar skili sér
til markavarða í desember og jan-
úar. Berist ekki bréf af einhverjum
ástæðum þarf að hafa samband við
viðkomandi markaverði. Þeir veita
nánari upplýsingar eftir því sem þörf
krefur og aðstoða við upptöku nýrra
marka og bæjarnúmera. Í meðfylgj-
andi skrá eru póstföng og símanúmer
þeirra allra og netföng flestra.
Búfjármörk eru lögvarin eign
Þess ber að geta að búfjármörk eru
lögvarin eign sem getur gengið að
erfðum, verið seld eða gefin. Þá er
markaeign ekki bundin við búfjár-
eign þannig að sumir fyrrvarandi
búfjáreigendur halda tryggð við
mörkin sín og senda þau inn til
birtingar. Markaverðirnir sjálfir
skrá á sig nokkurn fjölda marka
sem eru á lausu og úthluta þeim til
nýrra eigenda, eftir þörfum, á milli
skráa. Þá er alltaf nokkuð um að
ný mörk og bæjarnúmer séu tekin
upp.
Æskilegt er að mikil særinga-
mörk (soramörk) verði aflögð eftir
föngum og ný ekki skráð. Þá er
mælst til þess að þeim góða sið
verði við haldið að birta fjallskila-
samþykktir í öllum markaskránum.
Guðlaug Eyþórsdóttir
(landsmarkavörður) og
Ólafur R. Dýrmundsson
(fv. landsmarkavörður)
aflhlutir.is | s. 544 2045 | aflhlutir@aflhlutir.is
Mikið úrval af
hágæða rafstöðum
MATVÆLI&MARKAÐSMÁL
Á FAGLEGUM NÓTUM
Markaverðir 2019 13.12.2019
Markaverðir á Íslandi 2020
Markaskrá Nafn Heimili Póstnr. Staður Sími Gsm Netfang
Landnám Ingólfs Arnarsonar Ólafur R Dýrmundsson Jóruseli 12 109 Reykjavík 841-1346 oldyrm@gmail.com
Borgarfjarðarsýsla Ingimundur Jónsson Deildartungu 1A 320 Reykholt í Borgarfirði 861-5171 zetorinn@visir.is
Mýrasýsla Þórir Finnsson Hóli 311 Borgarnes 435-0041
Snæfellsness- og Hnappadalssýsla Jónas Jóhannesson Jörfa 311 Borgarnes 435-6782 869-4584
Dalasýsla Arndís Erla Ólafsdóttir Ásgarðslandi 371 Búðardalur 434-1261 erla22@simnet.is
Vestfirðir - A.-Barð. Arnór Grímsson Arnórshúsi 381 Reykhólahreppur 434-7763 896-7763 soleygv@simnet.is
Vestfirðir - V.-Barð. Barði Sveinsson Innri-Múla 451 Patreksfjörður 456-2019 innrimuli@simnet.is
Vestfirðir - Ís. Aðalsteinn L Valdimarsson Strandseljum 401 Ísafjörður 456-4812 alvald@snerpa.is
Vestfirðir - Str.s. Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir Lækjartúni 15 510 Hólmavík 451-3196 696-3196 hrafnh@snerpa.is
Húnavatnssýslur - V.-Hún.*
Húnavatnssýslur - A.-Hún. Jóhann Guðmundsson Holti 541 Blönduós 452-7127 861-5592 holtsvinadal@emax.is
Skagafjarðarsýsla Lilja Björg Ólafsdóttir Kárastöðum 551 Sauðárkrókur 453-6531
Eyjafjarðarsýsla Ólafur Geir Vagnsson Hlébergi 601 Akureyri 894-3230 hleberg@simnet.is
S-Þingeyjarsýsla og Kelduneshreppur Sveinbjörn Þór Sigurðsson Búvöllum 641 Húsavík 464-3546 898-8306 buvellir@simnet.is
N-Þingeyjarsýsla austan Jökulsár Árni Davíð Haraldsson Gunnarsstöðum 2 lóð 681 Þórshöfn 863-1265 arnihar@hotmail.com
Austurland - N.-Múl. Jón Víðir Einarsson Hvanná lóð 1 701 Egilsstaðir 471-1052
Austurland - S.-Múl. Björn Björgvinsson Sólbakka 4 760 Breiðdalsvík 475-6643 893-1824 breiddal@simnet.is
A-Skaftafellssýsla Guðfinna Benediktsdóttir Volaseli 781 Höfn í Hornafirði 478-1713 895-0026
V-Skaftafellssýsla Jón Jónsson Prestsbakka 881 Kirkjubæjarklaustur 487-4754 891-6009 prestsb@talnet.is
Rangárvallasýsla Sigríður Helga Heiðmundsdóttir Kaldbak 851 Hella 487-5133 869-2042 kaldbakur@uppsveitir.is
Árnessýsla*
Vestmannaeyjar Jónatan Guðni Jónsson Smáragötu 13 900 Vestmannaeyjar 869-5074 jonatanjons@gmail.com
* Bráðlega verður skipað í stöður markavarða Árnessýslu austan vatna og Vestur-Húnavatnssýslu.
Nýjar m rkaskrár gefnar út 2020
Mynd / Jon Eiriksson