Bændablaðið - 19.09.2019, Page 58
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201958
Síðustu ár hefur umræða um
sótspor matvælaframleiðslu í
heiminum verið töluverð og farið
vaxandi. Samhliða hefur verið
varið miklum fjármunum til að
bæta þekkinguna á raunveruleg-
um umhverfisáhrifum af mat-
vælaframleiðslunni og er raunar
enn í dag mörgum spurningum
ósvarað um áhrifin.
Ein af áhugaverðari staðreyndum
um umhverfisáhrifin er samhengið
við sóunina sem verður á þeim mat-
vælum sem eru framleidd í heimin-
um en samkvæmt skýrslu frá FAO,
Landbúnaðar- og Matvælastofnunar
Sameinuðu þjóðanna, þá tapast nærri
þriðjungur allrar matvælafram-
leiðslu heimsins árlega!
Umhverfisáhrif matvælafram-
leiðslu heimsins ná með öðrum
orðum vissulega til frumfram-
leiðslunnar, en þau ná svo sannnar-
lega langt út fyrir frumframleiðsl-
una einnig og nýverið var haldin
áhugaverð ráðstefna í Peking um
þessi áhrif, þar sem horft var til
sóunarinnar í heildarferlinu, þ.e. frá
sjómanninum eða bóndanum og til
neytandans, sem og hvað hægt væri
að gera til að auka nýtingu almennt
séð. Á ráðstefnunni, sem haldin
var sem samstarfsverkefni danska
umhverfisráðuneytisins og hins kín-
verska, voru haldin fjölmörg erindi
af fulltrúum umhverfisstofnana, fyr-
irtækja og hins opinbera.
122 þúsund milljarðar
í súginn árlega!
Á ráðstefnunni kom m.a. fram að
þegar horft sé til nýtingar þeirra mat-
væla sem eru framleidd árlega þá fari
einfaldlega allt of mikið af þeim til
spillis og hefur FAO reiknað út að
líklega megi ætla að verðmætið sem
tapist á hverju ári vegna þessa nemi
um 990 milljörðum bandaríkjadala
eða hvorki meira né minna en 122
þúsund milljörðum íslenskra króna!
Þessi gríðarlegu verðmæti felast í því
að það verður margs konar sóun á leið
matvæla heimsins af landi, vötnum
eða sjó og til neytenda. Þessi sóun er
þó misjöfn eftir löndum og á meðal
hinna þróuðu landa verður mun meiri
spilling á matvælum en meðal þró-
unarlanda og hjá sumum löndum er
sóun matvæla nánast hverfandi!
1,3 milljarðar tonna
Samkvæmt FAO reiknast hin árlega
sóun á matvælum heimsins vera 1,3
milljarðar tonna en afar misjafnt
er eftir flokkum hve mikið er talið
spillast árlega. Mest eru það ávextir
og grænmeti sem oftast fer til spillis
en talið er að 45% framleiðslunnar
endi ekki sem matur á borði íbúa
heimsins og var nefnt sem dæmi um
þessa geigvænlegu sóun að talið er
að á hverju ári fari 3,7 trilljónir ætra
epla til spillis!
Þá er talið að 35% af fiskafurð-
um og öðrum sjávarafurðum fari til
spillis á hverju ári og þannig er t.d.
talið að 8% af öllum veiddum fiski
í heiminum sé hent aftur í sjóinn,
m.a. vegna einhverra takmarkana
á veiðum, en í erindi fulltrúa FAO
kom fram að talið er að meirihluti
þessara fiska séu annaðhvort dauð-
ir, að drepast eða illa særðir og því
væri eina vitið að koma með þá að
landi og nýta. Fiskveiðikerfi sumra
landa komi hins vegar í veg fyrir
að sjómenn geti gert það án þess að
lenda í vanda.
Þegar horft er til kjötsins þá telur
FAO að um 20% af öllu framleiddu
kjöti í heiminum fari til spillis og að
sama hlutfall af olíufræjum, ólífum
og belgbaunum fari einnig til spillis
árlega.
95–115 kíló á mann
Þegar horft er til þess hve mikið
spillist af matvælum í heiminum er
umhugsunarefni hve mikið fer til
spillis á heimilum hinna efnameiri
íbúa heimsins. Þannig telur FAO að
magnið nemi 95–115 kílóum árlega
Á FAGLEGUM NÓTUMUTAN ÚR HEIMI
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
0
50
100
150
200
250
300
350
Evrópa Norður-Ameríka og
Eyjaálfa
Þróuð lönd Asíu Afríka sunnan Sahara Norðurhluti Afríku,
Vestur- og Mið Asía
Suður og Suðaustur Asía Mið- og Suður Ameríka
Matarsóun á íbúa, kg/ári - hlutur framleiðenda og neytenda
Framleiðendur, vinnslu-, dreifingar- og söluaðilar Neytendur
Þriðjungur matvæla
fer árlega til spillis!
Nærri þriðjungur allrar matvælaframleiðslu heimsins tapast árlega.
Mynd / Vadican News
Krafa neytenda um fallegt útlit matvæla leiðir oft til mikillar sóunar.
Indónesía:
Svínapestin farin að
herja á Súmötru
– Kallað eftir aðstoð FAO um gerð viðbragðsáætlunar
Ekkert lát er á útbreiðslu svína-
pestarinnar um heiminn og nú
hefur verið staðfest að veikin hafi
borist til Indónesíu. Ljóst er að
milljónir tonna af svínakjöti munu
hverfa af heimsmarkaði á kom-
andi misserum vegna veikinnar.
Sjúkdómafaraldurseft i r l i t
Matvæla- og landbúnaðarstofnunar
(FAO) gaf út tilkynningu 12. des-
ember ásamt landbúnaðarráðherra
Indónesíu að faraldur svínapestar
hafi brotist út á Norður-Súmötru.
Í tilkynningu FAO kom fram
að tilkynnt hafi verið um óeðlilega
mikinn fjölda dauðra svína á Norður-
Súmötru í september. Yfirmaður
dýraeftirlits, sem og yfirstjórn
dýraheilbrigðismála í Indónesíu,
óskuðu þá eftir ráðleggingum frá
FAO um hvernig ætti að hafa hemil
á útbreiðslu afrísku svínapestarinnar
ASF. Er nú unnið að gerð viðbragðs-
áætlunar fyrir Indónesíu.
Um 100% dauðatíðni
Frá því fyrst varð vart við útbreiðslu
afrísku svínapestarinnar í Kína í
ágúst 2018, hefur veirusmit borist
til allra héraða Kína. Hafa milljónir
svína verið drepin til að reyna að
hefta útbreiðslu veikinnar sem engin
lækning er til við, né bóluefni. Allt
hefur komið fyrir ekki og heldur
veikin áfram að breiðast út um Asíu.
Dauðatíðni smitaðra dýra af ASF
veirunni er um 100% samkvæmt
gögnum FAO.
Kjötskortur leiðir til
verðhækkana
Vegna skorts á svínakjöti í Kína
hafa kínverskir kjötkaupmenn leitað
fanga um allan heim til að reyna að
tryggja sér heilbrigt svínakjöt. Hefur
það þegar leitt til mikilla hækkana á
svínakjöti og þar sem fyrirsjáanlega
stórt hlutfall af kjöti er að detta út af
markaði er verðhækkana líka farið
að gæta í öðrum kjöttegundum.
Í frétt Global Meat um málið er
vísað til Rabobank í Sviss en sér-
fræðingar bankans um markað fyrir
dýraprótein segja vel fylgst með
áhrifum af útbreiðslu svínapestar-
innar á fjármálakerfið. Þar er talað
um að þótt verð á mörkuðum sé að
„batna“ séu enn miklir óvissuþættir,
m.a. vegna girðinga sem ríki kunni
að setja varðandi innflutning á kjöti
til að forðast smit.
FAO hefur birt langan lista yfir
héruð í Asíu þar sem ASF-smit hefur
þegar greinst. /HKr.
Kort FAO yfir tilkynningar sem borist hafa um útbreiðslu afrísku svínapest-
arinnar (ASF) í Asíu.
Risaeðlur og lýs:
Fiðraðar og lúsugar
Nýlegur fornleifafundur bendir
til þess að risaeðlur eða vissar
tegundir af þeim hafi verið með
fjaðrir og að lýs hafi lifað góðu
lífi í og undir fjöðrunum.
Vísindamenn hafa verið að rann-
saka nýlega fundinn amber-klump
frá Búrma, sem talinn er vera að
minnsta kosti 99 milljón ára gam-
all, og í klumpinum er að finna
risaeðlufjaðrir og tíu smádýr sem
líkjast lúsum. Við smásjárskoðun
má svo sjá að lúsin eða lýs hafa
nartað í fjaðrirnar.
Fundurinn er meðal annars
áhugaverður fyrir það að þetta er
elsta þekkta dæmið um lýs eða
lúsalík kvikindi sem éta fjaðrir og
færir tilkomu þeirra aftur um 55
milljón ár.
Tegundin, sem hefur verið
óþekkt fram til þessa, hefur fengið
latneska heitið Mesophthirus engeli
og eru kvikindin sem fundust 0,14 til
0,23 millimetrar á lengd en áætlað
er að fullvaxin ættu þau að ná um
0,5 millimetrum að lengd. Þau eru
vængjalaus, kjaftur þeirra er sagð-
ur sterkbyggður og með að minnsta
kosti fjórum tönnum. /VH
Lúsin Mesophthirus engeli sem lifði á risaeðlum fyrir um 99 milljónum ára.