Bændablaðið - 19.09.2019, Side 64
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201964
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Landsseyðasýning 2019
Um miðjan nóvember sl. fór
undirritaður til Færeyja til að
vera dómari á landshrútasýn-
ingunni þar. Færeyingar óskuðu
eftir því að fá dómara frá Íslandi
til að koma og dæma skv. íslensk-
um reglum. Þarna ferðaðist ég
sem aukamaður ásamt fimm
sýnismönnum (dómnefnd) sem
dæmdu skv. færeyskum reglum.
Talsverður munur er á færeysk-
um og íslenskum dómum enda
áherslur og aðstæður breytilegar
milli landanna.
Færeyskt sauðfé
Færeyski sauðfjárstofninn telur
um 75.000 gripi og er af ætt
norðurevrópsks stuttrófufjár líkt
og íslenska féð. Færeyskir hrútar
eru allir hyrndir en ærnar eru
að 2/3 kollóttar og 1/3 hyrndar.
Ullin á færeysku fé er svipuð og
á fénu á Íslandi, þ.e. hefur bæði
þel og tog en tíðni grunnlita er
allt önnur. Þannig eru um 30%
af ánum hvítar, 30% svartar eða
með svartan grunnlit, 30% gráar
eða með gráan grunnlit og 10%
mórauðar eða með mórauðan
grunnlit. Að jafnaði er féð aðeins
rúið einu sinni á ári, þ.e. á sumrin
enda þétt og góð ull nauðsynleg
gripunum þar sem bæði er vinda-
samt og rakt yfir vetrarmánuðina
í Færeyjum. Hrútar eru hafðir inni
en ærnar eru á beit og fá kjarn-
fóður með – sérstaklega síðustu
vikurnar fyrir burð. Þó færist í vöxt
að ær séu einnig haldnar á húsi yfir
vetrarmánuðina. Flestar ærnar eiga
aðeins eitt lamb og afurðir sauðfjár
hafa verið ríkur partur af menningu
Færeyinga gegnum aldirnar.
Landsseyðasýningin
Á landshrútasýningunni eru skoð-
aðir þeir hrútar sem hafa fyrr um
haustið staðið efstir á héraðssýn-
ingum á hverjum stað fyrir sig.
Keppt er í þremur flokkum, flokki
lambhrúta, flokki veturgamalla og
flokki fullorðinna hrúta. Í ár voru
á landssýningunni 54 hrútar og
flokkur lambhrúta langstærstur.
Í færeyskum dómum er gefin
einkunn fyrir framfætur, afturfæt-
ur, horn, ull og samræmi. Segja
má að ræktunarmarkmiðið sé að
gripirnir hafi sterka fætur og þétta
ull vegna þess umhverfis sem þeir
eru í allt árið um kring enda undir-
lendi lítið og mikill bratti í öllum
hlíðum.
Af öllum hrútum sem keppa er
tekið myndband og birt á heima-
síðu Búnaðarstovunnar sem ann-
ast sýningarhaldið. Vegna sjúk-
dómavarna má ekki safna hrút-
unum saman á einn stað til dóma
heldur þarf að fara á milli bæja
eða eyja og dæma á hverjum stað.
Sýningahaldið spannar því þrjá
daga með öllum ferðalögum.
Fyrir undirritaðan var talsvert
öðruvísi að mæta þarna með ómsjá
og dæma hrútana skv. íslenskum
reglum enda byggingarlag þeirra
talsverð frábrugðið íslensku fé, þó
uppruninn sé sá sami, enda hefur
íslenska féð verið kynbætt sem
holdsöfnunarfé meðan færeyska
féð hefur ekki verið kynbætt fyrir
aukinni holdsöfnun sérstaklega.
Hins vegar sá ég þarna talsverðan
breytileika og með sömu aðferð
og við notum hér á landi við dóma
væri hægt að auka holdfyllingu í
færeysku fé. Lægsti fótleggur
sem ég mældi var 124 mm á vet-
urgömlum hrút og sá hæsti var 155
mm, einnig á veturgömlum hrút.
Ómmælingu verður að taka með
ákveðinni varúð á þessu árstíma
enda hrútarnir búnir að vera inni
í talsverðan tíma, komnir í aflögn
og biðu spenntir eftir að fengitími
hæfist sem er yfirleitt síðustu vik-
una í nóvember.
Verðlaunafhending
Föstudagskvöldið 22. nóvember
var síðan verðlaunaafhending
þar sem mættu tæplega 100
manns. Verðlaunaafhendingin er
talsverður viðburður og byrjaði
samkoman á söng og því næst
að horfa á myndabandsupptöku
af öllum hrútum sem tóku þátt,
síðan voru kaffiveitingar. Þá voru
tvö fræðsluerindi og loks veitt
verðlaun fyrir efstu þrjá hrúta
í hverjum flokki. Undirritaður
hélt annað fræðsluerindið sem
var um íslenska sauðfjárrækt.
Fyrir áhugasama er hægt að sjá
myndir og upptökur af öllum
hrútum sem tóku þátt, á heimasíðu
Búnaðarstovunnar – www.bst.fo.
Besta lambhrútinn átti
Thorvald Lútzen í Syðradal,
besta veturgamla hrútinn átti
Sigtór Thorvaldson í Syðradal og
besta eldri hrútinn átti Jóhannes
Petersen í Syðrigötu.
Röðun hrútanna var þó önnur
eftir dómum undirritaðs, að teknu
tillit til íslenskra dóma, en þá var
besti hrúturinn yfir allt landið
svartur hrútur í eigu Absalons
Hansen í Þórshöfn en sá hrútur
var í þriðja sæti veturgamalla í
ár og var í öðru sæti lambhrúta
á landsseyðasýningunni í fyrra.
Miðað við íslenska dóma dæmdist
hann núna með 79 stig, mældist með
124 mm fótlegg og ómmælingin var
29 mm vöðvi, fita 3,7 mm þykk og
lögun bakvöðva 3,5.
Samvinna/samstarf
í sauðfjárrækt
Í fræðsluerindi mínu fyrir færeyska
sauðfjárbændur fór ég almennt yfir
sauðfjárræktarstarfið á Íslandi
og mikilvægi sauðfjárræktar
fyrir dreifbýlið á Íslandi. Í því
samhengi eru mikil líkindi milli
landanna því margt sem tengist
sauðfjárrækt byggist á félags-
legum grunni í báðum löndunum.
Í nýlegu viðtali við „Dagbladet
Information“ orðar Ólafur Reinert
í Norðurdal mikilvægi færeyskrar
sauðfjárræktar á þennan hátt: „Á
mínu svæði erum við hvert okkar
í eigin húsi uns eitthvað þarf að
gera með kindurnar, það eru þær
sem fá okkur til að hittast og vinna
saman.“ Norðurdalur er frekar af-
skekkt byggð á færeyska vísu.
Fyrir Færeyinga eru tækifæri
í því að hagnýta sér ómmælingar
líkt og gert er á Íslandi með það að
markmiði að rækta þá gripi sem
henta best þeirra framleiðsluhefð-
um. Ég skynjaði áhuga þeirra á að
fá kjötmeiri gripi og þá sérstaklega
hvað varðar frampart og hrygg en
samhliða því þarf líka að vera rétt
magn af fitu, hvorki of lítil né of
mikil. Þarna myndu ómmælingar
með afkvæmarannsóknum nýtast
Færeyingunum vel. Eins gætu þeir
skoðað að lækka eitthvað fótlegg
stofnsins, t.d. um 10–15 mm.
Hins vegar lagði ég áherslu
á það við þá að breyta ekki bara
breytinganna vegna. Verðmyndun
á kindakjöti í Færeyjum er allt
önnur en á Íslandi og meðalverð
á kíló af fersku kjöti er um 100
danskar krónur (1.880 kr./kg m. v.
gengi í dag), en mikið af kjötinu er
síðan þurrkað og verður ræst kjöt
eða skerpukjöt. Á því kjöti er allt
annað og hærra verð.
Færeyskir sauðfjárbændur
skapa sér líka sitt orðspor og þar
ræður eftirspurnarmarkaður för.
Færeyingar flytja ekki út kjöt en
þar hafa verið innleiddar margar
reglur ættaðar frá Brussel því eyj-
arnar eru hluti af Danmörku, en
þar er þó heimilt að slátra heima.
Reglan er sú að kalla þarf til dýra-
lækni til eftirlits við slátrun þegar
kaupandi vörunnar ætlar að selja
hana áfram til þriðja aðila en ekki
þegar um viðskipti bænda og neyt-
enda er að ræða. Mögulega gætu
íslensk stjórnvöld leitað í smiðju
Færeyinga hvað þetta snertir þegar
kemur að regluverki varðandi
slátrun til að auka verðmætasköp-
un bænda sem vilja slátra sjálfir.
Við Íslendingar gætum líka
ýmislegt lært af Færeyingum varð-
andi verkun og varðveislu kjöts.
Þeir viðhalda enn verkþekkingu
sem var eflaust við lýði á Íslandi
við landnám en hefur á einhverjum
tímapunkti fallið í gleymskunnar
dá. Þar er held ég óplægður akur
tækifæra fyrir þá sem hafa áhuga
á slíkri verkun kjöts.
Ferðin til Færeyja var mjög
lærdómsrík fyrir mig og ég hef
í störfum mínum undanfarin ár
aðeins fengið að kynnast sauð-
fjárrækt í löndunum í kringum
okkur, bæði með því að flytja fyr-
irlestra (í Grænlandi, Færeyjum og
Englandi) en eins með því að taka
á móti erlendum vísindamönnum á
sviði sauðfjárræktar. Allir dást að
því hversu vel við gerum hlutina
þegar sagt er frá þeim, enda vita
þeir sem hingað koma lítið hvað
við erum að gera þegar meginþorri
upplýsinga um starfið er aðeins á
íslensku. Ég tel að við Íslendingar
getum miðlað miklum fróðleik
varðandi sauðfjárrækt erlendis
með samstarfi – það krefst hins
vegar bæði mannskapar og fjár-
mögnunar. Hvort skilningur verður
á því hjá þeim sem forgangsraða
fjármunum varðandi landbúnað og
alþjóðlegt samstarf verður tíminn
að leiða í ljós.
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
Ráðjöf í sauðfjárrækt
eyjolfur@rml.is
„Sýnismenn 2019“ talið frá vinstri: Jacob Vestergaard, Markus Í Norðnástovu, Eyðun Eliasen, Óli í Hjøllum, Poul
Samuelsen og Eyjólfur Ingvi Bjarnason. Í bakgrunni er Malínsfjall hjá Viðareiði, Viðey. Mynd / Jens Ivan í Gerðinum
Svartur hrútur í eigu Absalon Han-
sen, Þórshöfn sem ég taldi besta
gripinn skv. íslenskum reglum.
Mynd / Absalon Hansen
Hrútar dæmdir í Porkeri, Suðurey. Mynd / Eyjólfur Ingvi Bjarnason
Þrjár kynslóðir bænda í Syðradal með verðlaun fyrir góða hrúta.
Mynd / Eyjólfur Ingvi Bjarnason
Búnaðarstovan í Kollafirði. Á myndunum til hliðar má sjá hjallinn þeirra undir brúnni heim að stöðinni, þar sem kjöt er í þurrkun. Myndir / Eyjólfur Ingvi Bjarnason