Bændablaðið - 19.09.2019, Page 71
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 2019 71
Það hefur væntanlega ekki farið
framhjá neinum, hressilegur
norðanvindurinn í byrjun mánað-
arins, sem olli svo miklu tjóni að
vænta má að taki eitthvað fram
á vorið að koma í ljós tjón og
skemmdir sem ekki er hægt að
komast að núna sökum ófærðar
og snjóalaga.
Það var tvennt sem ég tók sér-
staklega eftir í kringum þetta veður
sem var bæði lof og last. Annars
vegar voru það þeir sem voru að gera
lítið úr veðrinu, en það að reyna að
tala niður óveðursspár og viðvaran-
ir er ekki skynsamlegt í ljósi þess
að varla man nokkur maður eftir
veðurofsa í líkingu við þetta veður.
Hitt var öllu jákvæðara sem ég tók
sérstaklega eftir. Fræðimenn gáfu
út viðvaranir um komandi veður og
báðu fólk að vera viðbúið veðrinu og
ekki að vera á ferð á þeim tíma sem
veðrið átti að vera verst og virðist
það hafa tekist. Svo vel tókst þetta
að varla sást nokkur maður á ferðinni
nema af illri nauðsyn, sem í leiðinni
fækkaði útköllum björgunarsveita
og gerði snjómokstursmönnum auð-
veldara fyrir að koma samgöngum í
lag þegar veðrinu slotaði.
Forsjárhyggja vegna lokana
á vegum og þjónustu á ekki
að vera deiluefni
Appelsínugul og rauð viðvörun á
veðri er eitthvað sem maður vonar
að maður sjái ekki aftur á næstunni
og vonandi ekki næstu árin, en eins
og spilað var úr þessu veðri er lær-
dómsríkt.
Það að loka vegum, stofnunum
og fyrirtækjum vegna náttúruafla
á ekki að vera þrætuefni. Það hefur
svo margsinnis sýnt sig að allt of
margir vaða áfram án nokkurrar
hugsunar út í vond veður, inn á
ófæra vegi vanbúnir til þess að
takast á við það sem fram undan er.
Allt of margir hlusta ekki á ráð-
leggingar, veðurspár, viðvaranir og
halda sig geta meira en reyndin
er, samanber að fara fjallvegi
á eindrifs bílum og jafnvel ekki
einu sinni útbúnir til vetraraksturs.
Kalla síðan eftir björgunarsveit til
að sækja sig. Verða að skilja bílinn
eftir, jafnvel á miðjum vegi, sem
skapar hættu og óþarfa fyrirhöfn
fyrir snjómokstursmenn sem opna
veginn.
Meira að segja sér maður oft
bíla sem ekki þola mikinn vind á
ferðinni og jafnvel með kerrur og
vagna í eftirdragi. Sem dæmi þá
fannst mér útskýring hjá starfs-
manni á kerruleigu N1 mjög góð
að kerruleigan væri lokuð hjá sér
þegar vindur er kominn yfir 15 metra
á sekúndu og gul viðvörun í gangi.
Það verður einhver að hafa vit fyrir
fólki sem aldrei hlustar á veðurspár,
sagði hann, þegar ég spurði hann
hvers vegna kerruleigan væri lokuð
fyrir nokkru á vindasömum degi.
Nóg af vindi og óveðri,
það eru að koma jól
Þegar þetta er skrifað er komið raf-
magn á nánast öllum þeim heimilum
sem urðu rafmagnslaus og daglegt
líf allt að komast í eðlilegan farveg
við undirbúning jóla. Þökk sé dugn-
aði og drífanda í viðgerðarmönnum
rafmagnslína sem vissulega eiga hól
skilið.
Árlega hef ég minnst á þessi
hefðbundnu verk sem þarf að gera í
undirbúningi fyrir jól og má alls ekki
gleyma. Passa upp á að fara varlega
með kerti og opinn eld, skipta um
rafhlöður í reykskynjurum, yfir-
fara slökkvitæki og passa upp á að
ljósaseríur séu ekki of margar á sama
stofnörygginu og að nota vatnsheld-
ar rafmagnssnúrur og fjöltengi í úti-
ljós og ljósaseríur.
Svo er það allur góði maturinn
og annað góðgæti sem fylgir jólum.
Fólk sem er ekki vant að borða mikið
reyktan og saltan mat þarf að kunna
sér hóf í mat og sælgæti sérstaklega
þeir sem eru orðnir 40+. Þetta vita
margir ef ekki allir sem eru komnir
yfir þennan aldur og borða of mikið
á stuttum tíma, það tekur einfald-
lega lengri tíma að jafna sig eftir
ofát eftir því sem maður eldist, en
samt er svo erfitt að kyngja því að
maður sé að eldast, en freistingar eru
of miklar um jólin, bara borða annan
hvern konfektmola það er allavega
byrjunin.
Gleðileg jól, lesandi góður,
megir þú og þitt fólk hafa það sem
allra best um jólin.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Bænda
Smáauglýsingar 56-30-300
MÖGLA EINSKÆR KVIÐUR LÆRIR FENGUR YNDIS ELDHÚS-ÁHALD
SSTRAUM-ROF K A M M H L A U P
KDVÍNA U L N A UPPFYLLAALLTAF E F N A
EGRÖM R G G Æ S L A N
R E D I T FAGPLANTA I Ð N
T FUGL
SJÁVAR-
MÁL
FYRIR HÖND F J A R A
Í RÖÐ
BOGI Í J ÁTTFISKINET S A
Í RÖÐHRISTA
KTEKJUHLIÐASI
PÖSSUN
BLÓM
R U P L A LÖNG ALÞÝÐAHORNSKÓR L Ý Ð U R FLÍS TVEIRRÆNA
Ö G R A
SKÆR
RÍKI Í
AFRÍKU S K Í R
TÖNG
RÁNFUGL K E F ISTORKA
L L SKRIFAGENGI S T Í L A LIÐAMÓTSPÍRA Ö K K L ITVEIR EINS
L A K SPREIASKOLLANS Ú Ð A OTAVERKFÆRI T R A N A DRYKKJAR-ÍLÁTDRAUP
A BLESSUNUMKRINGJA L Á N YNDI U N U N
FJALLSBRÚN
LOFT-
TEGUND E G G
S K Í R I SPORMÁL F A R MERGÐÞJÁLFA Ó T A LNEFNI
Ú R K A S T HVÆSLEYFIST F N Æ S Í RÖÐ SKÓLI AAFSTYRMI
R
A
Ó
A
U
STJÖRNU-
ÁR
N
S
ANGRA
Ó
A
L
M
Á
A
R
LÖGUNAR
SVARA
F
A
O
N
R
S
M
A
SSEFUN
SAMTÖK
M
Y
N
D
:
R
H
U
B
A
R
B
FA
R
M
ER
(
C
C
B
Y
-S
A
3
.0
)
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
K
R
O
S
S
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
120
Uppsetning og viðhald á kælikerfum,
kæliklefum og frystiklefum.
Sala og uppsetning á varmadælum.
Freyjunesi 10, 603 Akureyri Sími 777 1800
ktak@ktak.is Erum einnig á Facebook
Ekki beint óska andvari stuttu fyrir jól
Þessi valt innanbæjar í sterkri vindhviðu og hefði ekki átt að vera á ferðinni
í svona miklum vindi. Mynd / HLJ
Vonandi allra vegna sést þessi mynd hvergi á næstunni.