Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Page 38
Sigurður Magnússon:
Kærleiksmolarnir
Saga mín “Kærleiksmolarnir”
fjallar um hvernig ég upplifði
sterkustu kærleikstilfinninguna sem
ég man eftir sem bam þá níu ára gam-
all. Það voru nokkrir sykurmolar sem
urðu til þess að í brjósti mínu vaknaði
kærleikstilfinning, sem hefur enst mér
alla tíð síðan; kærleikstilfinning sem
ætíð kemur í brjóst mitt þegar mér
verður hugsað til ömmu minnar og
sykurmolanna, sem hún gaf mér að
skilnaði haustið 1943 þegar ég fór úr
sveitinni.
Þetta sumar eins og flest önnur var
móðir mín með mig og systur mínar í
sveitinni hjá ömmu og afa, en þau
bjuggu á Hreggstöðum í Barðastrand-
arhreppi. Þar á bænum voru einnig
fóstursystir og bræður móður minnar.
Fóstursystir mömmu var kölluð Kitta,
tíðum fylgdi ég henni þegar hún var
að bjástra úti við en þess þurfti hún
einatt þar sem heimilis- og eldhús-
störf voru unnin um víðan völl.
Fyrst má nefna hlóðaeldhúsið þar
sem hún brenndi kaffibaunirnar
í risastórum potti, sem hékk í krók yfir
hlóðunum. Þetta var spennandi því
ég fékk að bera inn móflögur og
stundum að setja eina og eina á eldinn
undir pottinum. Svo var það við
bæjarlækinn þar sem svo margt fór
fram. Þarvarbunustokkurinnþarsem
vatnið var látið renna í vatnsföturnar
og þar var plássið fyrir útvötnunina.
Þegar þurfti að útvatna fisk eða kjöt,
var það gert í krónni við bunustokk-
inn, og þegar þvotturinn var þveginn
var unnið við lækinn. Lækurinn var
mjög eftirtektarverður þar sem margir
þættir heimilisverka og eldhúsverka
fóruframábökkumhans. Verkasem
nú eru unnin með nútíma heimilis-
tækjum.
Einn staður var þó öðrum merki-
legri, það var hjallurinn, sér í lagi loft-
ið í honum en þangað var farið með
svo margt þegar komið var úr kaup-
staðnum.
Það er mér eftirminnilegt þegar
farið var með ullina niður til Flateyjar
sólríkan dag þetta sumar á heim-
ilisbátnum “ Víkingi Ullarballamir
Sigurður
Magnússon.
ofan á bátnum mynduðu stóran hlaða
poka sem bundnir voru kyrfilega nið-
ur með hrosshársreipum. Það var autt
pláss aftast í bátnum kringum mótor-
húsið og stýrissveifina, þar gat fólkið
verið og stýrimaðurinn stýrt. Allt í
einu heyrðust mótorskellir og bátur-
inn fór að þokast út spegilsléttan
sjóinn út yfir Hreggstaðabótina í átt
til eyjanna.
Þegar frændur mínir komu heim
daginn eftir úr kaupstaðnum með
ýmsan varning, var sumt sett upp á
hjallloftið en annað í skemmuna. I
skemmunni mátti ég vera og fékk að
bjástra með spýtu í hefilbekknum,
þegar frændur mínir voru að vinna
þar.
En það var hjallurinn og loftið í
honum, sem áttu hug og athygli
mína óskipta ef til vill vegna þess að
mér hafði verið bannað að vera þar
og oftast þegar ég sá Kittu frænku fara
þangað út elti ég og fylgdist grannt
með öllu sem hún gerði.
Svo var það skömmu eftir kaup-
staðarferðina þetta sumar að Kitta fer
út í hjallinn og tók ég þá vel eftir
athöfnum hennar þar úti, hún var ekki
að ná í þvott eins og venjulega, heldur
fór hún rakleitt að stiganum, fetaði sig
upp eftir honum, ýtti lofthleranum
upp og hvarf svo inn af skörinni. Það
heyrðust alls konar hljóð þar uppi á
meðan Kitta var þar sem vöktu athygli
mína. Þó var eitt fremur öðru sem
vakti óstjómlega forvitni, það var ein-
kennilegt marr. Eg varð að komast
að því hvað það væri sem gæfi svona
hljóð frá sér.
Eftir skamma stund kom Kitta
niður og fór inn í búr með það sem
hún hafði sett í svuntuna.
Nú var hugur minn allur við hjall-
inn og lofthlerann, - og hljóðið sem
ég hafði heyrt.
Þegar ég taldi að enginn tæki eftir
mér skaust ég út í hjallinn, prílaði upp
stigann og reyndi við lofthlerann. Eg
setti haus og hendur uppundir hann
og ýtti á af öllum kröftum.
Hlerinn þokaðist upp á við og allt
í einu small hann yfir í vegginn, leiðin
var greið. Eg fór nú inn á loftið og
þar voru pokar, sekkir og kassi ásamt
fleira dóti. En hvaðan kom hljóðið
sem ég heyrði ? Eg leit í kringum mig
og athyglin beindist að kassanum.
Þetta var fallegur trékassi með stórum
svörtum stöfum og með loki sem
hafði verið spennt upp. Þarna var trú-
lega uppspretta marrsins. Ég lyfti
lokinu varlega og kíkti niður í kassann
það stimdi á innihaldið, það vom syk-
urmolar. Kassinn var nærri fullur af
sykurmolum. I honum var meira af
molum en ég hafði nokkum tíma á ævi
minni séð.
Mér varð hugsað til systra minna
og mömmu sem voru inni í
bænum, ég tók hnefafylli og setti í
buxnavasann, nú ætlaði ég að gleðja
þær. Ég prílaði niður stigann, fór inn
í herbergi til systra minna þar sem þær
voru að leika sér og gaf þeim mola.
Skömmu seinna kemur mamma bros-
andi inn í herbergið til okkar og bauð
ég henni góðgætið, en við það breytt-
ist svipur hennar og á því andartaki
skildi ég að ég hafði gert eitthvað
skelfdegt og það var ógn í rödd hennar
þegar hún fór að sneypa mig fyrir
óhlýðni og að ég ætti skilið hirtingu
fyrir óþægðina. Ég beið ekki eftir að
mamma næði mér. Einhvernveginn
tókst mér að smjúga framhjá henni,
þjóta út úr herberginu og komast í
hornið til ömmu minnar. I hominu
hennar ömmu var griðastaður það
vissi ég af fyrri reynslu og það vogaði
sér enginn að fara inn á hennar yfir-
ráðasvæði til að ná í mig.
Mér var borgið í bili en það tók mig
38