Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Blaðsíða 19

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Blaðsíða 19
en fatlaða, varðar í raun okkur öll. Rætt var sérstaklega um stöðu ferlimálafulltrúa hjá ferlinefnd félags- málaráðuneytis. Sjálfsbjörg legði ofuráherzlu á að þar yrði ráðinn maður í fullt starf og hefur sótt fast á fjár- veitingar í þessu skyni. Guðríður sagði að á þingi Sjálfsbjargar yrði vakin verðug athygli á ástandi þessara mála nú, þar sem enginn væri í starfi því er Carl Brand gegndi áður, en það var hálft starf. Réttindamál hvers konar eðlilega fyrirferðarmikil, ekki sízt þegar alls staðar er verið að gæta ítrasta aðhalds, að ekki sé um beinan niðurskurð talað. Verkefnagnótt er alla vega ærin og ástæða til að vera ævinlega vel á verði og þá varðstöðu annast Sjálfsbjörg með miklum ágætum. Góðar móttökur eru vel þakkaðar, enda alkunna hvílíkur höfðingsskapur ríkir í ranni Sjálfsbjargar. Alls góðs er þeim árnað í framtíðarbaráttu fyrir farsælu lífi félaga sinna. Sjálfsbjörg er einmitt eitt stofn- félaga Öryrkjabandalags Islands og um leið ein styrkasta stoð þess í áranna rás og formaður bandalagsins einmitt úr röðum Sjálfsbjargarfélaga, forystukona þar um áratugi, Ólöf Ríkarðsdóttir. H.S. Hlerað í hornum Stefán Jónsson, alþingismaður, frétta- maður og rithöfundur var einstaklega orðheppinn maður, en gat oft talað af nokkurri gráglettni um fötlun sína, en Stefán hafði misst fótinn í slysi. Einu sinni kom Geir Gunnarsson, þing- bróðir hans inn þar sem Stefán sat og sagðist vera að sálast í höfðinu. Þá sagði Stefán: “Ég veit gott ráð Geir minn, en ég veit ekki hvort þú getur notað það. Mér var einu sinni afskap- lega illt í fætinum og ég lét bara hreinlega taka hann af’. Maður einn nyrðra var talinn eiga vingott við frú eina í sveitinni og ekki örgrannt um að hann hefði gaman af að láta á því bera. Einu sinni kont hann á næsta bæ við þann sem frúin bjó á og kvaðst vera að koma einmitt þaðan, og sagði svo: “Þá sjá augu mín illa ef hún Sigga sé ekki orðin ólétt fyrir mánuði”. Aðalsteinn Valdimarsson varaform. F.h. á Austurlandi: Endurhæfing eystra Dagana 3 - 29. mars síðastliðinn var haldið við Fjórðungs- sjúkrahúsið í Neskaup- stað endurhæfingarnám- skeið fyrir hjarta og lungnasjúklinga, og var þetta í annað sinn sem slíkt námskeið er haldið. í ágústmánuði síðastliðið sumar var fyrsta nám- skeiðið haldið, og tókst það mjög vel og kom þar vel í ljós þörfin á því að slík starfsemi yrði gerð að föstum lið í rekstri sjúkrahússins. I þessu námskeiði tóku þátt sjö hjartasjúklingar og tveir lungnasjúklingar og er óhætt að fullyrða að um mjög góða framför var að ræða hjá öllum hópnum. Það er okkur, sem fengum tækifæri til að taka þátt í þessu námskeiði mikið ánægjti- efni að yfirvöld heilsugæslumála skuli hafa opnað fyrir þann möguleika að nýta þá aðstöðu sem fyrir hendi er í hinum ýmsu sjúkrahúsum lands- byggðarinnar til endurhæfingar. Þörf- in fyrir þessa starfsemi er mjög brýn og biðlistar orðnir mjög langir og munu um eða yfir 500 manns vera á biðlista á Reykjalundi, og þegar auglýst var eftir þátttakendum í námskeiðinu, sem hófst 3. mars síðastliðinn, sóttu það margir að nægt hefði til að fylla meira en tvö námskeið, auk þess voru margir, sem ekki sóttu um þegar þeir fréttu að kominn væri biðlisti. að hlýtur að vera stjórn heilsu- gæslumála í landinu mikið Hlerað í hornum Kaupmaður einn í sjávarþorpi hugðist glettast við afdalabónda og sagði honum að fiskgengdin við bryggjuna væri svo mikil að hann gæti ausið fiskinum upp í fötu. Bóndi keypti sér fötu og fór niður á bryggju, en sá fljótt að kaupmaður hafði gabbað hann. Hugsaði hann ánægjuefni á tímum endurskipulagningar og sparnaðar að með því að koma af stað H.L. stöðv- um út um landið er verið að nýta þá aðstöðu, sem þar er fyrir hendi og um leið létta álagi á þeim stöðvum, sem fyrir eru og ekki síst koma þeim, sem námskeiðin sækja til betri heilsu, og með því móti fækka þeim sjúklingum, sem annars hefðu þörf fyrir lengri og dýrari meðferð á sjúkrahúsi. A meðan á námskeiðinu 3,- 29. mars stóð kom stjóm Félags hjartasjúklinga á Aust- urlandi saman til fundar á sjúkrahús- inu í Neskaupstað með Magnúsi Ásmundssyni yfirlækni sjúkrahússins og Birni Magnússyni lækni á Reykja- lundi. Þar var ákveðið í samráði við læknana að færa sjúkrahúsinu að gjöf nýtt þrekhjól í endurhæfingarstöðina og skjá (mónitor) til að tengja við hjartalínurita en með honum er lækni gert fært að fylgjast enn betur með ástandi sjúklings, sem verið er að rannsaka og fá meiri upplýsingar. Nú fyrstu vikuna í maí hófst þriðja end- urhæfingarnámskeiðið og er það fullskipað. í Félagi hjartasjúklinga á Austurlandi eru nú yfir 130 félagar, en auk þeirra á fólk sem þjáist af öðr- um sjúkdómum kost þessarar endur- hæfingar, og er það von okkar að sem flestir geti átt þess kost að nýta sér þá ágætu aðstöðu sem hér býðst til að koma sér til betri heilsu og meiri lífsánægju sem því fylgir. Aðalsteinn Valdimarsson. honum þegjandi þörfina. Um haustið kom bóndi með sláturfé í kaupstað og bauð kaupmanni lífhrút afar vænan og vel byggðan, en kaupmaður átti talsvert af fé. Kaupmaður þáði hrút- inn að gjöf. Nú leið og beið fram á fengitíð og kaupmaður notaði hrútinn góða. En um vorið voru allar þær ær lamblausar er hrússi hafði. Kom þá í ljós að hrúturinn væni var sauður. Aðalsteinn Valdimarsson. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 19

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.