Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Blaðsíða 15

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Blaðsíða 15
blóma lífsins. Auðvitað þurfum við að hlúa að yngra fólkinu okkar þegar það er búið að mennta sig, en það má ekki að vera á kostnað þeirra eldri sem er búið að öðlast mikla reynslu í gegnum langan starfsferil. Það á alltaf að ráða hæfasta fólkið, burtséð frá aldri.” “Það vildi svo skemmtilega til að tíu ára afmæli Félags eldri borgara bar einmitt upp á minn afmælisdag. Við höfðum skemmtidagskrá í eina viku í tilefni af tíu ára afmælinu 9.-15. mars, en afmælisdagurinn minn 12. mars frestaðisttil 16. mars. Afmælisveislan var haldin í Dagvist Sjálfsbjargar, með ríflega 100 gestum. Ég var mjög ánægð sjálf og vona að gestirnir hafi líka verið ánægðir. Ég fékk margar fallegar gjafir sem glöddu mig mjög. Táknrænasta gjöfin var verk eftir Sigrúnu Gunnarsdóttur “Vangaveltur” sem var gert í tilefni af byggingu Hæstaréttar. I verkinu er mörgæs að þumlungast upp ská- braut, gengur hægt en gengur þó - sem er eilítið táknrænt fyrir Sjálfsbjargar- félaga,” segir Guðríður og hlær dátt. - Hefurðu aldrei verið bitur yfir erfiðum líkama? “Aldrei,” segir Guðríður með áherslu. “Þótt ekki sé auðvelt að vera hreyfihamlaður, þá táknar það samt ekki að maður eigi að sökkva sér ofan í svartsýni. Auðvitað er tilfinningin fyrir því að vera hreyfihamlaður beggja blands eins og við þekkjum í gegnum Sjálfsbjörg. Mér finnst oft helv... hart að komast ekki það sem ég vil, það hefur tafið fyrir mér á lífsleiðinni.” Með sína ótrúlegu orku og geysimikla starfsþrek, er ekki óeðlilegt að sú spuming vakni - hvað Guðríður hefði gert ef hún hefði ekki átt við fötlun að stríða? “Ætli ég hefði ekki bara orðið OFVIRK,” segir Guðríður og skelli- hlær. Guðríður er komin á flug með að segja aðeins frá sjálfri sér. Teygir sig í sígarettu og vitnar aftur í landlækni - sem segir að öryrkjar séu svo veikir af því að þeir reyki of mikið! “Orkan liggur í upplaginu,” segir Guðríður. “Ég er fædd fötluð, hef alltaf verið þrældugleg að vinna og læri í uppvextinum að lifa með mína fötlun.” Guðríður er ættuð frá Hlíðar- Vangaveltur Sigrúnar Gunnarsdóttur - táknrænasta afmælisgjöfin hennar Guðríðar. enda í Ölfusi og elst upp í sveitinni í góðu yfirlæti. Hún er eina systirin og yngsta barnið, átti fjóra bræður. “Þetta var stórt heimili, mikið fjör og gaman. A sumr- in fylltist húsið af sumarbömum, frændum og frænkum af möl- inni.” Guðríður fékk fyrst spelkur. þegar hún var fimm ára. Sveitar- félagið átti að greiða hluta af þeim og foreldrarnir hluta. “Ég man ennþá eftir hvað pabbi lenti í miklum vandræðum með að borga þær,” segir Guðríður. “Heimilið var ekki ríkara en það, að hann þurfti að leggja mikið á sig til þess að ég fengi þær.” Skólaganga Guðríðar tengist mikið fötlun hennar. Hún er í endurhæfingu hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra ’56 - ’57 og fer þá fyrst í skóla, þegar hún er tíu ára - Austurbæjarskólann. Síðar liggur leiðin í Barna- og unglingaskóla Hveragerðis. “Ég fékk gott félagslegt uppeldi á skóla- árunum,” segir Guðríður, “það voru svo margir um hituna að ég varð að bjarga mér. Ég varð aldrei fyrir að- kasti í skólanum, enda var ég mjög félagslynd og sótti sjálf í félagsskap, ef ég fékk hann ekki öðruvísi.” Skólagangan var með hléum vegna margra aðgerða sem Guðríður þurfti að gangast undir. “Sú síðasta var þó hálfgert slys, þess bíð ég aldrei bætur. Ég var alltaf með bogin hné, sem átti að laga með skurðaðgerð, færa taugar niður í fótinn. Aðgerðin mistókst, en sem betur fer varð hún til þess, að spastískir hafa ekki þurft að fara í sambærilegar aðgerðir. Það versta var, að síðan hef ég aldrei getað farið á hestbak,” segir Guðríður og hlær. Svarið er líkt konunni sem er hvorki að vorkenna sjálfri sér né kenna öðrum um, þakkar bara fyrir að aðrir skuli ekki hafa lent í því sama og hún sjálf. Tilviljanirnar eru margar í lífinu. Bróðir Guðríðar ætlar að kvænast ’62 og Guðríður fer með móður sinni í Guðrúnarbúð til að gera sig fína fyrir brúðkaupið. “Þar hittum við eigand- ann, sem spyr hvort ég hafi verið í endurhæfingu og fer síðan að tala um Reykjalund. Eitthvað brölluðu þær saman, hún og mamma, sem verður til þess að 1963 fæ ég pláss á Reykja- lundi. Þar er ég í átta mánaða endur- hæfingu sem styrkti mig mikið.” Á Reykjalundi kynnist Guðríður eiginmanni sínum, Viðari Hörgdal Guðmundssyni. “Hann var slysa- sjúklingur. Sextán ára steig hann á þak á súrheysgryfju á Kjalarnesi, féll ofan í hana og hryggbrotnaði. Síðan hefur hann verið bundinn í hjólastól. Hann vann lengi á Borgarspítalanum og hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra. í samdrætti eru fatlaðir oft fyrsta fólkið sem verður atvinnulaust. Viðar var atvinnulaus í marga mánuði og lenti í sömu erfiðleikum og aðrir sem upplifa atvinnuleysi. Framkvæmdasjóður fatlaðra veitti honum styrk til að kaupa öfluga tölvu. Hún skapar hon- um atvinnu, en það jafnast samt ekkert á við félagslega þáttinn - að geta komist út á meðal fólks.” Guðríður leggur mikla áherslu á að hreyfihamlaðir einangrist ekki, að þeir fari út í þjóðfélagið og umgangist ófatlaða. “Hvílík angist getur ekki gripið um sig hjá fólki sem lendir í því að láta kippa undan sér fótunum í slysi. Breytingin verður mikil, en þetta fólk þarf að læra að það er hægt að skapa sér ánægjulegt Sjá næstu síðu FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 15

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.