Fjölrit RALA - 10.05.1992, Side 9

Fjölrit RALA - 10.05.1992, Side 9
BÚFJÁRDEILD Emma Eyþórsdóttir búfjárfræðingur Stefán Sch. Thorsteinsson búfjárfræðingur Ingi Garðar Sigurðsson búfjárfræðingur Þuríður Pétursdóttir líffræðingur Verkefni búfjárdeildar Rannsóknastofn- unar landbúnaðarins falla einkum undir erfðafræði, lífeðlisfræði og fram- leiðslutilraunir. Rannsóknir deildarinnar á árunum 1990 og 1991 fóru ýmist fram við höfuðstöðvar stofnunarinnar á Keldnaholti eða á tilraunastöðum utan Reykjavíkur. Stefán Aðalsteinsson deildarstjóri lét af störfum snemma árs 1991 og varð forstöðumaður Norræna húsdýragenbankans frá 1. apríl 1991 með aðsetur í Ási, Noregi. Sigurgeir Þorgeirsson búfjárfræðingur varð aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra og fékk leyfi frá störfum við deildina í maí 1991. Starfsemi stofnunarinnar á Reykhólum og Skriðuklaustri var hætt á árinu 1990 og rannsóknir á sauðfé fara nú nær eingöngu fram á tilraunabúinu á Hesti. Sigurgeir Þorgeirsson búfjárfræðingur Helstu viðfangsefni deildarinnar á þeim tveimur árum sem hér verður fjallað um hafa verið rannsóknir á sauðfé og í fiskeldi. Sauðfjárrannsóknirnar beinast að hagnýtum eiginleikum fjárins, svo sem frjósemi, vænleika lamba, vaxtarlagi og kjötgæðum. Er lögð sérstök áhersla á að rækta fé sem gefur vöðvamikil föll og mikil kjötgæði. Fiskeldisrannsóknir eru gerðar í tilraunastöð í fiskeldi sem er til húsa í straumfræðihúsi Orkustofnunar á Keldnaholti auk samvinnustöðva víða um land. Verkefni í fiskeldi á vegum deildarinnar beinast fyrst og fremst að nauðsynlegum undirbúningstilraunum fyrir skipulegar kynbætur á bleikju og eldislaxi. Auk þess er unnið að tilraunum með eldi á bleikju við mismunandi aðstæður og meðferð. Emma Eyþórsdóttir og Stefán Sch. Thorsteinsson Samanburður á bleikjustofnum Mikill áhugi er á því meðal fiskeldis- manna að reyna hversu hagkvæm bleikja getur orðið sem eldisfiskur. Margir hafa þegar hafist handa með bleikjueldi í nokkrum mæli. Árangur hefur orðið misjafn. Óljóst er hver mismunur er á þeim stofnum sem reynd- ir hafa verið í eldi vegna þess að þeir hafa hvergi verið bornir saman á sama stað við sömu aðstæður. Markmið verkefnisins er að bera sam- an bleikjustofna úr mismunandi vatna- svæðum á landinu og kanna hver mun- ur er á þeim á seiðastigi í vexti og lífsþrótti. Á síðari stigum eldis er kannaður munur á vexti, kynþroska- aldri, útliti og gæðum milli stofna og milli fiska af sama stofni sem aldir eru við mismunandi aðstæður. Haustið 1989 var hrognum safnað og þeim klakið út. Alls voru teknir 14 stofnar í klak og uppeldi í tilraunastöð Rala í fiskeldi og 17 stofnar í Hólalaxi. Þar af eru átta stofnar aldir á báðum stöðum. Hrognin klöktust í janúar og febrúar 1990 og voru alin í aðskildum hópum eftir stofnum þar til hægt var að merkja þau (um 50 g). Rúmlega 15 þúsund seiði voru merkt með einstakl- ingsmerkjum í janúar 1991 og þeim dreift á sex samvinnustöðvar hringinn í kringum landið. Þar verður fiskurinn alinn við mismunandi skilyrði þar til verkefninu lýkur. Á þriggja mánaða fresti er 10% af fiski í hverri stöð slátrað, hann veginn, lengdarmældur og einkunn gefin fyrir útlit, auk þess sem fiskurinn er krufinn, kynþroski metinn og kyngreint. Auk þess eru allir fiskar í hverri stöð vegnir og mældir einu sinni á ári. Marktæk- ur munur hefur komið fram á vexti, (1. mynd) kynþroska (2. mynd) og útliti milli stofna og einnig milli stöðva. Líklegt er að valinn fiskur úr verkefn- 7

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.