Fjölrit RALA - 10.05.1992, Side 18

Fjölrit RALA - 10.05.1992, Side 18
EFNAGREININGASTOFA «r á Arngrímur Thorlacius efnafræðingur, deildarstjóri Guðríður Þórhallsdóttir meinatæknir Kristín Hlíðberg lyfjafræðingur Baldur J. Vigfússon matvælafræðingur Gunnar B. Ólason efnafræðingur Sigurður Ingason efnafræðingur Meginviðfangsefni efnagreiningastofu er að þjónusta aðrar deildir stofnunarinnar. Sú þjónusta hefur fyrst og fremst verið fólgin í því að efnagreina sýni úr tilraunum með þeim aðferð- um sem settar hafa verið upp fyrir reglubundna þjónustu en í minna mæli að leita nýrra aðferða eða þróa þær þegar þörf hefur krafið. Viðfangsefnum frá utanaðkomandi aðilum hefur farið fjölgandi undanfarin tvö ár. Þar hefur einkum verið um að ræða sýni frá ýmsum aðilum í landbúnaði og þjónustugreinum hans og frá matvælaiðnaðinum. Aukin eftirspurn virðist vera eftir efnagreiningum sem sýna fram á ómengaðar landbúnaðarafurðir. Sem dæmi má nefna lyfjaleifar og þungmálma. Þróaðar hafa verið aðferðir til að mæla lyfjaleifar í eldisfiski. Það verkefni, svo og aukin eftirspurn, hefur orðið hvati að áframhaldandi starfi við aðlögun aðferða til lyfjaleifamælinga í vefjum annarra dýra og einnig í mjólk. Nýtast þar vel verkefni nemenda á lokaári í lyfjafræði við Háskóla Islands sem fengið hafa aðstöðu á stofnuninni. Unnið er að því að koma upp góðri aðstöðu til mælinga á þungmálmum og er þegar farið að mæla kadmíum og blý. Aðlöguð hefur verið aðferð til að draga út kínólínalkalóíða úr lúpínu til mælinga í gasgreini. Þetta er angi af sama lúpínuverkefni og aðrar deildir stofnunarinnar eru að vinna að. A Stóra Armóti er unnið að framleiðslutilraunum með mj ólkurkýr. V erkefnið nýtur aðstoðar efnagreiningastofu sem gleypnimælir nokkra efnaþætti í blóði mjólkurkúa með hj álp ensíma. Mælt er þvagefni, 6-OH smj örsýra og fríar fitusýrur. Fest voru kaup á sjálfvirkum sýnaskammtara fyrir atómgleypnimælingar á steinefnum. Verið er að þróa svokallaða FIA (flow injection analysis) tækni við þær mælingar. Með því er vonast til að mælingar verði miklu hraðvirkari og öruggari, jafnframt því sem niðurstöður þeirra eru sendar beint til tölvu og flýtir það úrvinnslu. Keyptur var nýr og endurbættur sjálfvirkur FIA litmælir. Reynslan af gamla tækinu sýndi að þetta var nákvæm, einföld og afkastamikil tækni. Tekin var upp efnagreiningaþjónusta við garðyrkjubændur í byrjun sumars 1991. Bændur senda sýni af plöntum og áburðarlausnum til að stilla áburðargjöf. Ef vanhöld koma upp er hugsanlega hægt að rekja þau til skorts eða ofgnóttar af einhverju steinefni. Þjónusta þessi hefur farið rólega af stað, um það bil 1-2 sýni að meðaltali á mánuði. Bcildur J. Vigfússon og Kristín Hlíðberg 16

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.