Fjölrit RALA - 10.05.1992, Page 34

Fjölrit RALA - 10.05.1992, Page 34
JARÐRÆKTARDEILD Sturla Friðriksson erfðafræðingur, deildarstjóri Áslaug Helgadóttir jurtaerfðafræðingur Halldór Sverrisson plöntusj úkdómafræðingur Óli Valur Hansson garðyrkjusérfræðingur Sigurgeir Ólafsson plöntusjúkdómafræðingur Borgþór Magnússon gróðurvistfræðingur Hólmfríður Sigurðardóttir jarðvegslíffræðingur Starfsemi jarðræktardeildar felst í því að leita að leiðum til þess að bæta og auka uppskeru af plöntum sem notaðar eru bæði til manneldis og fóðurs. Smám saman hefur þeim nytjajurtum fjölgað sem teknar hafa verið til ræktunar hér á landi. Árlega er leitað að nýjum hentugum efniviði og gerðar stofnatilraunir á grösum og grænfóðri og hafa þær meðal annars verið skipu- lagðar og gerðar í norrænni samvinnu. Fengist er við athuganir á ýmsum berjarunnum og matjurtum og reynt að velja tegundir og stofna sem henta íslenskum aðstæðum. Fylgst hefur verið með safni trjáa og runna, sem flutt var inn frá Alaska, og er því viðhaldið og einstaklingum fjölgað. Hér á norðurslóðum fer uppskera og sumarvöxtur mjög eftir vetrarþoli og ber okkur þess vegna að leita að stofn- um sem hæfa íslenskri veðráttu. Leita þarf að plöntum sem hafa ónæmi gegn sjúkdómum og forðast að flytja inn sýktar plöntur. Einnig þarf að reyna að viðhalda útsæði heilbrigðu. Þetta má til dæmis gera með vefjaræktun á kart- öflusprotum í glösum. Athuganir hafa verið gerðar á sníkju- dýrum og leitað að vörnum gegn skor- dýrum sem hrjá nytjagróður hér á landi. Guðni Þorvaldsson jarðræktarfræðingur Kristrún Marínósdóttir rannsóknarmaður Sigurður H. Magnússon gróðurvistfræðingur Tryggvi Gunnarsson líffræðingur Úthagi er dýrmæt eign og nauðsynlegt að viðhalda honum til framtíðaraf- nota. Rannsóknir hafa verið gerðar á landeyðingu og rofhraði mældur. At- huganir eru gerðar á því með hvaða grösum og belgjurtum helst megi auka gróður landsins. Unnið er að rann- sóknum á uppgræðslu með birki, elri, mel og jafnvel fjöruarfa. Fylgst er með árangri af starfi Landgræðslunnar og gerð könnun á þeim gróðurbreytingum sem orðið hafa við uppgræðsluaðgerðir. Einnig eru tilraunir gerðar með uppgræðslu á vegköntum til þess að unnt sé að leiðbeina með val á plöntum til ræktunar meðfram þjóðvegum landsins. Vistfræðisvið jarðræktardeildar er orðið þýðingarmikið og nauðsynlegt er að sinnaþví í enn ríkara mæli til þess að hægt sé að sýna með rannsóknaniðurstöðum að íslenskt umhverfi sé hreint og ómengað og íslenskar landbúnaðarafurðir séu framleiddar við sérstaklega heilnæmar aðstæður. Sturla Friðriksson 32

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.